Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1983, Blaðsíða 9
DV. FÍBÍMTODÁGURé!BÉ:álkTíMIÍ^Í983.!
Umslagstöskur og belti úr leðri
í versluninni Drangey, Laugavegi 58, er gífur-
lega mikið úrval af fallegum umslagstöskum.
Þær kosta frá 410 krónum. Umslagstaska meö
haldi og axlaról á mynd til vinstri kostar 1.875
kr. og ekta sebraskinnstaska til hægri á mynd
990 kr. Einnig fæst gífurlega mikið úrval af
fallegum beltum á allt frá 295 krónum. Beltið á
myndinni, sem er meö skemmtilegri spennu,
kostar 960 krónur og er úr leðri.
t
Seðlaveski — ókeypis
nafngylling
Seðlaveskjaúrvaliö hjá Drangey er hreint ótrú-
legt. Þar færðu seðlaveski sem gert er fyrir
tékkhefti, meö tölvu og dagbók, á 975 kr. Árs-
ábyrgð er á tölvunni. Þú færð einnig seðlaveski
á 230, 385 og 495 kr. eins og þessi sem eru á
myndinni. En þetta er aðeins lítið brot af öllu
úrvalinu. Og í kaupbæti færðu ókeypis nafn-
gyllingu.
Vandaðar og góðar
Þær eru sannarlega vandaðar og góöar
töskurnar frá Lady F og úrvalið hreint ótrú-
legt, hvort sem þú vilt ódýra eða dýra tösku.
Töskurnar á myndinni kosta 1.195, 2.175 og
2.250 krónur. Einnig er mjög fjölbreytt úrval af
hönskum og slæðum í versluninni Drangey.
Þýskar f rúartöskur
Viltu gefa frúnni þinni fallega þýska leöurtösku
frá Denice? Þær fást í versluninni Drangey í
mörgum geröum og stærðum. Töskurnar á
myndinni kosta 2.575, 2.475 og 2.575 kr. Einnig
er þar mikið úrval af fallegum leðurhönskum
frá 485 krónum.
Sjöl og treflar fyrir þær ungu
í versluninni Drangey, Laugavegi 58, er geysi-
lega mikið úrval af nýtísku sjölum og treflum.
Sjölin kosta 355 krónur og treflar ísvörtu, hvítu
og rauðu 255 kr. Leðurpoki á myndinni hægra
megin kostar 795 en canvaspoki á hinni mynd-
inni 495 kr. Aðrar gerðir af pokum kosta frá 249
kr. Leðurhanskar eru til í miklu úrvali.
Glæsileg handsnyrtisett
í versluninni Drangey er ekki bara óskaplegt
úrval af töskum í öllum stæröum og geröum
heldur einnig handsnyrtisett f ekta leðurveski.
Þau kosta aðeins frá 195—735 kr. og eru góð
gjöf fyrir mömmur og ömmur. Einnig fást
gleraugnahulstur úr leðri á 595 kr. og kven-
seðlaveski fyrir tékkhefti á 735—750 kr.
Svolítið sérstakt
fyrir herrann
Snyrtivöruverslunin Clara, Laugavegi 15,
hefur mjög mikið úrval af vönduðum gjöfum
fyrir herrann. Hér á myndinni er brot af því
úrvali en það er silkibindi frá Dior á 742 krónur
og leðurtaska, sem hefur verið mjög vinsæl,
enda með eindæmum smekkleg og skemmti-
leg. Töskuna, sem er frá Delsey, má hengja á
belti ef vill eða bara nota sem handtösku. Þá er
það rakspíri í glæsilegum umbúðum frá Dior,
Jules, frá 360 krónum.
Frá Gucci
Fyrir þær sem vilja gott ilmvatn er Gucci frá
Paris ákjósanlegt. Ilmvatn í spreyglasi kostar
242 kr. og ekta ilmvatn 373—577,50 krónur.
Dömurnar verða ánægðar með Gucci ilmvatn.
Glæsilegar vörur
fyrir herra
Snyrtivöruverslunin Clara, Laugavegi 15, er
ekki bara glæsileg verslun, hún býður einnig
upp á glæsilegt úrval af gjafavörum fyrir
herra. Clara býður þetta fallega gjafasett frá
Monsieur Rochas á jólatilboðsverði, aðeins 298
krónur. Það er rakspíri, rakkrem, sturtusápa f
fljótandi formi og allt meö sama ilminum. Auk
þess býöur Clara fallega herratrefla — góö gjöf
frá Clöru.
Furuborð og
spegill í Clöru
Já, þær selja fleira en
vandaðar snyrtivörur í
Clöru, Laugavegi 15. Þar
er einnig mikið úrval af
speglum í öllum gerðum
og stærðum, jafnvel spegl-
um sem má rúlla saman.
Á myndinni er sett sem
fæst í Clöru. Það er
finnskt furuborð og
spegill. Boröið kostar 1.690
en spegillinn er til á verð-
inufrá 1.100—1.900 kr.
Glæsilegar gjafavörur
Þær eru ekki í vandræðum f snyrtivöruverslun-
inni Clöru, Laugavegi 15, að reiða fram hinar
ýmsu gjafavörur, hverja annarri smekklegri
og vandaðri. Á myndinni er aðeins brot af öllu
úrvalinu. Þaö er ilmvatn frá Bagatelle Guer-
lain í París á 895 krónur, slæða frá Christian
Dior á 1.438 krónur og leðurbudda á 178 krónur.
Gjafakassar fyrir
dömur og herra
Fyrir þá vandlátu er úrval af gjafavöru í hinni
glæsilegu verslun Clöru, Laugavegi 15, til
dæmis þessir gjafakassar fyrir dömur og
herra. Þeir innihalda ilmvatn frá Choc fyrir
dömur ásamt þvottastykki og sápu — settið á
568 kr. Og í herrakassanum er ilmvatn frá
Pierre Cardin, þvottastykki og sápa á 492 kr.
Falleg gjöf á hagstæðu verði.
SNYRTIVÖRUVERSLUNIIM CLARA LAUGAVEG115