Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1983, Blaðsíða 17
DV. ÞRIÐJUDAGUR15. NOVEMBER1983.
17
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
Nú má skúrkurinn hann J. R. fara að vara sig i Vígamönnum.
Vígamenn í skólana?
ÁGÆTIS HUGMYND
Karl Gauti svarar lesendabréfi um
Vígamenn:
Þaö gæti verið ágætis hugmynd aö
sýna í skólum landsins. Það væri hægt
aö sýna á árshátíöum eöa íþróttahá-
tíðum.
Þaö er hægt aö ná í okkur á æfingum
hjá Karatefélaginu Þórshamri,
Brautarholti 18, 4. hæö, mánudaga,
miðvikudaga og föstudaga á kvöldin.
Opinber sýning til styrktar lands-
liðinu í karate veröur sennilega í
byrjun janúar. Annars gladdi þaö
okkur Vígamenn aö viö skyldum slá
skúrknum honum J.R. í Dallas viö.
„Það er lágmark að sólóstjarna undirbúi sig og só ekki með allt á síðasta
snúningi," segir Hrafnhildur Sigurðardóttir i svari sinu til Hallbjarnar
kántrý.
Engar gyllivonir
með Hallbjörn
Hrafnhildur Sigurðardóttir í Borgar-
nesihringdi:
Eg vil þakka Hallbirni fyrir svariö
sem birtist í DV 8. nóv. en ég syrgi þaö
aö svona stjarna skuli ekki vera komin
þaö langt á brautinni aö geta ekki
komið fram með hljómsveit og trekkt
gesti sína í stuö.
En það er eins og þeir sem nú eru
komnir í hóp stjarnanna geti alltaf
boöiö okkur þaö sem þeim hentar og er
þægilegast og ódýrast fyrir þá. Okkur
ska! bara líka baö vel.
Eg vil svo líka svara bréfi Sigurðar
Helga sem birtist 9. nóvember. Það er
enginn misskilningur hjá mér. eöa
þekkingarleysi aö lögin hafi veriö
leikin af bandi og aö Hallbjörn hafi
raulaö meö. Þú mátt kalla það
sólóstjörnur eöa hvaöeina annað fyrir
mér.
Þaö er lágmark að sólóstjarna undir-
búi sig og sé ekki með allt á síðasta
snúningi. Þaö er langþægilegast og
ódýrast aö geta tekið lögin upp á spólu
í eitt skipti fyrir öll og stungið henni í
tækiö, raulað með og geyst svo á sam-
komur út um borg og bæ.
Ég er sannfærö um aö allflestar
hljómsveitir geta leikið lögin hans
Hallbjarnar, ekki síöur en önnur lög,
en þaö skiptir mig engu máli. Ég,
ásamt fleira góöu fólki, fékk bara nóg
af Hallbirni og viö gerum okkur engar
gyllivonir um næsta dansleik meö
honum.
FiÖLSKYLDAN
Á GÖTUNNI
Einn í f járkröggum skrifar.
Mig langar aö spyrja ráöamenn fjár-
mála hvaöa lausn þeir hafi handa þeim
sem hafa oröiö aö selja íbúöirnar sinar
vegna skulda, meiripartur skuldir hjá
lögfræðingum í innheimtu. Enginn af-
gangur, nema síður sé.
Síðan fá þessir sömu menn. íbúö hjá
Verkamannabústöðum í Reykjavík.
Þeir fá ekki lán í banka til að borga
lögfræðingum því alltaf spyr banka-
stjórinn meö sínu valdsmannlega yfir-
bragði: Hefurðu viöskipti viö bank-
ann? Skuldarinn segir nei. Því miður
lánum við bara þeim sem skipta viö
bankann og svarið er nei.
Nú spyr ég, hvernig getur maöur átt
viðskipti viö banka þegar kaupiö dugir
ekki fyrir skuldum og heimilishaldi?
Það er hlaupið upp til handa og fóta og
lánin lengd hjá þeim eiga íbúð og geta
veðsett hana. En hvaö um hina? Þeir
mega eiga sig og halda áfram að
berjast, hafa sínar áhyggjur, hlaup-
andi á milli peningastofnana þar sem
þeir fá nei, og síðan til lögfræöinga til
aö fá frest fram aö næsta uppboöi.
Síðan er íbúöin seld á uppboöi, fjöl-
skyldan lendir á götunni, síöar jafnvel
skilnaður.
Þá er aöeins um eina leiö aö velja,
fara á bæinn eins og sagt var í gamla
daga. Hvaö kostar borgina á einu ári
að halda uppi 5 manna fjölskyldu?
Kostar þaö ekki meira en þaö sem
vantaði upphaflega til aö borga skuld-
irnar sem eru kannski ekki meiri en ca
70—100 þúsund. Hafa þeir sem valdið.
hafa hugsaö um þetta? örugglega
ekki. Því legg ég til að það veröi veitt
f jármagn til aö aðstoða þetta fólk svo
komist verði hjá meiri vandræöum en
þegar er orðið. Einnig skora ég á þá
sem eru í þessari aöstööu, sem aö
framan greinir, aö láta heyra í sér á
opinberum vettvangi. Það er ekki hægt
aö sneiða framhjá þessu fólki, rétt eins
og þaö væri ekki til.
SANITAS PILSNER
EKKIAD ÁSTÆDULAUSU!
Okkar framlag í vcrðbólgubaráttunni
Sanitas