Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1984, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1984, Blaðsíða 11
DV. FOSTUDAGUR 3. FEBRUAR1984. 11 G AM/ VNA Ð i VIN INA M E1 DIÐI MREI Kl END UM’ k — segir Bjarni Þór Jónsson sem sér m.a. um ynningarstarfsemi fyrir Félag fslenskra iðnrekenda „Það er mikill hugur í þeim sem stunda iðnrekstur að standa saman,” segir Bjarni Þór Jónsson. DV-mynd E.Ö. Bjami Þór Jónsson, fyrrum bæjar- stjóri á Siglufirði og i Kópavogi, hefur veriö ráðinn fastur starfs- maöur hjá Félagi íslenskra iðnrek- enda. Hann mun m.a. sjá um aö auka tengsl milli félagsmanna, stjórnar og starfsliðs, auk þess sem hann mun sjá um ýmsa kynningarstarfsemi. Bjami Þór er þó enginn nýgræðingur hjáFII. ,,Eg byrjaði hjá félaginu í septem- ber 1982. Eg var þá ráðinn fyrst og fremst til að sjá um iðnsýninguna, annast undirbúning hennar og fram- kvæmdastjórn,” sagöi Bjarni Þór. Auk þess vann hann aö því að fá fleiri fyrirtækií raðir FII. „Við höfum gert átak í því aö kynna í hverju starf félagsins er fólgið, hvaða þjónustu við veitum og hvaða beinan hag fyrirtækin gætu haft af því að gerast félagar. ” Starf þetta hefur gengiö mjög vel. Félagsmönnum FII hefur fjölgað úr 180 árið 1982 upp í um 270 í dag. Ekki vill Bjami Þór nú samt meina að þetta sé beinn árangur af hans starfi. „Þaö virðist vera mjög mikill hugur í þeim sem stunda iönrekstur að standa saman. Við héldum fundi um iönaöarmál í hverju kjördæmi í haust og þeir voru vel sóttir. I kjölfar þeirra hefur f jöldi fyrirtækja sótt um aðild að Félagi íslenskra iðnrek- enda,”sagði hann. Stærsta málið sem er á borði hans þessa dagana er undirbúningur að þátttöku íslenskra fyrirtækja í sjávarútvegssýningu sem breskt sýningafyrirtæki ætlar að halda hér í haust. Meöal annarra verkefna sem framundan eru er kynning á vöru- skrá sem hefur verið í undirbúningi í eitt og hálft ár. A skrá þessari verða öll fyrirtæki innan félagsins og síöan nákvæm sundurliðun á því sem þau framleiða. — Hvernig kanntu svo viö þig í þessustarfi? „Alveg ljómandi vel. Það er gaman að vinna með iðnrekendum og það er góður starfsandi á skrif- stofunni.” — Er enginn barlómur í mönnum? „Það er alltaf í einstaka fyrir- tækjum. Það er mismunandi hvemig þau standa, en í heild eru menn bjartsýnir.” — Nú varst þú bæjarstjóri bæði á Siglufiröi og í Kópavogi, voru þaö ekki viðbrigði að koma úr opinbera geiranum yfir í einkageirann? ,,Að sumu leyti, jú. Þaö er alltaf erfitt að vera bæjarstjóri þar sem þrír flokkar eru í meirihluta, eins og í Kópavogi, og þurfa að samræma mismunandi skoðanir. Það er erfiðara að vinna undir stjórn aöila sem eiga allt undir fylgi kjósenda en að starfa með iðnrekendum sem flestir eiga fyrirtækin sjálfir.” — Þú ert ekkert aö hugsa um að fara einhvem tíma aftur í sveitar- stjómarstörf? „Nei. Þetta var mjög góður skóli en ég hef ekki áhuga á að fara aftur í þau störf,” sagði Bjami Þór. Bjarni Þór er kvæntur Margréti Sigríði Jörgensen snyrtifræðingi sem nú er við framhaldsnám í London í föröun fyrir kvikmyndir, leikhús og sjónvarp. Þau eiga tvö börn, 17 ára og8ára. -GB. Sjúkrahús Suðurlands Selfossi auglýsir til umsóknar eftirtaldar stöður vegna opnunar nýrrar sjúkradeildar fyrir aldraða að Austurvegi 28 Selfossi: Ein staða hjúkraunardeildarstjóra. Sex stöður hjúkrunarfræðinga. Sex stöður sjúkraliða. Sex stöður starfsstúlkna (starfsstúlkur á deild: í ræstingar, eldhús og þvottahús). Umsóknarfrestur um stöðurnar er til 20. febrúar nk. Upplýsingar hjá húkrunarforstjóra Sjúkrahúss Suðurlands í síma 99-1300. ATHUGIÐ Vinsamlegast endurnýið eldri umsóknir. Umsóknareyðublöð liggja frammi í símavörslu sjúkrahússins. Framkvæmdastjóri. Auglýsing Vegna væntanlegra nýrra reglna um stjórn botnfiskveiöa 1984, vekur ráðuneytiðathygli útgerðarmanna á eftirfarandi: a) Útgerðum nýrra skipa og skipa sem verið hafa skemur að veiðum en 12 mánuði á tímabilinu 1. nóvember 1980 til 31. október 1983, mun samkvæmt hinum væntanlegu reglum, gefinn kostur á að velja aflamark eða sóknar- mark reiknað samkvæmt sérstökum reglum þar um. b) Hafi á árinu 1983 orðið eigendaskipti eða skipstjóraskipti á skipi án þess að það hafi skipt um eigendur, skal sam- kvæmt hinum væntanlegu reglum gefa útgerð þess kost á að velja meðalaflamark eða sóknarmark eins og um nýtt skip væri að ræða eða halda því aflamarki sem skipið ellegarfær. Utgerðum þeirra skipa sem svo er háttað um eins og að ofan greinir og gæta vilja hagsmuna sinna í þessu efni, er hér með gefinn kostur á aö gefa sig fram við ráðuneytið fram til 10. febrúar nk. og kynna sér þá kosti sem þær hafa um að velja. Þær verða síðan að tilkynna ráðuneytinu val sitt, a.m.k. til bráðabirgða fyrir 17. febrúar nk. Einnig þarf sjávarútvegs- ráðimeytinu að berast vottorð fógeta eða annars sambærilegs aðila til staöfestingar um eigendaskipti og vottorð lög- skráningarstjóra til staöfestingar um skipstjóraskipti sam- kvæmt ofanskráðu. 2. febrúar 1984. Sjávarútvegsráðuneytið, 2. febrúar!984. FÖSTUDAGSKVÖLD íí-t. IJI5 HÚSINUI í JI5 HÚSINU OPIÐ í ÖLLUM DEILDUM TIL KL. 8 í KVÖLD Þorramatur Beintúr JLgrillið Grillréttir allan daginn , í úrvali. Munið okkar kjötborðinu á þorranum: vinsælu heitt saltkjöt. Réttur dagsins: þorrabakka. svið og rófustappa. . - 1 kl. 12-14. OPIÐ Á MORGUN, LAUGARDAG, KL. 9-16. Munið okkar hagstæðu greiðslu- skilmála J|1 /A A A A A A *■ >. , a i zi- ,juiiíj:j.i |-J{p Jón Loftsson hf Hringbraut 121 Sími 10600 TAKIÐ MEÐ SKYNDIBITA Á GRÍSKAVÍSU Hakkað nauta- og kindakjöt PVDAC með hrásalati og pítu. VJI I nUO Verð kr. 70.- GROJL Laugavegur 126 Stmi 24631 T*

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.