Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1984, Blaðsíða 17
DV. FÖSTUDAGUR 3. FEBRUAR1984.
25
óttir
íþróttir
íþróttir
íþróttir
íþróttir
Vegna íslendingsins
hefur Stuttgart nú
mesta sigurmöguleika
— Asgeir Sigurvinsson sveif lar stjómarsprotanum hjá þýska liðinu
„Kaup Bayern Miinchen á Ásgeiri
Sigurvlnssynl voru talln mikil mistök.
En hjá VFB Stuttgart sveiflar hann
stjómarsprotanum og félagið hefur nú
besta möguleika til að vinna sinn
fyrsta melstaratitil í vestur-þýsku
knattspymunni frá því 1952. Og það er
vegna íslendingslns sem Stuttgart hef-
ur mesta möguleika,” skrifar Klaus
Söndergaard í Fodboldmagasinet í
Danmörku. Sex dálka grein í blaðinu
um Stuttgart og þar er langmest skrif-
að um Ásgeir. Birt mynd af honum,
einum leikmanna.
Það eru meira en 20 ár frá því Stutt-
gart vann meistaratitilinn. Síðustu sex
leiktimabilin hefur liðiö náð góðum
árangri en orðið að horfa á eftir titlin-
um annaðhvort til Hamburger SV eða
Bayem Miinchen. Einfalt að benda á
skýringuna. Það lék glæsilega gegn
lakari liðunum en leikmenn höfðu ekki
trú á sjáifum sér í uppgjörum við
sterkustu liðin. Þetta hefur breyst á
þessu leiktímabili. Sigrar gegn
Hamburger, Bayem og Werder
Bremen.
Liðið hefur góöan markvörð, Föster-
bræðurna í vörninni og stórefni þar
eins og Hans-Peter Magan og Guido
Buchwald. Miðjumennirnir mjög
snjallir, Kurt Niedermayer, Ásgeir
Sigurvinsson, Karl Allgöwer og
„gamli” Hermann Ohlicher. I framlín-
unni Dan Comeliusson (Svíi), Walter
Kelsch og Peter Reichert. Engar stór-
stjömur mundi einhver ef til vill segja.
I Stuttgart telja þeir sig þó hafa eina
stórstjörnu, tslendinginn Ásgeir Sigur-
vinsson, og hann er þýðingarmesti
leikmaöur liösins.
Mistökin hjá
Csernai -
Þá er ferill Asgeirs rakinn í danska
blaðinu og sagt frá því þegar hann var
keyptur frá Standard til Bayern fyrir
mikla peninga. Þjálfarinn þar, Pal
Csemai, var á móti honum. Eftir tvo
mánuði sagði hann að kaupin á Asgeiri
hefðu verið jafnmisheppnuö og kaupin
á Kalle Del’Haye. En mistökin lágu
einmitt hjá Csemai sjálf um.
Bayem á eftir að gjalda þeirra,
Csemai var rekinn og er nú í Grikk-
landi. Ásgeir hafði engan hug á þvi að
vera „vatnsberi” fyrir Paul Breitner,
leikstiH hans er ekkert í þá áttina.
Ásgeir fór til Stuttgart fyrir 1,3
milljónir marka (ásamt Nieder-
mayer) og margir voru hissa á að svo
miklir peningar voru greiddir fyrir
leikmann, sem hafði verið „fiasko” hjá
öðm stórliði.
En þjálfarinn Benthaus vissi hvað
hann var að gera. Hann eftirlét Ásgeiri
stjómarsprotann á miðjunni og hljóm-
sveitin lét vel að stjórn. Ásgeir fann sig
ekki í hinu kalda andrúmslofti hjá
Bayem, bæði andlega sem á knatt-
spymusviðinu. Sagt er aö hann hafi
lært meira í þýsku á einum mánuði hjá
Stuttgart en heilu ári hjá Bayern. Þar
mætti hann velvild og skilningi — eftir
frystinguna hjá Bayem.
Kom í stað Miiller
Asgeir var keyptur til Bayem til að
fylla gatið sem Hansi Miiller skildi
eftir sig þegar hann fór til Inter
Milano. Leikstíll þeirra er svipaður.
Aðal Ásgeirs er hnitmiðaðar, langar
sendingar, 30—40 metrar. Hann hefur
mikla yfirsýn á leikvelli, — kann einn-
ig að halda knettinum og minnka
hraöann þegar það er nauðsynlegt. Oft
sér maöur þrumuskot frá honum. Eina
vandamál hans em slæmir ökklar og
hann hefur orðið að fara í uppskurði.
Haustið 1982 missti hann af 11 leikjum í
Bundesligunni. Það var slæmt fyrir
'Stuttgart sem aðeins fékk 12 stig úr
[þeim. Sl. sumar varð hann aftur að
gangast undir uppskurð og þaö var
fyrst eftir að leiktimabilið hafði staðiö
í mánuð að hann tók aftur við sínu yfir-
burðahlutverki. Aftur dæmigert fyrir
liðið að það náði sér fyrst virkilega á
strik frá því augnabliki sem Ásgeir
kommeðáný.
En auðvitað er Asgeir ekki eina
ástæðan fyrir velgengni Stuttgart. Dan
Corneliusson hefur gert þaö gott og
fann strax vin og stuðningsmann þar
sem Ásgeir var þegar hann kom til
Stuttgart. En meiðsli hafa h'ka sett
strik í reikninginn hjá Svíanum. Síðan
fjallar danski blaöamaðurinn vítt og
breitt um aðra leikmenn Stuttgartliðs-
ins og ef til vill komum við nánar að þvi
síðar.
hsím.
Ein insgesamt starker VfB mít zwei glánzenden
„Nordlichtern' úberrannte die harmlosen Lauterer
„Sigi“ foppte
wie er wollte
VfB Stuttgart — 1. FC Kaiserslautem
5:1 (2:0)
VfBStuttgart: Trainer: Benthaus
Roleder (2)
Schafer(í) Makan(2) Buchwald(2)
Niedermayer (3) Ohlicher(3) Allgöwer(3) Sigurvinsson (1) Zietsch (3)
Reichert (3) Corneliusson (2)
Ásgeir Sigurvinsson — maður dagsins í V-Þýskalandi.
.Brasilíumaðurinn frá Islandi’
Ásgeir f ær f rábæra dóma, en Hans-Peter Brigel meðaumkun
Það er að bera í bakkafulian lækinn
að segja frá snilldarleik Asgeirs Sigur-
vinssonar með Stuttgart gegn Kaiser-
slautern um sl. helgi, þar sem við erum
búnir að segja ítarlega frá frammi-
stöðu hans í leiknum. Við gátum þó
ekki setið á okkur þegar vlð sáum lof-
samleg ummæli um Ásgeir í v-þýska
knattspyrnutimaritinu „Kicker”.
Þar segir að þeir knattspymuunn-
endur sem sátu heima hjá sér í Stutt-
gart þegar félagið vann Kaiserslaut-
ern 5—1, geti nagað sig í handarbökin
fyrir að hafa misst af „Sigi-Super-
show”, en leikur eins og hann hafi sýnt
sæist ekki á hverjum degi í V-Þýska-
landi.
Blaðið segir aö menn hafi haft
meðaumkun með v-þýska landsliðs-
manninum og fyrrverandi tugþrauta-
keppa Hans-Peter Brigel, sem átti að
hafa gætur á Asgeiri. Ásgeir vissi af
því fyrir leikinn og hélt hann sig alltaf í
námunda við Brigel, en í 90 mínútur
hafi Ásgeir alltaf verið minnst einu
skrefi á undan Brigel og notað sér það
forskot til hins ýtrasta.
— „Asgeir lék sinn besta leik með
Stuttgart og hvaða knattspymumaður
í V-Þýskalandi hefur yfir að ráða eins
mikiili getu, skotkrafti og snilldar-
sendingum af 40—50 m færi og
hann? Sendingum sem ruglar alla
vamarleikmenn í ríminu. Hann er frá-
bær knattspymumaður — „Brasilíu-
maöurinn frá Islandi”, segir blaðið
sem útnefndi Ásgeir mann dagsins.
Ásgeir var fljótur að gefa skýringu á
góöum leik Stuttgart, hann sagði: —
„Við höfum æft mjög vel eftir vetrar-
fríið og eftir tvo leiki em þær æfingar
að koma í gagniö. Krafturinn er mikill
hjá okkur og við höfum nú mjög gaman
af því að leika knattspyrnu,” sagði
Asgeir, sem einnig var valinn i lið vik-
unnar hjá Kicker — hann fékk hæstu
einkunnargjöf, einn — sem þýðir
frábær. -SOS.
Franke (3)
Eintr. Braunschweig
Kaltz(3)
Hamburger SV
Herget(8)
Bayer Uerdingen
Dickgiefler(l)
Waldhof Mannheim
Scháfer (3)
VfB Stuttgart
Borchers(1)
Eintracht Frankfurt
Tripbacher(l) • Sigurvinsson (4)
Eintr. Braunschweig VfB Stuttgart
M.Rummenigge(l) Corneliusson (2) Schreier(3)
Bayern Miinchen VfB Stuttgart VfL Bochum
In Klammern die Anzahl der Berufungen in die „Elf des Tages'.
Lið vikunnar hjá Kicker. Þetta er i fjórða skipti, sem Ásgelr er útnefndur í liðið í vetur.
Fjögur heimsmet
settíMilano
Sovéskir frjálsíþróttamenn settu tvö ný
helmsmet i frjáisum iþróttum inuanhúss í
iandskeppni Italiu, Sovétríkjanna og Spán-
ar. Igor Pakling stökk 2.36 metra í hástökki
en eldra heimsmetið átti landi hans
Vladimir Yaschenko, sett 1978. Sergel
Bubka bætti elglð heimsmet í stangarstökki
um etnn sentimetra. Stökk 5.82 m en þessi
tvítugi piltur, sem varð heimsmeistari í
Helslnki sl. sumar, stökk 5.81 m á móti 15.
janúar si.
Tvö önnur heimsmet innanhúss voru sett á
mótinu, sem háð var i Milano i fyrrakvöld,
Gluliana Salce, Italiu, setti heimsmet i 3 km
kappgöngu kvenna. Gekk á 13:08.09 mín. en
eldra heimsmetið átti Mla Kjölberg, Noregi.
Það var 13:24.00 min., sett í febrúar 1981.
Sveit Italiu setti heimsmet í 4 X 200 m
boðhlaupi karla. Hljóp á 1:25.42 min., sett
1982. -hsím.
Víkingur
áAkureyri
FH og Valur hafa tryggt sér rétt tii að
leika í fjögurra liða úrslitakeppninni um
Islandsmeistaratitilinn. Fjögur féiög
berjast um hin tvö sætin — Víkingur,
Þróttur, KR og Stjaman.
Tveir leikir verða leiknir í 1. deildar-
keppninni í handknattleik í kvöld. KA fær
Víkíng í heimsókn á Akureyri og Stjaman
leikur gegn Haukum i Kópavogi. Báðir
lelkimir hefjast kl. 20. FH leikur gegn KR í
Hafnarfiröi á morgun kl. 14 og Þróttur leikur
gegn Val á sunnudaginn kl. 20.15.
Hér fyrir neðan má sjá hvaða leiki félögin
eiga eftir að leika — H eru heimaleikir og U
eru útileikir.
Félögin eiga eftir að leika eftirtalda leiki í
1. deildarkeppninni:
FH: KR(H), Valur(U) og Haukar(H).
Valur: Þróttur(U), FH(H) og Víkingur(U).
Víkingur: KA(U),KR(U) ogValur(H).
Þróttur: Vaiur(H), Haukar(U) og
Stjaman(H).
KR: FH =4U), Víkingur(H) ogKA(U).
Stjaraan: Haukar(H), KA(H) og
Þróttur(U).
Haukar: Stjaman(U), KA(H), Þróttur(H)
ogFH(U).
KA: Víkingiu-(H), Stjaman(U), Haukar(U)
ogKR(H).
Síðasta umferð 1. deildarkeppninnar
verður leikin 18.—19. febrúar.
Hart barist
íNjarðvík
Fjórir leikir verða leiknir í úrvalsdcildinni
í körfuknattleik um helgina. Slagurinn hefst
í Njarðvík i kvöld kl. 20, en þá fá helmamenn
Keflvíkinga í heimsókn. Njarðvíkingar hafa
alltaf átt í miklum erfiðleikum með Kefl-
víkinga.
Þrír leikir verða leiknir á sunnudaginn.
Haukar mæta Njarðvíkingum í Hafnarfirði,
KR leikur gegn Val og iR-ingar leika gegn
Keflvíkingum.
Snarsnerist
HK íhag
Þaö stefndi í fyrsta sigur Fram yfir HK í
1. deild karla í blaki þegar leikurinn snar-
snerist. Fram haföi náð 2—1 forystu í Haga-
skóla í gærkvöldi, tapað fyrstu hrinu naum-
lega 12—15 eftir 12—9 forskot en unnið næstu
tvær hrinur, 15—8 og 15—7.
Fjórða hrinan varð sem martröð Fram-
ara. Leikur liðsins hrundi um leið og HK-
menn náöu einbeitingu. Þeir sigmöu 15—2
og unnu svo úrslitahrinuna 15—6. HK stóð
því uppi sem sigurvegari, 3—2.
Samúel örn Erlingsson, Páll Olafsson og
Hreinn Þorkelsson voru bestir hjá HK.
Haukur Magnússon stóðsíg best Framara.
Karla- og kvennaliö Þróttar áttu ekki í
vandræðum með Víkingsliðin, sigraðu bæði
3—0. Kvennaliöiðvannl5—12,15—lOoglð—
9. Karialiðið vann 15—11,15—4ogl5—9.
Einn leikur fór fram í bikarkeppni Blak-
sambandsins. 1S vann Þrótt Neskaupstað
3-0:15-5,15-12 og 15-6.
-KMU.
óttir
(þróttir
(þróttir
Iþróttii
(þróttir