Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1984, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1984, Blaðsíða 10
DV. FÖSTUDAGUR 3. FEBRUAR1984. Útlönd Útlönd Útlönd______________Útlönd Umsjón: Guðmundur Pétursson Englendingurinn Freddie Laker geröist í lok síöasta áratugar eins konar götusali farþegaflugsins. Með lítilli yfirbyggingu og því litlum reksturskostnaöi treysti hann sér til aö bjóöa upp á lægri flugfargjöld en nokk- ur hafði látið sig óra fyrir. Hugsjón hans var að „Skýjalestin”, flugfélag hans, mundi gera fleirum kleift að fljúga yfir Atlantshafið en fram til þess höfðu getað efnanna vegna. — Tókst honum það um hríð og var aðlaður fyrir framtakið af Breta- drottningu sjálfri. Sir Freddie setti upp aðalskrifstofu nýja félagsins í einu horni flugskýlis á ■ Gatwiek-flugvelli og byrjaði reksturinn 1977. Uppgangurinn sýndist mikill. En 1982 kom sir Freddie niöur á jörðina aftur, og neyddist til þess að lýsa fyrirtæki sitt gjaldþrota. Hann gat ekki staðið í skilum meö lánin sem tekin höfðu verið vegna allra flugvéla- kaupanna. Hann virtist hafa verið full- háfleygur í hugsjónum sínurri. Maðkur í mysunni Virtist og virtist. Sjálfur hélt hann því fram að fyrirtæki hans hefði verið leiksoppur samsæris stærri flugfélag- anna. Ymislegt er nú komið á daginn, sem þykir benda til þess að sir Freddie hafi þar haft töluvert til síns máls. Sýnist sem tvö stór bandarísk flugfélög ásamt nokkrum evrópskum flugfé- lögum hafi gert samsæri, sem miöaöi aö því að hrekja sir Freddie og, jSkýja- iestina” út úr samkeppninni. Það er sagt að gripið hafi verið til undirboða, og eins hafi lánardrottnar og kaupanautar sir Freddies verið kúgaðir til þess að láta af viðskiptum viðhann. Málið tekið fyrir í sjónvarpi Bandaríski sjónvarpsþátturinn frægi „60 minutes” tók málið nýlega til umf jöllunar og dró þar ýmislegt fram í sviðsljósið, sem við fyrstu sýn virðist styöja þessa samsæriskenningu sir Freddies. Ef þetta reynist rétt þá stríðir það gegn bandarískum lögum um hringamyndanir og óheiðarlega samkeppni. Sannist þetta fyrir dóm- stólum gæti sir Freddie vænst gífur- legra skaðabóta. Það mundi verða meira en nóg til þess að skapa honum annað tækifæri til aö hefja lággjalda- flug. Raunar er einmitt að þvælast fyrir dómstólunum í Bandaríkjunum mál sem skiptaráöendur „Skýjalestarinn- ar” hófu gegn stóru flugfélögunum. Svonefndur „stóridómur” í Washing- ton hefur einmitt til athugunar hvort tilefni sé til sakamáls gegn fiugfé- lögunum. Orrustan um N-Atlantshafsflugið Orrustan um Norður-Atlantshafs- flugið hófst eiginlega strax sumarið 1977, en það var áður en sir Freddie Laker hafði sent sína fyrstu skýjalest af staö í loftiö. Fulltrúar frá banda- rísku félögunum TWA og Pan Am ásamt fulltrúum frá British Airways munu hafa hist til fundar í Genf. Þeir komu sér saman um aö taka upp sér- stök fargjöld á biðfarseðlum (stand- by-tickets) til Bandaríkjanna. Far- gjöldin áttu að vera undir kostnaðar- verði. Þeir urðu einnig ásáttir um að taka aftur upp venjuleg fargjöld um leiö og sir Freddie neyddist til þess að hætta farþegaflutningum sínum, eins og þeir þóttust sjá fyrir. 1 fundarskýrslum frá þessum viðræðum kemur greinilega fram að þeir telja sér alvarlega ógnaö af samkeppni sir Freddies. Undir eölilegum kringumstæðum eru slíkar fundarskýrslur auðvitað haföar sem algert trúnaöarmál. I sjón-1 varpsþættinum á dögunum kom fram að skiptaráðendur hins gjaldþrota fyrirtækis sir Freddies höfðu, í krafti laga í Bandaríkjunum um aðgang að upplýsingum varðandi málsrannsókn- ir, eins og til dæmis gjaldþrotamáls, orðið sér úti um f undargerðirnar. „Þetar þetta átti sér stað trúðu menn því ekki enn að ég mundi gera al- Samsærið gegn Laker er að koma upp á yfírborðið Svo virtist sem sir Freddie Laker hefði verið fullháfleygur í hugmyndum sínum um lággjaldarekstur farþegaflugs ... en missti kannski stjorn a þroun mala fyrir samsæri eldn flugfeiaga. vöru úr hugmyndum mínum og hefja flugferðir,” segirsirFreddie sjálfur. Kreppan En hann kom þeim sem sé í verk og tókst aö láta fyrirtækið bera sig strax á fyrstu árunum. 1981 varö hann eins og aðrir fyrir barðinu á efnahagskrepp- unni, sem lagði viöskiptalíf víðast í heiminum í háifgerðan dróma. Þó kastaöi þá fyrst tólfunum þegar Pan- Am, TWA og British Airways lækkuðu fargjöld sín til samræmis við lággjöld Skýjalestarinnar. „Símarnir hættu strax að hringja um leið og það var tilkynnt,” sagði sir Freddie í s jónvarpsþættinum. Forstjóri British Airways játaði á þessum tíma í breska sjónvarpinu aö þessi fargjöld væru undir kostnaðar- verði og að ekkert flugfélaganna gæti haldið rekstrinum lengi gangandi með þessari verðlagningu. — En Freddie Laker telur sjálfur að hann hefði jafn- vel getaö spjarað sig af þessu, ef ekki heföi annað samsæri komið til um leiö. Hugsjón sir Freddies var að skapa fleirum möguleika á að ferðast flugleiðis yfir N-Atlantshafið en höfðu áður getað það efnanna vegna. Það gekk út á að spilla fyrir áætlunum hans um aö fá aðra til þess aö fjárfesta í fyrirtæki hans og leggja til meira fjármagn. Hótanir Það er sagt aö þar hafi komið við sögu fimm flugfélög evrópsk, sem hafi samt ekki ögrað sir Freddie opinber- lega, eftir því sem fram kom í s jónvarpsþættinum ofannefnda. Þau eiga að hafa haft í hótunum viö flugvélaverksmiðjurnar McDonnell Douglas um að segja upp viðskipta- samningum við þær, ef þær gerðu al- vöru úr því aö leggja Freddie Laker lið. Um það hefði einmitt samist milli verksmiðjanna og sir Freddies. Þannig lá í því máli að sir Freddie hafði pantaö fimm nýjar DC-tíur og tíu nýja A-300 loftstrætóa. Til þess haföi hann tekið 350 milljón dollara lán. Ætlunin var aö fljúga þeim á N- Atlantshafsleiðinni og 666 áætlunar- leiöum öörum í Evrópu, sem skaut evrópsku flugfélögunum mikinn skelk í bringu. — Þegar svo enska pundið féll í viðmiðun við dollar komst sir Freddie í mikinn vanda vegna þess að lánin voru í dollurum. Hann haföi ekki einu sinni uppí vextina. Því var samin björgunaráætlun, sem stóð og féll með aðstoð McDonnell Douglas-verksmiðjanna. Ve‘rk- smiðjumar gengust inn á að breyta 50 milljón dollara skuld Skýjalestarinnar við þær í hlutabréf hjá Lakerflug- félaginu og greiða honum að auki 8 milljónir dollara í reiðufé. Stutt gaman 1. febrúar 1982 var allt klappað og klárt og sir Freddie og lánardrottnar hans gerðu sér glaöan dag í London til þess að fagna batnandi tíð með blóm í haga. Daginn eftir streymdu inn.telex- skeytin í aðalskrifstofur McDonnell Douglas í Bandaríkjunum. Þau voru frá Lufthansa i V-Þýskalandi, KLM í Hollandi, Sabena í Belgíu, British Cale- donian í Bretlandi og Swissair í Sviss. 011 vísuðu þessi skeyti til samninganna milli McDonnell Douglas og Lakerflug- félagsins. — „Slíkt skref mundi eyðileggja okkar ágætu. viðskipta- tengsl sem verið hafa,” sagði í skeyti Swissair. Forstjóri British Caledonian lýsti því yfir að félagsstjórnin mundi banna öll viðskipti við McDonnell Douglas ef verksmiðjurnar réttu hjálparhönd „mesta niðurrifs-flugfélaginu á N- Atlantshafsleiðunum”. — Lufthansa kvaðst ekki reiðubúið til að „þola eitt ár til viðbótar og halda áfram eðlilegum viðskiptum við McDonnell Douglas”. Allt gekk eftir eins og til var sáð McDonnell Douglas lét undan þessum þrýstingi. Björgunaráætlunin fyrir Lakerflugfélagið féll um sjálfa sig. 5. febrúar lýsti sir Freddie félagið gjaldþrota. Þrem vikum síðar hækkuðu Pan- Am, TWA og British Airways fargjöld sín um 20% á leiðunum yfir N-Atlants- hafið. Lögfræðilegur ráðunautur banda- ríska fréttaþáttarins sagði í sjónvarpinu um hótanir evrópsku flug- félaganna fimm: „Ef hópur reynir að fá þriðja aðila til þess að sniðganga annan aöila sem hópurinn vill losna við þá stríðir það gegn lögunum. ” Hann áleit einnig að verðlækkanir stóru félaganna hefðu veriö ólöglegar, ef þær hafa veriö í því augnmiði að ganga af Laker-flugfélaginu dauðu. Ekkert þessara flugfélaga vildi senda fulltrúa í sjónvarpsþáttinn. Ef sir Freddie ynni málaferli gegn flugfélögunum gæti hann vænst hundr- aða mijljóna dollara í skaðabætur. Það geröi honum fært aö ljúka öllum skuldum við lánardrottna sína, þar á meðal þá 1400 farþega sem aldrei fengu endurgreidda farseðla sína. Og isamt mundi hann eiga þó nokkrar kringlóttar eftir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.