Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1984, Side 1
STARFSMADUR LANDS-
BANKANS JÁ TAR ÞÁ TT-
TÖKUl BANKARÁNINU
William James Scobie hetur ásamt
nítján ára pilti játaö aö hafa rænt
tæpum tveimur milljónum króna frá
starfsmönnum ÁTVR viö útibú
Landsbankans aö Laugavegi 77
föstudagskvöldið 17. febrúar síöast-
liöinn. Ljóst þykir aö William framdi
sjálft rániö. Ekki er vitað nákvæm-
lega meö hvaöa hætti nítján ára
pilturinn tengist ráninu. Hann er
starfsmaöur Landsbankans við
Laugaveg 77 og hóf þar störf
mánudaginn 13. febrúar, aöeins
fjórum dögum fyrir rániö. Hagla-
byssan sem notuö var viö rániö er
fundin og 950 þús. af ránsfénu.
Samkvæmt heimildum DV ætlaði
pilturinn aöeins aö vinna í stuttan
tíma í bankanum. Vitað er að hann
hugöist fara til Svíþjóðar innan
skamms og var búinn aö veröa sér
úti um ferðaskjöl. Hann haföi keypt
gjaldeyri nýlega í bankanum fyrir
um 40 þúsund krónur.
Pilturinn var handtekinn í Oðali
síöastliöiö sunnudagskvöld. Hann
var strax færöur til yfirheyrslu og
mun hafa játaö aðild sina að málinu.
1 gærkvöldi var hann úrskuröaöur í
gæsluvaröhald til 14. mars.
Haglabyssan, af geröinni
Winchester, fannst eftir ábendingu
þeirra í sjó í Kópavoginum í gær-
morgun. Hún var afsöguð.
Margt er enn óljóst í þessu máli.
Þannig er hlutur feðganna sem eru í
gæsluvaröhaldi enn óljós.
Samkvæmt áreiöanlegum heim-
ildum telur bróöirinn sig hafa góða
fjarvistarsönnun. Þá er vitaö að
fleiri fjölskyldumeölimir hafa einnig
verið yfirheyröir. Meöal annars
móöirin og systur þeirra bræöra.
William bjó í Breiðholti. Húsleit
var gerö í íbúö hans og þar munu
meðal annars hafa fundist lambhús-
hettur, grifflur, úlpa og skófatnaður,
sem koma heim og saman viö
lýsingu sjónarvotta að báðum
ránunum.
Þá hafa fundist 950 þúsund af ráns-
fénu við húsleit og unnið er aö því að
endurheimta afganginn. William
hefur enn ekki viðurkennt þjófnaöinn
úr útibúi Iönaöarbankans í Drafnar-
felli en hann er sterklega grunaöur
um aö hafa verið þar að verki.
Þess má geta að nítján ára pilt-
urinn sem játaö hefur á sig aöild aö
ráninu var i veitingahúsinu Holly-
wood á föstudagskvöld. Vitaö er aö
hann spurði þar ákveöna menn um
rániö og hvort þeir vissu hverjir
heföu veriö handteknir. Hann spuröi
meöal annars hvort nöfn þeirra byrj-
uöuáákveönumstöfum. -JGH/GB.
Witliam Scobie, sem nú hefur játað á sig ránið fyrir framan útibú Lands-
bankans á Laugavegi 77þann 17. febrúar síðastliðinn, sést hér færður i
húsakynni Sakadóms þar sem gæsluvarðhaldsúrskurður var kveðinn
upp yfir honum isiðustu viku. D V-mynd S.
Bankaræninginn
spurðist fyrir um peningaf lutningana:
Hélt að þetta
værí saklaust
r
— segir fyrrum starfsmaður ATVR sem kom
lögreglunni á sporið
Þetta er Winchester haglabyssan sem notuð var við ránið fyrir framan útibú Landsbankans. Hlaupið hefur
verið sagað afhenni.
„Eg kynntist William í sumar. Þaö
var svo fyrir nokkrum vikum sem
hann kom til mín og fór að spyrja
mig um peningaflutningana. Eg hélt
auövitað aö þetta væri allt ósköp sak-
laust og viö ræddum því lítillega um
þessimál.”
Þetta sagði fyrrum starfsmaður
ÁTVR við Lindargötu í samtali viö
DV í morgun. Þaö var síöastliðinn
miövikudag sem hann fór til rann-
sóknarlögreglu ríkisins og tilkynnti
um þetta samtal sitt við WilUam.
Daginn eftir, eða síödegis á
fimmtudag, var WiUiam síðan hand-
tekinn ásamt fööur sínum og bróður
á leið til New York í Bandaríkjunum.
— Varstu hissa, þegar þú fréttir
að WUUam heföi verið handtekinn?
„Já. Eg var þaö í rauninni. Eg
taldi samtal okkar alltaf þaö sak-
laust en fannst þó ástæöa til aö láta
lögregluna vita af þvi.”
-JGH
Piltamir fund-
ust í bílnum
I gærkvöldi var óttast um tvo pUta,
sem farið höföu frá tR-skálanum í
HamragUi og ætluöu tU Reykjavíkur.
Voru þeir á Utlum bíl og töldu sig geta
komist á honum alla leið þrátt fyrir aö
veöur væri mjög slæmt.
Þegar þeir voru ekki komnir í bæinn
klukkan tvö í nótt voru félagar úr
björgunarsveitinni Ingólfi kaUaöir út
og fóru þeir af staö í snjóbíl tU aö leita
aöpUtunum.
Oku þeir fram á þá um einn kiló-
metra frá þjóðveginum en þar höföu
þeir ekið út af og fest bílinn. I þeirri
stööu gerðu þeir það eina rétta. Þeir
ákváöu aö bíöa í bUnum þar til þeir
fyndust eða veðrið gengi niöur.
-klp-
Félagar úr björgunarsveitinni Ingólfi
koma i bæinn í nótt eftir að hafa fundið
tvo pUta sem óttast var um í veðrinu
mikia sem gekk yfir í gærkvöldi og
nótt.
DV-mynd S.