Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1984, Page 9
DV. FÖSTUDAGUR 3. FEBRUAR1984.
9
í nýafstöðnu happdrætti SÁA voru vinningar
tíu SAAB-bifreiðar. Aðeins ein bifreið hefur
verið sótt. Hér afhendir formaður happ-
drættisnefndar SÁÁ, Grétar Bergmann,
vinningshafanum, Guðrún Brynju Bernharðs-
dóttur, þá bifreið. Á myndinni eru, auk
Grétars og Guðrúnar Brynju, móðir hennar,
Guðrún Jónsdóttir, og Árni Reynisson, full-
trúi hjá SÁÁ.
FIMMTI
HVER
HAPP-
DRÆTTIS-
MIÐI
— seldist hjá SÁÁ
— einn bíll sóttur
Vegna ummæla í grein á neytenda-
síðu DV mánudaginn 23. janúar sl.,-
þar sem vikiö er að nýafstöðnu happ-
drætti SAA, þykir mér rétt að upplýsa
eftirfarandi:
Það er rangt sem segir í greininni að
f jöldi útgefinna miöa sé á valdi þeirra
sem standa fyrir happdrætti. Þvert á
móti eru öll happdrætti háð leyfi dóms-
málaráðuneytisins og slík leyfi eru
bundin því að vinningar séu a.m.k..l/6
af verðmæti útgefinna miða.
í umræddu tilfelli var heildarverð-
mæti vinninga 4,5 milljónir króna.
Fjöldi útgefinna miða var í samræmi
við það, 225.000 númer á 120 krónur
hvert. Við sendum út 200.000 miöa.
Viðtakendur voru íslenskar konur
sem fengu senda 2 miða hver og
allmörg fyrirtæki sem fengu 10 miða
hvert. Afgangurinn var hafður til
lausasölu.
Allt er þetta í samræmi viö landslög,
leyfi ráðuneytis og venjur í hliðstæöum
happdrættum. Því má bæta við að í
þessu happdrætti seldist rúmlega
fimmti hver miði eöa 22%. Eftir
reikningslíkum hefðu því tveir bílar átt
að ganga út. Einn hefur þegar verið
sóttur. Hugsanlegt er að fleri gefi sig
fram en frestur til að sækja vinninga
rennur út 6. desember nk. I fyrra'
héldum við svipað happdrætti og þá
seldust 2/3 útgefinna miða. Þá sleppt-
um við heilum aldursflokkum og feng-
um skömm í hattinn fyrir. Því ákváðum
við að gefa öllum kost á að styðja okk-
ur í þetta sinn. Nú má ekki gleymast að
tilviljun ræður alltaf úrslitum í happ-
drætti. Það hefðu getað gengið út fleiri
vinningar en nemur hlutfalli seldra
miöa og við hefðum jafnvel getað
tapað á öllu saman.
Utkoman varð hins vegar sú að
hagnaður er 2,9 milljónir króna og
þessi fjárhæð dugði okkur til að ljúka
byggingu sjúkrastöðvarinnar fyrir
áramót eins og stefnt var að.
Eg vil nota tækifærið og þakka
íslenskum konum, körlum og fyrir-
tækjum sem studdu okkur með þátt-
töku í byggingarhappdrættinu, svo og í
annarri f járöflun.
Þið hafið hjálpað okkur að lyfta
grettistaki og árangurinn er þegar far-
inn aö skila sér. Arnaðaróskir sendi ég
kollegum í öðrum hjálparstofnunum
sem byggja á samúð og stuðningi al-
mennings í landinu.
Grétar Bergmann,
formaður happdrættisnefndar SAA
Fyrirtæki, einstaklingar
Höfum til leigu vel útbúnar gröfur til snjómoksturs,
einnig vörubíla ef fjarlægja þarf snjó eða annað.
KRAFTVERK HF.
SÍMI 42763.
CAR RENTAL SERVICE - 75
FAST VERÐ - EKKERT KÍLÓMETRAGJALD
SÖLUSKATTUR INNIFALINN í VERÐI
Leitið upplýsinga.
SMIÐJUVEGI 44 D - KÓPAVOCI - ICELAND
AÐALSÍMI: 75 400 & 78 660
KVÖLD OG HELGARSÍMI: 45 651 & 46 211
TELEX 2271 IÐN IS
AUGLÝSINGASTOFU
VANTAR HÚSNÆÐI
Óskum eftir að taka á leigu hentugt húsnæði fyrir
ört vaxandi auglýsingastofu. Helst staðsett í miðbæ
Reykjavíkur. Hentug stærð 60 — 70 fermetrar.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR í SÍMA 75655.
KAFFl ^
VÁmNN KVÖLDIN
BYRJA AFTUR ÖLL
BJÓÐUM EIIMIMIG:
fiskréttahlaðborð
fyrir hópa og
samkvæmi,
köld bprð,
smurt brauð
og snittur.
Verið velkomin.
FIMMTUDAGS-,
FÖSTUDAGS- OG
LAUGARDAGSKVÖLD
KAffl '
VAéHim
Grandagarði 10 —Sími: 15932
SKIÐA- OG FERÐAB
I.FYLGIR DV JftlÍÍÍ
• SkíðaraH kringum landið
• Skíðaferðir til útlanda
• Vélsleðamótá öræfum
• Trimmlandskeppni á skíðum
• FjaHhíf er nýjasta æðið
• Umferðarreglur skíða- og vélsleðamanna
• Hvernig á að velja skíðin ______
• Nýr og breyttur skíðaskáli
• Helstu skíðastaðir á landinu
• o.fl. o.fl. o.fl. >' -T