Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1983, Blaðsíða 36
36
DV. FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER1983.
Franskir pottar
Þessir fallegu og vönduöu pottar fást í Heklu,
Laugavegi 172. Þeir eru franskir, emaleraðir
og í öllum stæröum. Pottarnir eru fáanlegir í
rauðu, svörtu, leirbrúnu og gulu og kosta frá
719—2.000 kr. Pönnur kosta frá 913, föt frá 600
og gratínskálar frá 366 krónum.
Stækkunarskermur
Ertu meö lítið sjónvarpstæki og vilt stækka viö
þig? Þaö er óþarfi þegar þú hefur slíkt
stækkunartæki við höndina. Hekla, Laugavegi
172, býöur þrjár stæröir af þessum stækkunar-
skermum. Þeir eru geröir fyrir 10—16 tommu
tæki, sá minnsti, 17—23 tommu og 23—26
tommu tæki. Þú bara skellir skerminum fyrir
framan sjónvarpið og myndin er orðin allstór.
Veröiö er frá 2.380 krónum.
Rafmagns-snyrtisett
Þetta frábæra snyrtisett, sem fæst í Heklu,
Laugavegi 172, er rafmagnssett sem inniheldur
sex mismunandi tæki og fæst í gjafakassa meö
spegli á 2.119 krónur. Einnig er til hárblásari
frá Wigo á 1.066 kr. og krullubursti frá Wigo á
1.215 krónur.
Þá er þaö sú gamla, góöa Kenwood electronic
Chef sem svo er kölluð. Henni fylgir mixari,
hnoöari, þeytari og hrærari auk loks yfir
skálina. Sérstakt jólaverð er á þessari frábæru
vél, aöeins 8.430 krónur. Hún fæst auðvitaö í
Heklu, Laugavegi 172.
Kenwood Gourmeat
Já, þaö er sú nýja frá Kenwood sem gerir allt:
hrærir, hakkar, hnoðar, rífur, saxar og fleira
og fleira. Hraöastillar eru þrír og á einum
gengur vélin aðeins meðan á hann er ýtt. Þetta
frábæra tæki kostar 5.230 krónur og fæst aö
sjálfsögðu í Heklu, Laugavegi 172.
Gufustraujárn
Hekla, Laugavegi 172, býöur upp á gufustrau-
járn frá General Electric í þremur litum. Þetta
eru mjög góö straujárn sem kosta 1.240, 1.837
og 2.327 krónur.
KREDITKORT
VELKOMIN
Landsins bestu
kerrupokar
íslensku gærukerru-
pokarnir eru þeir albestu
og börnunum veröur ekki
kalt í þeim þó þau sofi úti í
vetrarkuldanum. í
versluninni Framtíöinni
fást þessir kerrupokar í
þremur litum á 2.280
krónur, einnig gærupoki
meö buxnasniði fyrir
regnhlífarkerrur á 2.470
krónur. Hægt er einnig aö
fá gærurnar í pokunum í
mismunandi litum.
Landsins mesta úrval af
hönskum
í Tösku- og hanskabúðinni aö Skólavöröustíg 7
er vfst landsins mesta úrval af hönskum og
seðlaveskjum. Hanskar eru alltaf hlý og góð
gjöf og eru þeir til handa dömum og herrum.
Hvort sem þú vilt fóöraöa hanska meö kanínu-
skinni, lambsskinni eöa einhverju ööru þá
færöu þá örugglega í Tösku- og hanskabúöinni.
Hanskarnir kosta frá 650—980 kr.
Rúmteppi
Rúmbesta verslun
landsins selur ekki
einungis rúm heldur
einnig reiðinnar býsn af
öllum mögulegum rúm-
teppum, bæði á eins
manns rúm og hjónarúm.
Þú getur valið um tuttugu
tegundir af rúmteppum á
eins manns rúm og öll
ákaflega spennandi fyrir
börn og unglinga. Á
myndinni er aöeins eitt
sýnishornió en ein
vinsælasta myndin á
rúmteppum í dag. Veröiö
er 1.350 kr. Teppin eru að
sjálfsögðu í verslun Ingv-
ars og Gylfa viö Grensás-
veg.
Seðlaveski og buddur
í Tösku- og hanskabúðinni að Skólavörðustíg 7
eru örugglega þrjátíu geröir af seðlaveskjum,
ef ekki meira. Allir litir eru fáanlegir og allar
geröir, hvort sem þú vilt veski fyrir tékkhefti
eða bara litla buddu. Seölaveskin eru bæöi
dönsk og íslensk.
IMýjar leðurtöskur
Þessar fallegu leöurtöskur eru nýjar á
markaðnum hjá Tösku- og hanskabúöinni að
Skólavöröustíg 7. Þær fást ítfskulitunum gráu,
drapp og svörtu. Töskurnar eru hollenskar, úr
frábæru skinni, en Tösku- og hanskabúðin
hefur verslaö viö hollenska fyrirtækið í tuttugu
ár meö mjög góöum árangri. Töskurnar kosta
frá 600—1.300 kr.
Skjalatöskur úr leðri eða vínil
Tösku- og hanskabúöin, Skólavörðustíg 7, hefur
mjög mikiö úrval af fallegum skjalatöskum,
bæöi fyrir dömur og herra, til dæmis þessar á
myndinni. Önnur er pólsk leðurtaska, nett og
skemmtileg, á aöeins 2.350 kr. og hin er
víniltaska, ný á markaðnum, fóöruö aö innan,
á 1.670 krónur.