Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1983, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1983, Blaðsíða 40
40 DV. LAUGARDAGUR 26. NOVEMBER1983. Sýningar Listasafn ASÍ Nú um helgina iýkur sýningu Jóhanns Briem. Sýningin er haldin í tilefni af útgáfu bókar meó verkum Jóhanns sem safniö og bókafor- lagið Lögberg gefur út. Sýning á gömlum landakort- um í Þjóðminjasafninu Laugardaginn 15. október var opnuð í Bogasal Þjóðminjasafns Islands sýning á gömlum landakortum, „Island á gömlum landabréf- um”, sem Þjóðminjasafnið og félagið Germanía standa aö. Kortin eru í eigu Oswald Dreyer-Eimbeke, ræðismanns Islands í Ham- borg, Seðlabanka Isiands og Háskólalslands. Sýningin er opin á venjulegum opnunartima safnsins, sunnudaga, þriðjudaga, fiíBtntudaga og laugardaga kl. 13.30—16.00 til sunnudagsins 27. nóvember. — Aðgangur er ókeypis. GALLERI LANGBRÖK: örlygur Kristfinns- son, myndlistarkennari á Siglufirði sýnir mál- verk í Gailerí Langbrók. Sýningin er opin virka daga kl. 12—18 og kl. 14—18 um helgar. Sýningunni lýkur sunnudaginn 27. nóvember. Ásmundarsalur v/Freyjugötu Hans Christiansen sýnir þar rúmlega 30 vatnslitamyndir. Þetta er sjöunda einka- sýning Hans. Sýningin stendur til miðvikudagsins 30. nóvember og er opin dag- legakl. 14—22. Málverkasýning í Hárbæ Málverkasýning Benjamíns Jónssónar verður opin í rakarastofunni Hárbæ, Lauga- vegi 178, á morgun, laugardag, og sunnudag klukkan 2—10 báða dagana. Sýningarskrá liggur frammi á staðnum. Allar myndirnar eru tii sölu. GALLERl ÞINGHOLTSSTRÆTI 23: Guðbergur Auðunsson sýnir í Gallerí Þing- holtsstræti 23. Sýningin er opin um helgar frá kl. 15—18 og virka daga kl. 14—18. MOKKA KAFFI SKÖLAVÖRÐUSTÍG: Sýning Rannveigar Pálsdóttur á vefnaði í Mokka á Skólavörðustíg hefur vakið athygU, en þetta er fyrsta sýning hennar á verkum sínum. Sýnir hún þar 17 myndir. Sýning Rannveigar er opin frá 10—23.30 alla daga og mun hún standa yfir næsta hálfan mánuð. Sýning Harðar Ágústssonar í Listasafni íslands framlengd Akveðið hefur verið að framlengja yfirlits- sýningu Harðar Agústssonar um eina viku. Góð aðsókn hefur verið að sýningunni en hún hefur staðið yfir síðan laugardaginn 29. októ- ber. AUs eru á sýningunni 144 verk, oUumyndir, gvassmyndú, lúnbandamyndir, teikningar og tússmyndir. Sýningin spannar rúm30áraf Ustferli Harðar og eru síðustu myndimar frá árinu 1977 en sú elsta frá því 1945. er Hörður hafði lokið námi í Myndlista- og handíða- skólanum en þar var hann frá 1941—1943. Auk myndlistar hefur Hörður látið mjög tU sin taka á öðrum vettvangi. Hann hefur verið kennari við MyndUsta- og handíöaskólann frá 1962 og skólastjóri sama skóla 1968—75. Hann hefur unnið mikið að rannsóknum á sögu ís- lenskrar húsagerðar. Sýningin stendur til 4. desember og verður opin virka daga frá 13.30—16 og laugardaga 'og sunnudaga frá 13.30—22. Gallerý Lækjartorg Á morgun, laugardag, opnar Gunnar Gunnars- son ljœmyndasýningu í GaUerý Lækjartorg. Á sýningunni verða 37 myndú, 28 svart/hvítar og 9 Utmyndir. Viðfangsefni myndanna eru ] ENN E1 RVO N fyrst og fremst mannlýsingar auk nokkurra kyrralífsmynda. Gunnar hefur haldið eina einkasýningu áður og auk þess tekið þátt í samsýningum. Sýningin verður opin vúka daga kl. 14—19 og frá kl. 14—22 laugardaga og sunnudaga. Sýningunni lýkur 4. desember. KJARVALSSTAÐIR VIÐ MIKLATÚN: „Crafts USA” nefnist bandarisk listiðnaðar- sýning er stendur yfú á Kjarvalsstöðum. Á sýningunni eru rúmlega 80 verk, unnin í gler, máúna, tré, leir, leður, vefnað og önnur efni. ÖU verkin á sýningunni eru til sölu. Sýningin er opin daglega kl. 14—22 og lýkur henni 27. nóvember. Einnig stendur þar yfir málverkasýning Ing- unnar Eydal. Rúmlega 40 verk eru á sýning- unni sem er fyrsta málverkasýning Ingunnar og er hún haldin í tilefni þess að Ingunn hlaut starfslaun Reykjavikurborgar 1983. Sýningin er opin daglega kl. 14—22. SÍÐASTA SÝNINGARHELGI1 LISTBONAÐI IGERÐUBERGI. Nú um helgina lýkur sýningu íslenskra lista- manna á Ustiðnaði sem staðið hefur yfú undanfarið. Þeú sem sýna eru: Jens Guðjóns- son sem sýnir brennt sUfur, Sören Larsen og Sigrún O. Einarsdóttú sem sýna blásið gler, Sóley Eiríksdóttir sýnir steinleú, Kristin Isleifsdóttú sýnú sUkiprent og postuUn. Um helgina lýkur einnig sýningu Kristjáns Guðmundssonar og Birgis Andréssonar sem sýna teikningar og olíumálverk. Báðar sýningamar eru opnar mánudaga— fúnmtudaga frá kl. 16—22 og föstudaga til sunnudaga frá kl. 14—18. Aðganguraðsýning- unum er ókeypis og eru þær sölusýningar. LISTMUNAHUSH) LÆKJARGÖTU 2: Þar stendur yfir sýning Þorbjargar Höskuldsdótt- ur listmálara á málverkum og teikningum. Þorbjörg hefur haldið 3 einkasýningar, I gaUeri Súm 1972, Kjarvalsstöðum 1977 og 1981. Sýningin, sem er sölusýnmg, er opin virka daga kl. 10—18, laugardaga og sunnu- daga kl. 14—18. Lokað mánudaga. Sýnmgunni lýkur4.desember. MÁLVERKSÝNING I HÚSGAGNAVERSL- UNINNI SKEIFUNNI: Málverkasýnmgu Sigurðar Hauks í húsgagnaverslunmni Skeif- unni, Smiðjuvegi 6, Kópavogi lýkur á sunnudag. SýnUigin er opin á verslunartima virka daga, en laugardag og sunnudag frá kl. 14-17. NORRÆNA HUSIÐ: „100 sessur - 100 ár” nefnist sýnrng er stendur yfir í sýningarsölum Norræna hússrns. Sýnmgrn er hingað komrn á vegum Listamiðstöðvarinnar á Sveaborg og finnska heimilisiðnaðarfélagsins (Handarbetets vanner). Hún er hluti af há- tíðarsýnUigu, sem heimilisiðnaðarfélagið hélt á aldarafmæli srnu 1979 og var sett upp í Amos Anderson-safninu í Helsinki. Á sýningunni eru rúmlega 100 púðaborð, saumuð út eftir göml- um mynstrum vegna þessarar afmælis- sýningar. Sýnrngm veröur opm daglega kl. 14—19 til 4. desember. Tilkynningar Aðventukvöld Félags kaþólskra leikmanna verður haldið í Kristskirkju, Ijandakoti, á morgun, sunnu- dag, 27. nóvember, kl. 20.30. Þar leika Hörður Áskelsson og Ásgeir Stein- grímsson saman á kirkjuorgelið og trompet, séra Ágúst K. Eyjólfsson flytur ræðu, Gunnar Eyjólfsson leikari les úr „Lilju" bróður Eystems Ásgrímssonar, Mótettukórinn syng- ur undir stjórn Harðar Áskelssonar, Björgvin Magnússon kennari les jólaguðspjallið og að lokum syngja allir sameigUilega „Blíða nótt”, texta Helga Hálfdanarsonar við jóla- lagið fræga eftir Frans Gruber „Stille Nacht” (HeUns um ból). Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir. Tapað -fundið Læða týnd frá Hlíðunum Heimiliskötturinn að Bólstaðarhlíö 62, týndist 23. nóvember sl. Þetta er sex mánaða brún- bröndótt læða með hvíta bringu og loppur. Þeir sem kynnu að hafa fundið hana eru beðnir að hrUigja í sUna 37439. Fyrirlestrar Staðarval fyrir stóriðnað á íslandi Næsti fyrúlestur Landfræðifélagsins verður haldrnn kl. 20.30 28. nóvember nk. í stofu 103 í Lögbergi, Háskóla Islands. Fyrúlesarar eru Sigríður Hauksdóttir og Emil Bóasson. Fjallað verður um þá helstu þætti sem ráða staðarvali fyrir stóriðnað og reynt að gera grein fyrir mismunandi viðhorfum þeúra aðUa sem þar eiga hagsmuna að gæta. Sett verða á oddinn tvö meginviðhorf: annars vegar þau sem stjórnast af hagsmunum fyrútækis og hUis vegar samfélagsleg viðhorf. Tónleikar Tónleikar í Ólafsvík og Stykkishólmi Helga Ingólfsdóttir semballeikari mun halda tvenna tónleika í Olafsvik og StykkishóUni um næstu helgi. Tónleikarnir í Olafsvík verða í kirkjunni föstudagmn 25. nóv. kl. 21 og í félagsheimdinu í Stykkishólmi laugardagmn 26. nóv. kl. 15. Á tónleikunum báðum verða eingöngu flutt verk eftir J.S. Bach og mun Helga hafa stutta kynningu á hljóðfærinu í upphafi tónleikanna. Tónleikar þessir eru haldnir á vegum tónlist- arfélaganna á stöðunum. Spilakvöld Félag Snæfellinga- og Hnappdæla heldur spila- og skemmtikvöld í Domus Medica laugardagmn 26. nóvember kl. 20.30. Skemmtinefndin. Skagfirðingarfélagið í Reykjavík verður með félagsvist í Drangey, félagsheim- ilinu að Síðumúla 35, sunnudaginn 27. nóvem- berkl. 14.00. BELLA Hvernig væri að fresta garðvinnunni í eina eða tvær vikur þangað til hvort eð er er orðið of seint að gera nokkuð í garðinum? Nauðungaruppboð sem auglýst var í 97., 101., og 104. tbl. Lögbirtingablaðs 1983 á Rauða- gerði 48, þingl. eign Eyjólfs Mattbíassonar, fer fram eftir kröfu Jóhannesar L. L. Helgasonar hrl. á eigninni sjálfri miðvikudaginn 30. nóvember 1983 kl. 14.00. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 98., 101. og 105. tbl. Lögbirtingablaðs 1983 á hluta í Rjúpufelli 27, þingl. eign Ólafs L. Baidurssonar, fer fram eftir kröfu Skúla J. Pálmasonar hrl., Gjaldheimtunnar í Reykjavík, Sigríðar Thorlacius hdl., Veðdeildar Landsbankans og Guðmundar Jónssonar hdl. á eigninni sjálfri þriðjudaghm 29. nóvember 1983 kl. 15.30. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 98., 101. og 105. tbl. Lögbirtingablaðs 1983 á Lálandi 7, þingl. eign Kristins Kristinssonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimt- unnar í Reykjavík, tollstjórans í Reykjavík, Einars Viðar hrl. og Iðnlánasjóðs á eigninni sjálfri miðvikudaginn 30. nóvember 1983 kl. 13.30. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 98., 101. og 105. tbl. Lögbirtingablaðs 1983 á hluta í Kvisthaga 25, þingl. eign Magnúsar Andréssonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík, Jóhanns Þórðarsonar hdl., Sparisjóðs Reykjavikur og nágrennis og Sveins H. Valdimarssonar hrl. á eigninni sjálfri miðvikudaginn 30. nóvember 1983 kl. 11.15. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Félagsfundur t'tH KSt*^ Félagsfundur í Iðju félagi verksmiðjufólks verður haidínn í Domus Medica nk. mánudag 28. nóvember kl. 20.00. Fundarefni: 1. Staðan i kjaramálum, framsögumaður Björn Björnsson, hagfræðingur ASÍ. 2. Væntanlegar samningaviðræður. 3. Önnurmál. STJÓRNIÐJU. £gm ÞAÐ MUNAR UM MINNA KJÖTMIÐSTÖÐIN Laugalæk l.s.86511 mmm okkar verð nýja verðið Lambahamborgarhryggir 128,00 kr. kg 224,00 kr. kg London lamb 158,00 296,00 Úrbeinaö hangilæri 218,00 331,00 Úrbeinaður hangiframpartur 148,00 234,00 Hangilæri 128,00 218,00 Hangiframpartur 85,15 120,15 Söltuð rúllupylsa 60,00 127,00 Reykt rúllupylsa 75,00 127,00 1/2 foialdaskrokkar, tilbúnir í frystinn / 79,00 KREDITKORT fr- ^ Opið alla daga til kl. 19. Opið laugardag til kl. 16. Alltaf opið í hádeginu. EUPOCARO VELKOMIN Nauðungaruppboð Eftir kröfu tollstjórans í Reykjavík, Skiptaréttar Reykjavíkur, Gjald- heimtunnar í Reykjavik, Eimskipafélags íslands hf., ýmissa lög- manna, banka, stofnana o.fl., fer fram opinbert uppboð í uppboðssal tollstjóra í Tollhúsinu viðTryggvagötu (hafnarmegin) laugardaginn 3. desember 1983 og hefst það kl. 13.30. Selt verður væntanlega: Eftir kröfu toilstjórans: ótollaðar og upptæk- ar vörur, ótollaðar bifreiðar og tæki, svo sem: Mercedes Benz 280 E árg. 1979, Mercedes Benz 280 S árg. 1977, VW Bus árg. 1975, Chevrolet pickup árg. 1973, VW Variant árg. 1973, Opel Rekord árg. 1975, Peugeot árg. 1971, Ford Transit árg. 1972, gaffallyftari og hleðslutæki, tengi- vagn, 6900 kg, húsvagn, 430 kg, valtari, 1300 kg, varahlutir í byggingar- krana, 847 kg, nælonnet og kaðlar, pökkunarnet fyrir þorskhausa, gervibeita, plastkör m/gati, ca 6700 kg, girðingarefni, ca 14.500 kg, ryðfrítt bandstál, ca 11.480 kg, grindur, varahlutir í skrifstofuvélar, ca 5800 stk., 3 ballar teppi, 9 rúllur gólfteppi, vefnaðarvara, umslög, fUm- ur, búsáhöld, alls konar varahlutir í bifreiðir og báta, slökkviduft, ca 2300 kg, sóllúgur á bifr., skrifstofuvélar, alls konar glervara, trésmíða- vélar, snyrtivara, hamborgarapressur, alls konar skófatnaður, sól- lampi, jólaskraut, dömu-, herra- og barnafatnaður, matvara, pennar, blýantar o.fl. fyrir skrifstofur, efni til sælgætisgerðar, 120 ks. málning, ca 2900 kg, ryðfrítt stál, ca 570 kg, handverkfæri, pappadiskar, pappa- mál og dúkar, ca 1600 kg, húsgögn, innihurðir, hreingerningarlögur, riffUsjónaukar, kryddblöndur, ca 656 kg, 5 stk. sjónvarpstæki, innfl. 1979 (ónotuð), notað 22” sjónvarp, alls konar varahlutir í sjónvarps- tæki, 14 pk. hljómplötur, ca 250 kg, ca 1300 fm þakjárn, 2 stk., mynd- segulbönd, videospólur, hjólbarðar, 2 stk., og margt fleira Eftir kröfu Eimskips hf.: brunnlokar, ristir, stálplötur, Ijósakúplar, fótbassi fyrir orgel, 2 ks, stc. hydraulic model U 40, ca 3300 kg. Eftir kröfu skiptaréttar: mikið magn af alls konar vörum úr þrotabúi versl. Airport, svo sem skófatnaður á dömur og herra, dragtir, peysur, skyrtur, blússur, kjólar, jakkar, úlpur, belti, buxur, frakkar og margt fleira, og úr öðru þrotabúi snyrtivara, leikföng, búsáhöld, alls konar baðvörur og margt fleira. Lögteknir og fjárnumdir munir, svo sem: sjónvarpstæki, hljóm- burðartæki, borðstofu- og dagstofuhúsgögn, þvottavélar og þurrkarar, isskápar, saumavélar, úr, skrifstofuáhöld, myndsegulbönd, frímerki, bækur, myndir og margt fleira. Ávísanir ekki teknar gildar sem greiðsla nema með samþykki uppboðshaldara eða gjaldkera. Greiðsla við hamarshögg. Uppboðshaldarinn í Reykjavík. )

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.