Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1983, Blaðsíða 6
DV. I£AUGFARÐM?U'R75yOKTOBER'1983: ?
6 V
— Eastern og Republic á barmi gjaldþrots
Eftir aö hiö þekkta bandaríska
flugfélag Continental er komið á
hausinn, eöa svo gott sem þaö, hafa
augu manna enn á ný beinst að
ástandinu hjá bandarískum flugfé-
lögum. Og þar er heldur ófagurt um
aö litast. Gegndarlaus taprekstur
heldur áfram og skuldirnar hrannast
upp. Eastern Airlines rambar á
barmi gjaldþrots og forráöamenn fé-
lagsins segja að ef starfsfólk sam-
þykki ekki 20% launalækkun veröi.
varla hægt að halda félaginu áfram á
lofti.
Continental tapaði liölega 84
milljónum dollara á fyrstu sex mán-
uöum þessa árs og því skiíjanlegt aö
ekki sé bjart yfir vötnunum á þeim
bæ. En þaö eru fleiri félög sem tapa •
og fullyrt er að níu af hverjum tíu
amerískum flugfélögum séu nú rekin
meötapi.
Til dæmis tapaöi Western um 42
milijónum dala á fyrri helmingi árs-
ins, Air Florida tapaöi nær 18
mUljónum dollara og World Airways ,
31 miUjón. Samkvæmt fréttum;
bandarískra blaða skuldar RepubUk
Airlines nú um 800 mUljónir dala, en
þaö var stofnaö á árunum 1979—1980
með samruna þriggja flugfélaga og
ætlaði aldeiUs að gera þaö gott. Nú
blasir hins vegar gjaldþrot við því
félagi.
Heiftarleg samkeppni
Nú stunda 98 flugfélög reglubundiö
flug í Bandaríkjunum og hefur þeim
fjölgað um 22 frá þvi aö hömlulaus
samkeppni var leyfð árið 1978. Um
leið og það var gert varö sætafram-1
boö langtum meira en þörf var fyrir,
á sama tíma og eldsneyti hækkaði í
Ferðamál
Sæmundur
Guðvinsson
veröi og vextir hækkuöu. Þá hafa
laun starfsfólks flugfélaganna tvö-
faldast á tímabUinu 1975—1982, eða
upp í liðlega 39 þúsund doUara á ári
að meðaltaU. Sumir flugstjórar hafa
komist yfir 100 þúsund doUara á ári í
laun þar vestra. Skuldabyröin er gíf-
urleg hjá félögunum, enda kostar ein ■
Jumboþota B-747 nú um 50 mUljónir
doUara stykkið.
Nýju félögin hafa á vissan hátt not-;
iö góös af erfiðleikum stóru gömlu fé-
laganna. Ldtil félög hafa sprottiö
upp, keypt notaöar vélar á hagstæöu!
verði og ráöiö til starfa fólk sem ekki
er í neinu verkalýðsfélagi. Laun og
kjör hafa því veriö félögunum í hag.
en ekki starfsfólki. Hins vegar er
samkeppnin oröin svo heiftúðug að ef
einn lækkar verð fylgja aðrir á eftir,
flug til óaröbærra staða er skoriö
miskunnarlaust niður og nú hafa
menn áhyggjur af öryggismálum.
Tekst félögunum aö halda uppi
kostnaöarsömum öryggisþáttum svo
vel sé þegar þau eru flest rekin meö
Barbietm Cemtre
féhh „ósharinn99
Breska feröamálaráöið úthlutar
árlega verðlaunum í samkeppni um
framtak til aö laða ferðamenn til
Bretlands. Innan ferðaþjónustunnar
þar í landi eru þetta kölluö óskars-
verðlaun og hefur þessi háttur veriö
haföur á í 27 ár. Aö þessu sinni féll
óskarinn í hlut Barbican Centre, en
mörgum öörum verðlaunum er einn-
ig úthlutað.
Barbican Centre er stærsta menn-
ingar- og ráöstefnumiöstöö í Vestur-
Evrópu. Hún er í City-hluta Lundúna
og var opnuö í mars á síðasta ári.
Kostnaður við bygginguna nam um
143 milljónum sterlingspunda. Þar
hefur The Royal Shakespeare Com-
pany aösetur sem og Lundúnasinfón-
ían. Hljómleikasalurinn tekur tvö
þúsund manns í sæti og leikhúsið nær
tólf hundruð. Þarna eru líka listasöfn
til húsa, nokkrir kvikmyndasalir,
veitingasalir auk margs annars.
Nafniö er komið frá dögum Róm-
verja og virkisveggja þeirra, en
Barbican Centre þýöir ytri vamar-
lína.lauslegaþýtt.
Næstæöstu verölaun breska feröa-
málaráðsins aö þessu sinni voru veitt
Warwick kastala. Madame
Tussaud’s safnið keypti kastalann af
Brooke lávarði árið 1978 og hefur
síðan eytt um einni milljón sterlings-
punda í endurbætur. I íbúöarálmu
kastalans, sem áöur var, hefur veriö
komið upp vaxmyndasýningunni „A
Royal Weekend Party 1898”. Þar eru
lávarðarhjónin af Warwick gestgjaf-
ar og heiöursgestur er prinsinn af
Wales, síöar Edward konungur sjö-
undi.
-SG.
bullandi tapi? Yfirvöld telja litla
hættu á aö slakað verði á öryggis-
kröfum, þar sem þær séu undir góðu
eftirliti.
Sérfræðingar segja aö allt útlit sé
fyrir að þessi slagur muni halda
áfram í nokkur ár. Þegar upp veröi
staðið muni aöeins þrjú stór félög
halda uppi áætlunarflugi innan
Bandaríkjanna og eitt stórt félag
muni hafa millilandaflug á hendi. Ef
óheft samkeppni hafi verið til hags-
bóta fyrir almenning og flugfélög, þá
hafi átt að koma henni á fyrir 25 ár-
um þegar byrjað var að taka þotur í
notkun. Uppbyggingin hefði þá orðið
meö allt öörum hætti á undanförnum
árum og félögin hagað rekstrinum
öðruvísi.
-SG.
Hamborg:
Afmælishátíð
í St. Pauli
I endurminningarbókum íslenskra
farmanna, og þarf raunar ekki aUtaf
farmenn tU, er stundum drepiö á
heimsókn sögumanns í gleöihverfiö
St. Pauli í Hamborg. Vart þarf aö
geta þess aö í bókunum er venjulega
skýrt tekiö fram aö þangaö hafi höf-
undur aöeins brugöiö sér í „skoö-
unarferö svona tU aö sjá þetta fræga
hverfi og fá einn bjór”. En hvaö um
það, nú stendur mikiö tilí St. PauU.
Helgina 4.-6. nóvember á aö halda
upp á 150 ára afmæU þessa fræga
hverfis meö pomp og prakt. Þaö er
sjálfur yfirborgarstjórinn í Ham-
borg sem hefur tekið aö sér aö bera
ábyrgö á gleðskapnum sem á aö
standa dag og nótt alla helgina.
Til þess aö skapa rými fyrir öll þau
dagskráratriði, sem ætlunin er aö
fram fari, veröur sú kunna gata (af
afspum auövitað), Reeperbahn,
gerö aö göngugötu meöan hátíða-
höldin standa yfir.
Hótelhaldarar í Hamborg ætla
fyrir sitt leyti að sjá tU þess aö sem
flestir geti tekið þátt í gleðskapnum.
Þeir hafa því húrraö niður prísunum
þessa helgi og fæst nú tveggja
manna herbergi fyrir 37 mörk á
mann, á nóttu. Raunar taka hótel-
menn fram að þetta verö gildi um
allar helgar eöa svo til í vetur, morg-
unverður fylgi og hefti með 20 af-
sláttarmiðum á ýmsar samkomur
þarna í Hamborg. Og þá er ekki
annað eftir en óska mönnum góðrar
ferðar í St. PauU á afmælishátíöina.
1 -SG.
Ferðamáluráðstefnan
verður í Borgarnesi
„Ferðamálaráðstefnan í ár verður
í Borgamesi og fer fram dagana 11.
og 12. nóvember. Dagskrá er ekki
fulUnótuð, en þarna veröa meðal
annars rædd ferðamál í Vesturlands-1
kjördæmi og er þingmönnum kjör-
dæmisins sérstaklega boðiö aö
koma,” sagði Birgir Þorgilsson,
markaösstjóri Feröamálaráðs, í
spjaUi við ferðasíöuna.
Birgir sagöi aö ferðamálaráðstefn-
an væri opin öllu áhugafólki um
ferðamál. Fyrri ráöstefnur heföu
veriö sóttar af um 120 manns aö jafn-
aði og f jölmörg mál tekin tU umræöu
og afgreiðslu.
,,Ég vona að sem flestir sjái sér
fært aö sækja ráðstefnuna í Borgar-
nesi og þá ekki síst að þingmenn sýni
þessum málum áhuga. Feröaþjón-
usta er sú atvinnugrein sem nú á
mesta möguleika tU vaxtar og þarf
að sinna henni betur en gert hefur
veriö,”sagðiBirgir.
Þess má geta að nú eru liðin 20 ár
frá því Ferðamálaráð var sett á
laggimar. -SG.
Ferðamál
Ferðamál
Ferðamál
Efsvo far sem horfir er hætta á að vólar Eastern verði meira á jörðu en ílofti á næstunni.
Gífurlegur taprekstur bandarískra flugfélaga:
Aöetns eitt af hverjum tíu
er rehiö meö hagnaði