Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1983, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1983, Blaðsíða 6
6 DV. ÞRIÐJUDAGUR15. NOVEMBER1983. VIKU 06 HEI6AR FEROIR LONDON Kiktu á okkar ágætu London- pakka. i þeim eru freistingar sem einstaklega gaman er aö falla fyrir. Helgar- og vikuferöir, meö glæsilegum gistimögu- leikum. Verö frá: 12.035. GLASGOW Það er örstutt til Glasgow, aöe- ins tveggja tíma flug. Helgar- ferðir á laugardag, verð frá: 8.202 kr Vikuferöir á þriöjudag, verö frá: 13.077 kr Inmfalið: flug, gisting, morgun- veröur. EDINBORG Vikuferðir: 13.248. Helqarferðir: 8.208. LUXEM BURG Til allra átta frá Luxemþurg. Það er hægt að byrja góöa Ev- rópuferð í Lux, vegna legu landsins. En aö dvelja í Lux til aö eta, drekka og versla er auðvita lika stórsnjallt. Viku- og helgarferðir, og flug og bíll. AMSTERD Helgarferöir. Brottfarir þriöju- daga og föstudaga. Verö frá: 8.145. PARIS helgar- og vikuferöir frá 12.754 KÖBEN „Besta vinkona íslenskra utan- landsferöa", helgar- og viku- ferðir. Helgarferðir alla laugar- daga frá kr: 8.804. Vikuferðir alla þriöjudaga frá kr 12.618. Jólafargjald frá: 8.430 STOCK HOLM Jólatargjald frá: 9.611 OSLO Jólafargjald frá: 7.688 HELSINKI Alla föstudaga, flug til Stokk- hólms og meö lúxus-ferju til Finnlands frá föstud.-mánu- dags. Verð frá: 12.285 kr. GAUTAB Jólafargjald fra: 8.333 FERÐA MIOSTOÐIN ADAl HlHÆ D ■' S. ,‘H 1.13 IMeytendur Neytendur Neytendur Neytendur Verð á uppþvottavélum: MARGAR TEGUNDIR A BOÐSTOLUM Stöðugt eiga sér stað breytingar á uppþvottavélum. í könnun er gerð var. í Noregi kom í ljós að þær eru orðnar hávaðaminni, nota minna vatn og minni orku og þvottatíminn er orðinn skemmri — án þess að þetta komi niður á árangri vélanna. Þurf um við uppþvottavél? Hvort uppþvottavél sé skynsamleg fjárfesting er háð ýmsu. Fjölskyldu- stærð getur skipt máli og hvort for- eldrar eru báðir útivinnandi. Svo getur uppþvottavél haft þýðingu fyrir þá sem likar illa að þvo upp með höndum. Verð á uppþvottavélum Við höfum gert smákönnun á nokkr- um uppþvottavélum sem fáanlegar eru hér á markaðnum. Þessi könnun er fyrst og fremst verðkönnun en einnig höfum við getið nokkurra eiginleika hverrar vélar. Það yfirlit er engan veginn fullnægjandi. Til að fá full- komnar upplýsingar verða kaupendur að afla þeirra hjá viðkomandi verslun. Hvers þarf að gæta Það er margs sem þarf að gæta þegar uppþvottavél er keypt. Þar má nefna: hversu mikið vatn notar hún, hversu mikinn straum notar hún og hvað langan tíma tekur þvotturinn. Einnig er mikilvægt að fá upplýsingar um hversu hávær vélin er. Algengt var áður fyrr að uppþvottavélar væru nokkuð háværar en það hefur reyndar batnað mikið sl. ár. Háværar upp- þvottavélar geta verið tii óþæginda, sérstaklega þar sem eldhús eru opin. Einnig er vert að athuga hversu mikil ábyrgð er á vélunum. öll heimilistæki eiga að hafa minnst eins árs ábyrgð. Mikiivægt er að kanna hvemig varahlutaþjónustunni er háttað. IMotkun á vélunum Nú er yfirleitt ekki talin þörf á að skola vandlega alla hluti sem settir em í vélaraar. Einungis þarf að f jarlægja lauslega hluti, s.s. bein og tannstöngla o.fl. Til að spara rafmagn er æskilegt að reyna að hafa vélamar alltaf fuilar og þvo aðeins þegar það er nauðsynlegt. Ekki er ráðlegt að þvo alla hluti í uppþvottavél. Nokkrar gerðir af kristal og postulini geta skemmst við háan vatnshita. Plast getur einnig - aflagast við mikinn hita. Mörg viðar- áhöld geta breytt lögun og lit við þvott- inn. Best er fyrir þá sem hafa upp- þvottavél að kaupa einungis hluti sem taldir era þola þvott í slíkum vélum og enn fremur að fara vel eftir leið- beiningum frá framleiðanda. Könnunin Við undirstrikum að þessi könnun er ekki könnun á gæðum þessara véla. Við ráðleggjum því þeim er ætla að festa kaup á uppþvottavélum að hafa samband við sem flesta framleiðendur og reyna að vega og meta hvaða vél hentar best. Allar þessar vélar eru út- búnar margs konar tækninýjungum sem ekki eru nefndar. Allar eru þær úr ryðfríu stáli að innan. Flestar nýjar vélar geta notað bæði heitt og kalt vatn. Með því að láta vél- ina taka inn heitt vatn sparast sá timi sem fer annars í að hita upp kalt vatn. Þar sem hitaveituvatn er notað er vafasamt hvort það borgar sig að taka inn heitt vatn beint i vélaraar. Ástæðan fyrir því er að kisillinn sem er i hvera- vatninu getur eyðilagt leirtau og sest einnig í leiðslur vélarinnar. Þar sem vatn er hins vegar hitað upp með olíu eða rafmagni getur komið til greina að nota heitt vatn beint inn á vélina. Þetta verða kaupendur að kanna vel þegar ráðist er í kaupin. -A.P.H. General Electric GSD900D. VERÐ KR. 28.100,00 Umboð: Hekla hf. Vélin er mjög vel hljóðeinangruö. Hægt er að nota mismunandi mikla orku eftir því hvað við á. Eitt þvotta- kerfi notar mjög lítið af vatni og er hentugt þegar verið er að þvo hluti sem ekki eru mjög óhreinir. Einnig er hægt að sleppa þurrkuninni og láta leirtauiö þorna af sjálfu sér. Eumenia GW 522 SE VERÐ KR. 22.080,00 Umboð: Rafbraut sf. Vélin hefur fimm þvottakerfi og tekur mataráhöld fyrir 10 manns. Hún notar 251 af vatni og orkunotkun er 1,5 kwst. Þvottatíminn er 50 mínútur. Hún er byggð til að fella inn í innréttingu. Utanmál hennar er: hæð 82 cm, breidd 50 cm og dýpt 60 cm. Sökkullinn er stillanlegur frá 0—200 mm. AEG Favoritt 400 U VERÐ KR. 22.225,00 Umboð: Bræðurnir Ormsson hf. Munurinn á þessum tveimur vélum er sáralítill. Sú dýrari hefur 6 þvotta- kerfi en hin hefur 4. Einnig er litar- munur, dýrari vélin fæst í brúnum lit en hin einungis í hvítum. Báðar vélarnar taka inn á sig bæði kalt og heitt vatn, allt að 70°C. Þær AEG Favoritt 231 U VERÐ KR. 20.932,00. hafa sjálfvirkan skammtara fyrir, glansvökva. Mögulegt er aö þvo borð- búnaðfyrir 12—14 manns. Belgurinn, innri klæðning á hurð,' sigtið og hitaelementiö er allt úr ryðfríu stáli. Utanmál vélanna er: breidd 60 cm, dýpt 57 cm og hæð 82 cm. Með hjálp AEG Vario sökkla og ramma er hægt að samræma vélarnar eldhúsinnrétt-, ingunni. Cylinda 1100 VERÐ KR. 22.500,00 Cylinda 1200 (sama og Völund 230 R) VERÐ KR. 24.550,00 Cylinda 1200 micro VERÐ KR. 29.900,00 Umboð: Fönix sf. Þessar vélar eru framleiddar í Sví- þjóð. Þær geta þvegið mataráhöld eftir 14—16 manns. Nota bæði kalt og heitt vatnalltað90°C. Þegar notað er kalt vatn er orku- notkunin 2,0 kwst. við venjulegan upp- þvott en þegar heitt vatn er notaö er orkunotkunin einungis 0,3 kwst. Meðal- þvottatímí þegar notað er kalt vatn er 100 minútur en þegar heitt vatn er not- að er hann 50 mínútur. Vélarnar eru taldar hijóðlátar. Cylinda 1200 er talin nota fremur litla orku þegar heitt vatn er notað og einn- ig hljóðlát. Dýrari gerðirnar hafa einkum mögu- leika á sparnaöarstillingum, sé notað kalt vatn eða aðgangur að ódýru næturrafmagni. Stærð vélanna er: hæð 82—87 cm, breidd 59,5 cm og dýpt 59,5 cm. ADG826 VERÐ KR. 22.019,00 in hefur 4. Báðar hafa þær sparnaðar- ofa og geta notað bæði heitt og kalt atn. Þær taka mataráhöld eftir 12 oanns. Stærð: hæð 85 cm, breidd 59,6 p Hvnt 59.7 rm. Philips ADG822 VERÐ KR. 18.938,00 Umboð: Heimilistæki hf. Báðar vélarnar eru eins að lögun og útliti. Sú dýrari hefur 6 þvottakerfi en

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.