Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1983, Side 3
DV. LAUGARDAGUR15. OKTOBER1983.
3
Með skemmtiferðaskipunum komu
8.142 útlendingar til íslands í sumar.
Átta þúsund
með skemmti-
ferðaskipum
Alls komu 8.142 útlendingar með
skemmtiferöaskipum til Islands í sum-
ar. Skemmtiferðaskipin komu 17 sinn-
um. Farþegar með ferjunum Eddu og
Norröna eru ekki taldir með í þessu
yfirliti.
Vestur-Þjóðverjar voru fjölmenn-
astir um borð í skemmtiferðaskipun-
um. Þeir voru 6.748 talsins. Banda-
rikjamenn voru 501, Austurríkismenn
362 og Hollendingar 114, samkvæmt
yfirliti Utlendingaeftirlitsins.
I sumar komu um eitt þúsund færri
farþegar með skemmtiferðaskipunum
en í fyrrasumar. Sumarið 1982 voru
farþegarnir 9.439. Sumarið 1981 voru
þeir 6.219, 1980 voru þeir 6.325 en 1979
vartalan 16.351. —KMU.
Sláturfélag Suðurlands
áSelfossi:
Fjallalömb
mun þyngri
Um fjörutíu þúsund dilkum verður
slátrað á þessu hausti hjá Sláturfélagi
Suðurlands á Selfossi, aðsögn Halldórs
Guðmundssonar sláturhússtjóra.
Meðalvigt er, enn sem komið er,
13,42 kíló. I fyrra var meðalvigtin 13,27
kíló.
Sláturhússtjórinn sagði að fjalla-
lömbin bæru alveg af. Þau lömb sem
héldu sig hins vegar í mýrum og á lág-
lendi yfir sumariö drægju f jallalömbin
niður hvað vigt viðkæmi.
Um 240 manns vinna við haust-
slátrunina hjá Siáturfélaginu á Sel-
fossi. Um 80 manns vinna hjá fyrir-
tækinu að staöaldri yfir allt áriö.
Starfsfólki fækkar með hverju árinu
sem líður því að verkefnin færast til
Reykjavíkur enda er verið að byggja
stórhýsi í borginni undir kjötvinnslu.
—Regúia, Sclfossi.
Fjarlægar
þjóðir
— áhvítu tjaldií
félagsvísindadeild
Á morgun sýna nemendur í mann-
fræöi við félagsvísindadeild Háskólans
nokkrar kvikmyndir sem fjalla um
fjarlægarþjóðir.
Sýningar hefjast kl. 14.00 og sýndar
verða kvikmyndirnar Hátíðin (The
Feast) sem f jallar um hina stríðselsku
Yanomamö-indíána sem byggja Norð-
ur-Brasilíu og Suður-Venesúela, Beðið
eftir Harry (Waiting for Harry) en þar
segir frá frumbyggjum í Ástralíu og
Ein af mörgum (Wife among wives)
fjallar um fjölkvæni og annaö hjá
Turkönum í Kenýa.
Sýningarnar verða í stofu 101 í húsi
lagadeildar Háskólans, aðgangur er
ókeypis og öllum heimill. —EIR
Stálu bíl
af verkstæði
Brotist var inn í réttingaverkstæði
viö Bíldshöfða í Reykjavík í fyrrinótt
og stolið bíl sem þar var í viðgerö.
Var það brúnleit Volvobifreið af
gerðinni 244 með skrásetningar-
númerinu R-731. Bifreiðin var bensín-
lítil en þjófarnir fundu bátavél í húsinu
og var á henni bensín sem þeir settu á
bilinn. Oku þeir síöan af stað og hafði
hvorki til þeirra né bílsins spurst þegar
blaðið f ór í prentun. -klp-
TM-HUSGOGN
Síðumúla 30 — sími 86822
Síðumúla 4 - sími 31900
Nú fylgjum við glæsilegu sumri í hollensku
sumarhúsunum eftir og hefjum strax sölu á
sumarferðunum 1984, - og það á óbreyttu verði frá
árinu 1983.
í sumar var uppselt í allar ferðir, biðlistar
mynduðust og margir urðu frá að hverfa. Við gengum
því strax frá samningunum fyrir næsta sumar og
opnum þannig öllum fyrirhyggjusömum fjölskyldum
leið til þess að tryggja sér heppilegustu ferðina
tímanlega og hefja strax reglubundinn sparnað með
Eemhof
Sumarhúsaþorpið sem sló svo rækilega í gegn á sl.
sumri. Frábær gisting, hitabeltissundlaugin, fjölbreytt
íþrótta-, leikja- og útivistaraðstaða, veitingahús,
verslanir, bowling, diskótek, tennis, mini-golf, sjóbretti
o.fl. o.fl. o.fl. Endalaus ævintýri allrar fjölskyldunnar.
Vetrarsalan opnar
þér greiðfæra leiö
Vetrarsala SamVinnuferða-Landsýnar á
hollensku sumarhúsunum er okkar aðferð t
þess að opna sem allra flestum viðraðanlega
og greiðfæra leið í gott sumarfn með alla
fiölskvlduna. í erfiðu efnahagsástandi er
með góðum fyrirvara og notfært ser ob yt
verð frá árinu 1983, SL-ferðaveltuna og
SL-kiörin til þess að létta á kostnaði og dreifa
greiðslubyrðinni á sem allfa lengstan hma.
SL-ferðaveltunni. I henni er unnt að spara í allt að 10
mánuði og endurgreiða lán jafnhátt sparnaðinum á 12
mánuðum eftir heimkomu. Þannig má dreifa greiðslum
á yfir 20 mánuði og gera fjármögnun ferðalagsins
miklum mun auðveldari en ella.
Og enn munum við bjóða SL-kjörin. Með þeim má
festa verð ferðarinnar gagnvart gengisbreytingum og
verjast þannig öllum óvæntum hækkunum.
Þetta er okkar leið til þess að gera Hollandsævintýrið
1984 að veruleika hjá sem allra flestum fjölskyldum.
Kempervennen
Nýtt þorp, byggt upp í kjölfar reynslunnar í Eemhof
og af sömu eigendum. Öll aðstaða er sú sama og í
Eemhof og í Kempervennen er síðan bætt um betur
og aukið enn frekar við stærð sundlaugarinnar,
veitingastaðanna og sameiginlegrar þjónustu auk þess
sem bryddað er upp á ýmsum spennandi nýjungum
fyrir börnin.
Fyrirhyggja í ferðamálum - einföld leið til
lægri kostnaðar og léttari greiðslubyrði
Nýr Hollandsbæklingur á skrifstofunni
oghjá umboðsmönnum um allt land
Samvinnuferdir-Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899
Veljið vándað — Gerið verösamanbur
HÚSGAGNASÝIMING
laugardag kl. 10—12 og kl. 14—16,
sunnudag kl. 14—16.
ynud
að bóka í
SUMARI ll'SIN I
HOLLANDI
Óbreytt verð frá 1983
S-L ferðaveltan dreifir
greiðslum á yfir 20 mánuði
★ Eemhof-Kempervennen
stóraukið sætaframboð
★ Fjölskylduferðir í algjörum
sérflokki