Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1983, Blaðsíða 39

Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1983, Blaðsíða 39
DV. LAUGARDAGUR 26. NOVEMBER1983. Nýjar bækur 39 Njósna- hringurinn eftir Duncan Kyle Hörpuútgáfan sendir nú frá sér nýja bók eftir bandaríska spennusagna- höfundinn Duncan Kyle. Á síöastliönu ári kom út eftir hann bókin Hættuför á noröurslóð sem varö strax mikil sölu- bók. KGB og CIA berjast um verömæta microfilmu. Alison, vinkona John Sellers blaöamanns, hverfur á heim- leiö frá Rússlandi meö filmuna. Dul- mál hennar þekkja aðeins Alison og Sellers. Leitin aö Alison og microfilm- unni berst frá Svíþjóö til Shetlands- eyja. Hundeltur af þyrlu og fallbyssubáti í hrikalegum hamrabjörgum Shetlands- eyja veröur Sellerts blaðamaður aö beita tæknibrögöum og hugviti gegn byssubófum KGB og CIA. Hann veit að báöir aðilar fórna fjármunum og mannslífum fyrir microfilmuna og líf Alison vinkonu hans er þeim einskis virði. En máliö er ööruvísi vaxið aö mati Joh n Sellers. Njósnahringurinn er 191 bls. Her- steinn Pálsson þýddi þessa bók eins og þá fyrri. Káputeikning er eftir Kristján Jóhannsson. Bókin er prentuð og innbundin í Prentverki Akraness hf Bjargvætturinn í grasinu eftir J.D. Salinger Almenna bókafélagiö hefur sent frá sér í 2. prentun skáldsöguna Bjarg- vætturinn í grasinu, Catcher in the Rye, eftir bandaríska höfundinn J. D. Salinger. Þýðandi er Flosi Ölafsson. Bjargvætturinn í grasinu kom fyrst út í Bandaríkjunum 1945 og hefur stööugt komið út víösvegar um heiminn síðan. Bókin er kynnt þannig á bókarkápu: „Bjargvætturinn í grasinu” er löngu viðurkennd í hópi merkustu skáldsagna á þessari öld. Vel gefinn sextán ára piltur týnir áttum. Hann stingur af frá skóla og fjölskyldu og ráfar út í myrkvið New York borgar. Aö bjarga öörum í svipaðri aöstööu er hiö eina sem hann getur hugsaö sér aö leggja stund á — eða svo segir hann. Sagan fjallar á óvæginn hátt um öfgar gelgjuskeiðsins, enda var hún umdeild í fyrstu. En fljótlega sáu lesendur aö hér var hvorki ofsagt né vansagt. Bókin er afar vanþýdd vegna unglingamáls og slanguryröa og er þýöing Flosa Olafssonar á henni sannkallað þrekvirki.” Bjargvætturinn í grasinu er 198 bls. aö stærð og gefin út sem pappírskilja. j.d.salinger BiARCUÆITURíNN í GRASINU EffUNOPOUlSEN ÉG VEIT ÞÚ LIFIR Ég veit þú lifir eftir Erling Poulsen Hörpuútgáfan á Akranesi hefur sent frá sér nýja bók eftir danska rit- höfundinn Erling Poulsen. Bókin heitir Eg veit þú lifir og er 8. bókin í flokkn- um Rauöu ástarsögurnar. Þaö var brúökaupsdagur Beötu Birk. Eftir fáeinar mínútur átti hún aö vera komin í kirkjuna. Hún stóð viö gluggann og hlustaði á hljóm kirkju- klukknanna sem hringdu til brúökaups hennar og Arvids Berg sem var faðir barnsins sem hún bar undir belti. Hjarta hennar barðist ótt af fögnuöi og hamingju. „Viltu giftast mér, Beata?” haföi hann sagt. Hún haföi játast honum með löngum ástríðufullum kossi sem innsiglaði heit þeirra. Skyndilega var huröin opnuö. Bróöir Arvids stóö hjá henni. Hann tilkynnti henni aö Arvid heföi orðið fyrir slysi og dáiö samstundis. Brúökaupinu var at- lýst — í staðinn fór fram jarðarför. Ást, afbrýöi og flóknir forlagaþræðir fléttast saman hjá danska rit- böfundinum Erling Poulsen og skapa honum vinsældir metsöluhöfundarins. Eg veit þú lifir er 189 bls. Skúli Jens- son þýddi, Prentverk Akraness hefur annast prentun og bókband. Göngurog réttir Ut er komiö 1. bindi af ritsafninu Göngur og réttir, sem bókaútgáfan Noröri gaf út 1948—1953, en Bragi Sigurjónsson safnaði efni í og bjó til prentunar. Viö hefjum nú endurútgáfu á þessu vinsæla ritsafni og hefur Bragi raöaö efninu upp á ný, bætt inn nýjum köflum og ritað formála um þróun afréttarmála frá upphafi byggöar á landinu. Þá er í þessu fyrsta bindi Bókarauki, þar sem segir frá brúar- byggingu bænda í Lóni inni á Lónsör- æfum og endurbyggingu hinna sérstæöu Reykjarétta. Fjöldi mynda, milli 80 og 90, er í ritinu, og einnig kort af helstu gangnasvæöum. Loks er nafnaskrá og myndaskrá. Þetta fyrsta bindi Gangna BlllGl SIGURJÓNSSON GÖNGUR OG DFTTID JnLJwJI. JL JLJnL FVIISTA IHNDI og rétta fjallar um göngur og réttir í Austur- og Vestur-Skaftafellssýslum, Rangárvallasýslu og Vestmanna- eyjum. Bókin er rúmlega 400 blað- síöur. Þetta er stærsta bók útgáfunnar á þessu ári og örugglega kærkomin mörgum því aö ritsafnið hefur veriö ófáanlegt árum saman. LOSNIÐ VIÐ ÍSINGUNA hrímiö, regn og óhreinindi af bil- rúðum með RAIN-X. Öryggi i akstri. Fæst á öllum bensin stöðvum. TAKIÐ EFTIR TllflD MIÐSTÖÐVAR i nun ofnar Erum viðurkenndir af Iðntæknistofn- un íslands eftir staðli IST 69.1. Gerum tilboð samkvæmt teikningum yður að kostnaðarlausu. Sími sölumanns er 28693. Einstakir greiðsiuskilmálar á öllum byggingarvörum. Allt niður í 20% útborgun og lánstími allt að sex mánuðum. r ^ II. BYGGINGAVORUR ifll HRINGBRAUT 120: Simar: Timburdeild 28-604 ^ Byggingavörur 28-600 Malningarvörur og verklæri 28-605 L Golfteppadeild 28 603 Flisar og hreinlætistæki 28 430 HRINGBRAUT 120 (Aðkeyrsla frá Sólvallagötu) SguröurA, Magnússon > JAKOBSGLÍMAN Sögumaður, Jakob Jóhannesson, fermdist í lok Möskva morgundagsins og er því kominn í fullorð- inna manna tölu í þriðja bindi upþvaxtarsögunnar. Aðstæður heima fyrir hafa aldrei verið ömurlegri og framtíðin virðist ekki björt. Jakobsglíman nær yfir þrjú átakaár í lífi drengsins og segir frá tilraunum hans til að komast að heiman, mennta sig og ná fótfestu í KFUM þegar hann hefur játast Kristi. Þar eru fyrir menn sem hafa mikii áhrif á sögumann og auðvelda ekki glímu Jakobs við freistingar holdsins sem með vaxandi kynhvöt valda átakamikilli tog- streitu í sálarlífi hans. Jakobsglíman er næm lýsing á'viðkvæmu skeiði í lífi unglings, um leið og hún sýnir nánasta umhverfi hans og verður sérkennileg heimild um einstakling í Reykjavík stríðsáranna. Uppvaxtarsaga Sigurðar A. Magnússonar í bókunum Undir kalstjörnu (1979) og Möskvar morgundagsins (1981) fékk frábærar viðtökur almennings jafnt sem gagnrýnenda. í Jakobsglímunni erstíl- snilldin hin sama, enfrásögn- in jafnvel enn persónulegri og nákomnari höfundinum. gefum góðar bækur og menning

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.