Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1983, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1983, Blaðsíða 37
DV. ÞRIÐJUDAGUR15. NOVEMBER1983. HVAÐ Á LÍF AÐ HEITA EFTIRLEIÐIS? Meiri hluti dómenda við Hæstarétt íslands hafa nú fellt þann úrskurð að Frjálsu framtaki hf sé óheimilt að nota íslenska orðið líf sem nafh á tímariti sínu þar sem erlent fyrirtæki eigi einkarétt á notkun nafnsins hérlendis. Að sjálfsögðu verður dómnum hlítt og því þarf að finna nýtt nafn á tímaritið. Frjálst framtak heitir nú á stuðning orðhagra islendinga og óskar aðstoðar þeirra við að finna stutt en gott nafn á tímaritið. Vinnsla 6. tbl. þessa árgangs — jólablaðsins — er nú á lokastigi þannig að skjótra viðbragða er þörf. Finna þarf nafnið fyrir lok þessarar viku. Þeir sem leggja vilja lið og koma með tillögur um nafn eru vinsamlegast beðnir að hafa símasamband við Frjálst framtak fyrir klukkan fimm föstudaginn 18. nóvember. Verður öllum ábendingum tekið með þökkum. Meö fyrirfram þakklæti Frjálst framtak hf. Ármúla 18, sími 82300.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.