Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1983, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1983, Blaðsíða 5
DV. ÞRIÐJUDAGUR15. NOVEMBER1983. 5 Lokaumferðin rann upp — staðan var þá sú, að sveinar Einars höfðu afl- að sér 56 vinninga, en kappar Búnaðar- bankans höföu hálfum vinningi minna, eða 55,5 vinninga. Og enn höfðu örlagadisirnar séð ein- um leik lengra en nokkur annar því að í síðustu umferðinni mættust stórveld- in tvö — Búnaðarbankinn og Einar Guðfinnsson! Það hvíldi á vissan hátt meira álag á bankanum því að hann varð að sigra, að minnsta kosti 2—1, til þess að hreppa efsta sætið, en Einar Guöfinns gat látið sér nægja jafntefli. Og skákirnar hófust. Áhorfendur fylgdust í ofvæni með hverjum einasta leik og aðeins hvellir skellir skák- klukknanna rufu rafmagnaða þögnina. Jóhann Hjartarson sigraði Karl Þorsteins og það fór kliöur um salinn. Sigurlíkur Búnaöarbankans jukust um allan helming. En svo hallaði undan fæti. Bragi Kristjánsson fór halloka fyrir Halldóri G. Einarssyni og Guð- mundur Halldórsson féll á tíma gegn Daða á þriðja borði. Ahorfendur lustu upp fagnaöarópi — bæði til þess að samgleöjast sveit- inni að vestan og eins vegna þess að mönnum þykir alltaf vænt um þegar Davíð sigrar Goliat. „Svona er þaö,” tautaöi vonsvikinn bankastarfsmaður úti i salnum þegar úrslitin lágu fyrir. „Um leið og þessi fjárans ríkisstjórn fór að berja niður verðbólguna fór veldi bankanna að minnka — og nú vinnum við ekki einu sinni Flugleiðaskákmótið! -BH. Albert Guðmundsson fjármálaráð- herra er slyngur sk- ákmaður oglætur sig ekki vanta 6 áhorfendabekk- ina þegar stundir gef- ast frá önn- um efna- hagslifsins. Við hlið hans stendur Magnús Si- gurjónsson og virðist ekki bjart- sýnn á möguleika svarts i þessu tvi- sýna enda- tafli. Myndir BH. EINSTAKT TÆKIFÆRI: Við þurfum að rýma fyrir nýjum vörum og bjóðum því þessi húsgögn á ótrúlega hag- stæðum kjörum. IV FCIftUHÚSÍÐ HF. Model Reykhoh er glæsilegt borðstofusett í íslenskum sögualdarstíl. Framleitt úr valinni massífri furu. Fæst í Ijósum viðarlit eða brúnbæsað. SuAuriandshraut 30 105 Reykjavík • Simi 86605. Sendum gegn póstkröfu hvert á land sem er. fe írofyri tilFLORlDA Um þessar mundir verður 10.000 Soda Stream vélin seld hér á landi. I tilefni af þessum tímamótum hefur Sól hf. ákveðið að bjóða einhverjum stálheppnum Soda Stream eiganda í 14 daga ferðalag til Flórida en þaðan kemur TRÓPl safinn eins og allir vita. Ekki nóg með það, heldur fær þessi lukkunnar pamfíll að bjóða einhverjum með sér í ferðina! Sá heppni verður valinn af handahófi 24. desember og mun nafn hans birtast í dagblöðunum milli jóla og n/árs. Langar þig ekki til Flórlda? gjöfin sem gefurarö Sólhf.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.