Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1983, Síða 40
^VlK^ 97099 AUGLÝSINGAR SÍÐUMÚLA33 SMÁAUGLÝSINGAR — AFGREIÐSLA
í hverri L viku j SKRIFSTOFUR ÞVERHOLTI 11
'Q# # T 1 RITSTJÓRN .pOO I 1 SÍÐUMÚLA 12—14
LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 1983.
SNiOR AISAFIRÐI
Þannig var ástatt á ísafirði í gær. Ökumenn þar og annars
staðar norðan til á Vestfjörðum urðu að skafa af biium sín-
um. Fyrsti snjór vetrarins i byggð var fallinn. Á Norðurlandi
var slydda. Á Austurlandi var ofankomt n i formi regns.
DV-mynd: Valur Jónatansson.
lítgerðarráð BUR valdi
forstjóra úr hópi
umsækjenda:
Brynjólfur
Bjarnason
varð hlut-
skarpastur
Utgeröarráö Bæjarútgeröar
Reykjavíkur valdi Brynjólf Bjarnason,
rekstrarhagfræöing og núverandi.
framkvæmdastjóra Almenna bókafé-
lagsins, til að gegna forstjórastöðu
BUR.
Hlaut hann fjögur atkvæði en þrír
sátu hjó. Enginn var á móti svo ekki
yirðist djúpstæður ágreiningur um
hann í þessa stöðu.
Brynjólfur er viðskiptafræðingur frá
Háskóla Islands og að loknu fram-
haldsnámi í rekstrarhagfræði í Banda-
ríkjunum gerðist hann deildarstjóri
hagdeildar Vinnuveitendasambands
(Islands árið 1973. Því starfi gegndi
hann til ársins 76 að hann gerðist fram-
kvæmdastjóri Almenna bókafélagsins.
Brynjólfur er kvæntur Kristínu
Thors og eiga þau fjögur börn. -GS.
LOKI
ísfírðingar ættu að skoða
Kanaríeyjaauglýsinguna.
t
Neytendasamtökin hafa krafist
opinberrar rannsóknar á því hvemig
geymslu matvæla sé háttað hjá þeim
sem annast dreifingu slíkrar vöru.
Tilefnið er dreifing á skemmdu
kindakjöti sem átti sér stað fyrir
skömmu úr einni af kjötgeymslum
Sambandsins. Telja Neytendasam-
tökin aö hér sé um svo alvarlegt mál
að ræða að óhjákvæmilegt sé að
vegna skemmda kindakjötsins
átelja harðlega vinnubrögð heild- sé gallalaus og ekki verður ábyrgðin
söluaðilans, Sambands íslenskra minni þegar um jafnviðkvæma vöru
samvinnufélaga, og Heilbrigðiseftir- og matvöru er aö ræða. Aðalsökin í
litið. þessu máli liggur þvi hjá dreifingar-
1 yfirlýsingu Neytendasamtak-. aðilanumþarsemHeilbrigðiseftirlit-
anna kemur fram að frumskylda ið heldur því fram að kjötið hafi
seljandaséaðsjátilþesíMosöluvara verið geymt við ófullnægjandi að-
oucuui. í ^uuyamguum acgii au uci
sé um svo alvarlegt mál að ræða að
gera verði kröfu um opinbera rann-
sókn á því hvemig geymslu matvæla
sé háttað hjá þeim sem stunda mat-
væladreifingu. Ennfremur segir að
setja þurfi hertar gæöareglur og lög-
festa reglur sem láta þá sem selja
gallaða matvöru sæta fullri ábyrgð
og refsingu ef sakir eru miklar.
Stormasamt á þingi
versiunarmanna á Húsavík
Sex fulltrúar
gengu af þingi
vegna eldra deilumáls við fulltrúa VR
Rétt fyrir setningu 14. þings Lands-
sambands íslenskra verslunar-
manna á Húsavik í gærmorgun kom í
ljós að fulltrúar Verslunarmannafé-
lags Suðumesja mundu ekki sitja
þingið nema einn fulltrúi innan vé-
banda Verslunarmannafélags
Reykjavíkur viki af þinginu.
Astæðan var eldra deilumál milli
þessa fulltrúa VR og stjórnar
Verslunarmannafélags Suöumesja er
rekja má til verkfalls er hið síðar-
nefnda boöaði til sumarið 1982.
Reynt var eftir föngum að ná
sáttum í þessu máli, sem reyndar
var með öllu óviðkomandi störfum
þingsins, en án árangurs. Fulltrúar
Verslunarmannafélags Suðurnesja,
sex aö tölu, hófu því aldrei þingstörf,
en hurfu af staðnum um miöjan dag
með áætlunarflugi Flugleiöa. Þing-
fulltrúar hörmuðu þessi málalok og
áttu margir erfitt með að skilja
hvers vegna þetta uppgjör þurfti að
gerast meö þessum hætti.
Til þings vom mættir í morgun 84
fulltrúar. Forseti þingsins var
kjörinn Magnús L. Sveinsson. Aðal-
mál þess verða kjara- og skipulags-
mál. Því lýkur á sunnudag með kosn-
ingu stjórnar og endurskoðenda. -S.J.
Námsgagnastofnun strand ítækjakaupum:
Myndbandstækin
á hafnarbakkanum
— hafa legið þar síðan f júní
Myndbandstæki, sem Námsgagna-
stofnun hefur fest kaup ó, hafa legið á
hafnarbakkanum síðan í júníbyrjun í
sumar. Er ástæðan sú að stofnunin hef-
ur ekki fengið heimild til að felld verði
niður aöflutningsgjöld af tækjunum en
hún hefur ekki haft fjármagn til að
leysaþauúrtolli.
Karl Jeppesen, forstöðumaður
fræðslumyndasafns, sagði í viðtali við
DV að Námsgagnastofnun ætti að sjá
um myndefni handa skólunum. Til
þess að það væri kleift, yrði að vera
hægt að skoða myndböndin þar áður en
þau væru send út. Stofnunin ætti ekkert
myndbandstæki og á því hefði staðið í
þessu starfi.
Sagði Karl ennfremur að fyrrver-
andi fjármálaráðherra, Ragnar
Amalds, hefði gefið stofnuninni munn-
legt loforð um að aðflutningsgjöld yrðu
felld niður af myndböndum þegar þau
yrðu keypt til stofnunarinnar. Því
hefði verið farið út í að kaupa fimm
myndbandstæki og eitt sjónvarp.
Kaupverð tækjanna hefði verið greitt
en hins vegar hefði núverandi fjár-
málaráöherra, Albert Guðmundsson,
ekki gefið leyfi til að aðflutningsgjöld
yrðu felld niður.
„Námsgagnastofnun á ekki krónu tií
að greiða aðflutningsgjöldin með,”
sagði Karl. „Meðan málið stendur
svona getur stofnunin því ekki gegnt
því hlutverki sínu að útvega skólunum
myndefni á þann hátt sem fyrirhugað
var.”
-JSS