Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1983, Page 4
\
Hákon ÞH búinn
með srtdar-
kvótann sinn
— er á leið til lands úr sinni þriðju veiðiferð með
120 til 130 tonn úr ísafjarðard júpi
Hákon ÞH 250 er nú á leiö til
Grindavíkur úr sinni þriðju veiðiferð
á þessari síldarvertíð. Er hann með
120 til 130 tonn sem hann fékk út af
Arnamesi við Isafjarðardjúp í gær-
morgun.
Með þessum afla hefur Hákon ÞH
fyllt veiðikvóta sinn fyrstur alira
báta. Mátti hann koma með að landi
460 lestir. I f fyrstu veiðiferðinni,
sem var á Austfjarðamiö, fékk hann
240 lestir, í þeirri næstu, sem var á
síldarmiöin við Isafjarðardjúp, fékk
hann 117 lestir og nú er hann meö 120
til 130 lestir og þar með er kvótinn
fullur.
A sama tmia neíur fjöldi báta ekki
fengiö eina einustu síld en nú í haust
hefur 71 bátur leyfi til hringnóta-
veiða og 55 bátur til reknetaveiða.
Verðmæti þess afla sem Hákon hefur
komiö með er mjög mikill því þarna
er um aö ræða fyrsta flokks síld.
Nokkrir bátar fengu góðan afla í
Isafjarðardjúpi í gær og sömuleiðis
var ágæt veiöi í Herdísarvík. Þar
hafa reknetabátamir haldiö sig mik-
ið og voru þeir að landa í Þorláks-
höfn og Grindavík í gær.
Stærsti hluti flotans var kominn á
miöin við Austurland en þar hefur
ekkert verið að hafa að undanfömu.
Er því hluti hans nú á leiðinni suður
og vestur á Isaf jarðardjúp.
Menn fyrir austan telja þó að þar
sé mikil síld. Hún haldi sig núna út af
Glettinganesi en þar er gmnnt og
slæmur botn og ekki hægt aö kasta á
hana þar. -klp
Kafrnar
DV. LAÚGARDAGUR15. OKTOBER1983.
Forráöamenn Farskips hafa komist aö þvi að grundvöllur só ekki fyrir
rekstri farþegaferjunnar Eddu.
EDDA SIGUR EKKI
TIL ÍSLANDS
NÆSTA SUMAR
Edda siglir ekki milli Islands og Evr-
ópu næsta sumar.
,g\kvöröunin fylgir í kjölfar ítarlegr-
ar könnunar á ýmsum rekstrarmögu-
leikum til að tryggja rekstrarafkomu
skipsins, en hún leiddi í ljós aö slíkir
möguleikar eru að svo stöddu ekki fyr-
ir hendi,” segir í frétt sem Farskip hf.
hefursentfrásér.
,JStærsta vandamálið er há leiga á
skipinu sem leiðir af sér að fargjöld
yrðu ekki samkeppnisfær við önnur
millilandafargjöld á þessum leiöum aö
ári.
I frétt Farskips segir að Edda hafi í
sumar flutt um fimmtán þúsund far-
þega sem er tuttugu af hundraöi minna
en upphaflega var áætlaö.
„Rekstrartap veröur töluvert en
endanlegt uppgjör er nú í vinnslu og
ættu lokatölur að liggja fyrir innan
skamms.”
Skipafélagið segir ennfremur:
„Ekki er tímabært að segja nú hvort
þessi rekstur hefst aftur síöar. Tíminn
einn getur skorið úr um þaö. Hugsjón,
góö orö og bjartsýni nægja ekki í þess-
umefnum.” -KMU
eldh úsinnrétting
hefur ibað sem barf
Sú mikla fjölbreytni sem er að finna í útliti og skápagerðum gerir okkur kleift að
laga innréttingar að hvaða rými sem er.
Við ráðleggjuip, mælum og teiknum yður að kostnaðarlausu.
Sá sem eignast Kalmar-innréttingu, eignast vandaða vöru á vægu verði.
Athugasemd
vegna frétta í
Þjóðviljanum
Ingi Tryggvason, formaður Fram-
leiösluráðs landbúnaðarins,hefur beðið
DV um að birta eftirfarandi athuga-
semd vegna frétta sem birtust í Þjóö-
viljanum 13. okt. þar sem ranglega var
farið meö orð hans varðandi mat og
heilbrigðisskoðun á kjöti. Segir Ingi
margt annað hafi veriö skakkt í
umræddri frétt og þar sem Þjóðviljinn
hafi aö auki farið rangt með þá athuga-
semd sem hann sendi því blaði vill
hann biðja DV aö birta athugasemdina
orðrétta.
Fylgir hún hér:
Á forsíðu Þjóðviljans 13. október
eru stórlega rangfærð orð sem ég lét
falla í spjalli við blaöamann Þjóðvilj-
ans (S.dór).
Blaöamaöur spurði hvort kjötmat
væri á vegum Sambands ísl sam-
vinnufélaga eða Framleiðsluráðs land-
búnaðarins. Eg tjáöi honum aö kjöt-
mat og heilbrigöisskoðun kjöts væri
hvorki á valdi framleiðsluaðila né sölu-
aðila, heldur starfsmanna skipaðra af
opinberum aðilum.
Þessi orð mín eru heimfærð upp á
allt annað mál, sem er athugun
Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur-
svæðisins á sölu ákveðinna kjötbirgöa
frá fyrra ári, á niðursettu verði. Þykir
mér leitt, að það skuli henda Þjóðvilj-
ann að gera almennar skýringar á upp-
byggingu mats og heilbrigðiseftirlits á
framleiðsluvörum bænda, að uppi-
stööu í óvandaöri og villandi æsifrétt.
Þá er rangt í frétt Þjóðviljans, að
fundur Framleiðsluráðs 12. október
hafi verið „lokaður” umfram það sem
slíkir stjórnarfundir eru. Rangt er að
fundurinn hafi verið um „kjötmálið”,
það var ekki á dagskrá, þótt fréttir
Þjóðviljans yrðu að óformlegu um-
ræðuefni manna á milli. Enn fremur er
rangt, að Agnar Guðnason sé fram-
kvæmdastjóri Framleiösluráðs.
Ingi Tryggvason,
formaður Framleiðsluráðs landb.
Bæjarstjórn Garðabæjar:
Framkvæmdir við
Reykjanesbraut
hefjast nú í haust
Vegna fyrirhugaðs útboös fram-
kvæmda við Reykjanesbraut frá
Kaplakrika að Vífilsstaðavegi skorar
bæjarstjórn Garðabæjar á þingmenn
Reykjaneskjördæmis að sjá til þess að
Vegagerð ríkisins veröi tryggt fjár-
magn til þess að geta boðið út fram-
kvæmdir við Reykjanesbraut í einum
áfanga. Framkvæmdir hefjist nú í
haust og verði lokið í byrjun árs 1985.
Þá krefst bæjarstjórnin þess að
áfangaskipting framkvæmda verði við
Amarnesveg en ekki við Vífilsstaða-
veg, reynist hún nauðsynleg.
Til stuðnings kröfum sínum minnir
bæjarstjómin meðal annars á að Vega-
gerðin hafi lagt fram gögn sem sanna
að lagning Reykjanesbrautar milli
Hafnarfjarðar og Breiðholts sé arö-
bærasta vegaframkvæmd á landinu
öllu.
SþS