Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1983, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1983, Síða 4
• ‘ÓV. FÖSTUDAGUk lé.DÉSÉMlBER 1983. Þannig var búið um smyglaða kjötið: „Skárumaf stimplana og umpökkuðum kjötinu” — segir matreiðslumaður sem vann um árabil á Hótel Sögu „Aöferöirnar sem viö notuðum viö smyglaöa kjötiö voru þær aö viö skárum af því erlendu stimplana og umpökkuöum því. Síðan var þaö sett í frysti. Þaö þurfti ekkert aö óttast því viö fengum alltaf aö vita meö nokkurra daga fyrirvara aö von væri á fulltrúum Heilþrigöiseftirlitsins í skoöun og gátum þá veriö viöbúnir.” Svo mælir matreiðslumaöur sem starfaöi um áraþil á Hótel Sögu en þar munu ofangreindar starfsaðferö- ir hafa verið notaöar aö hans sögn. Maðurinn óskaöi eftir að nafns hans yrði ekki getið aö sinni. „Öll þau ár sem ég vann á Sögu, fram til 1980, var þar á boöstólum smyglað nautakjöt og skinka. Hótel- iö keypti raunar aðeins tvisvar ís- lenska skinku, þann tíma sem ég vann þar,” sagöi hann. „Á þessum árum var hörgull á íslensku nauta- kjöti, einkum á vorin og fram á haust. Þetta skarö var einfaldlega fyllt upp meö smygluðu kjöti frá Argentínu og Ástralíu. Sem fyrr sagöi skárum viö í fyrstu stimplana af kjötinu og reyndum aö afmá öll merki um að þaö væri smyglað. En svo jókst öryggið í sambandi viö þetta svo þær aögeröir voru ekki lengur taldar nauösynlegar. Líklega hefur minnkandi eftirUti veriö þar umaðkenna. En afhending „vörunnar” gekk annars þannig fyrir sig aö viðkom- andi farmaöur kom einfaldlega meö kassana upp á Sögu, rækilega merkta Argentínu, Ástralíu, eöa hvað þaö nú var. Hann afhenti þá, fór síðan upp á skrifstofu og fékk upp- gert. Þetta viðgekkst öll þau ár sem ég starfaði þarna og ég veit aö þaö viðgengst ennþá. Ég geröi fyrir nokkru tilraun til aö selja hótelinu íslenskt unniö nauta- kjöt, mjög gott kjöt. En þeir sem urðu fyrir svörum sögöust ekki hafa þörf fyrir að kaupa kjötiö af mér þar sem þeir heföu nóg af slíku. Hins vegar var ég í siglingum sl. vetur á togara. Eg kom þá einhverju sinni viö á Hótel Sögu og kom þá m.a. fram í tali mínu aö ég væri í sigling- um til Þýskalands. Ég var þá spurö- ur hvort ég ætti ekki nautakjöt. Ég kvaöst eiga f jórar nautalundir heima sem ég heföi ætlaö til eigin nota. Þeir báöu mig aö selja sér þær eins og skot, vikuneyslan hjá þeim á nauta- lundum og „filletum” væri um 100 kíló og því væru þeir reiðubúnir til aö kaupa af mér allt þaö nautakjöt sem ég gæti smyglaö inn. Ég seldi þeim lundirnar á 240 krónur kílóið en haföi greitt um 60 krónur á kíló úti í Þýskalandi. Kjötiö fékk ég staðgreitt sem mun tíðkast í þessum viðskiptum.” Viömælandi DV kvaöst hafa vitaö til þess aö kaup á smygluöu kjöti heföu viðgengist á flestöllum veitingastööunum í Reykjavík á þeim tíma sem hann vann á Sögu. Innflutningsaðilar hefðu farið hring- ferð um borgina og selt. Víst heföi verið freistandi fyrir veitingamenn aö versla viö þá því þeir heföu ekki þurft aö greiða söluskatt af smyglaöa kjötinu. -JSS „Munum þrýsta á um rannsókn” — segir Gunnar Guðbjartsson, f ramkvæmdastjóri Framleiðsluráðs „Viö munum þrýsta á um aö rann- sókn fari fram í þessu máli. Þaö hefur veriö uppi hávær orörómur um ólög- mætan innflutning á kjöti og ég tel sjálfsagt aö rannsókn fari fram í þeim efnum,” sagöi Gunnar Guöbjartsson, framkvæmdastjóri Framleiösluráös, er DV ræddi viö hann. Sagöi Gunnar aö rannsóknarlögregl- unni heföi veriö send beiöni um athug- un á málinu. Jafnframt hefði landbún- aðarráöuneytinu veriö gerö grein fyrir gangi mála. Sagöi Gunnar ennfremur að grunur léki á aö smyglaða kjötiö heföi verið flutt ineö farskipum en einnig komiö í gegnum Keflavíkurflugvöll. Væri því þörf á að láta fara fram athugun á toll- eftirliti því sem væri á viökomandi stööum. Varöandi þátttöku veitingahúsa í meintu kjötsmygli sagði Gunnar aö ekki heföi í kærunni verið bent á ein- stök fyrirtæki. „En þau liggja mörg undir grun,” sagði hann en kvaöst ekki vilja tjá sig um nöfn hinna grunuðu aö svo stöddu. -JSS Orsök þyrluslyssins enn ráðgáta: Stélskrúfan undir smásjá „Viö vitum í raun afskaplega lítiö um orsök slyssins. Viö höfum ekkert í höndunum, engar sannanir fyrir einu né neinu,” sagöi Sveinn Björns- son, varaformaður flugslysanefnd- ar, um rannsóknina á tildrögum þess aö þyrla Landhelgisgæslunnar, TF- RÁN, fórst í Jökulfjörðum þann átt- unda fyrra mánaöar. Við rannsóknina, sem bæöi fer fram í Bandaríkjunum og á Islandi, hefur mikil áhersla veriö lögö á aö kanna hvort frumorsök slyssins megi rekja til stélskrúfu þyrlunnar. Ennfremur hafa menn reynt aö átta sig á hvenær og hvers vegna hurö á ' hlið þyrlunnar losnaöi af. Huröin hef- ur ekki fundist. Þrátt fyrir mikla leit í Jökulfjörö- um hefur heldur ekki tekist aö finna lík tveggja áhafnarmeölima. Einnig hefur veriö leitað aö hlutum úr skrúfublööum. Varöskip og vél- báturinn Siggi Sveins halda áfram að leita eftir því sem veður leyfir. -KMU Framleiðslu- kostnaður gæti lækkað um 4 prósent — ef virðisaukaskattur væri tekinn í stað núverandi söluskattskerf is Aukinn framleiöslukostnaöur vegna uppsöfnunaráhrifa núverandi sölu- skattskerfis mun nema um 1300 til 1500 milljónum króna á þessu ári hjá ís- lenskum atvinnuvegum. Ef viröis- aukaskattskerfi yröi tekið upp myndi þaö lækka framleiðslukostnaðinn al- mennt um 4% aö því er fram kemur í athugun sem gerð hefur veriö á vegum Félags íslenskra iðnrekenda. íslenskum framleiöendum mun þaö bæta mjög samkeppnisaðstöðu þeirra,” sagöi Víglundur Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra iönrekenda, í samtali viö DV. „Þetta gæti þýtt stóraukna markaðshlutdeild okkar bæöi hér innanlands og í útflutn- ingi.” ÓEF Slökkviliðið i Reykjavík er að taka inotkun þessa dagana nýjan slökkvibíl. Erþetta billsem búinn er mjög fullkomnum tækjum og á engan sinn lika hór á landi. Menn frá framleiðendunum eru að kenna slökkvi- liðsmönnum á tækin og bilinn um þessar mundir en þarna er ýmislegt n ýtt að sjá og læra. DV-mynd S. Söluskattur leggst á framleiðslu vöru og aöföng til framleiðslunnar á öllum framleiðslustigum og síðan á endanlegt söluverð í smásölu. Sölu- skattsálagning er nú 23,5%. Þetta veld- ur uppsöfnuöum hækkunum sem iön- rekendur meta sem 4% hækkun fram- leiðslukostnaöar aö meöaltali. Viröis- aukaskattur er hins vegar neysluskatt- ur sem leggst aöeins á sölu vörunnar en safnast ekki upp í framleiöslunni. Samkvæmt frumvarpi sem fjármála- ráöherra hefur látið semja, en ekki hefur enn verið lagt fram á Alþingi, er gert ráö fyrir aö virðisaukaskattur veröi21%. „Ef þessari skattbyrði veröur létt af MEZZOFORTE: Hljómleikar um helgina Mezzoforte er nú komin til lands- ins eftir langa og stranga dvöl erlendis. Þar hefur hljómsveitin gert víðreist og nýtur hún nú umtals- veröra vinsælda á meginlandi Evrópu og víöar. Á meöan hljómsveitarmenn staldra viö hér á landi yfir hátíöirnar halda þeir tvenna hljómleika í Há- skólabíói. Fyrri tónleikarnir verða á sunnudag klukkan 16 og eru þeir haldnir í nafni Flugleiöa, en félagið hefur veitt hljómsveitinni aöstoö varðandi feröir til og frá landinu. Hér er um góögeröarhljómleika aö ræöa og á þá boöiö ýmsum hópum sem aö öllu jöfnu eiga ekki kost á aö sækja skemmtanir sem þessa. Síöari tónleikarnir veröa á sunnu- dagskvöldiö klukkan 21 og er þegar byrjað aö selja miöa á þá. Allur hagnaður af tónleikunum rennur til tónlistarskóla FlH. Tveir af meölim- um Mezzoforte hafa kennt viö þann skóla en hann hefur löngum átt viö fjárskort aö glíma. SþS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.