Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1984, Side 10
10
DV ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRUAR1984
wmm.
zmmmM
' 'y' / 'Á
■
imtnMfM
'\v#s%ý'?ýý/
Sliil
• V. .*...
í;
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Valdklifur Témenkos
Þegar sviðsljósiö tók aö beinast
aö Konstantín Térnenko á nýjan leik
mundu diplómatar vel eftir honum.
Hann var þessi þarna tæplega sjöt-
ugi maður sem fylgdi Brezhnev
hvert fótmál. Hélt á pappírunum
fyrir hann, hellti drykkjarvatni í
glas hans og sá um aö tæknibrella
vindlingaveskis leiötogans skammt-
aði honum tilskilda fimm vindlinga á
dag. Þeir fá naumast trúaö því aö
þar sé kominn leiötogi Sovétríkjanna
ídag.
Fyrst þegar Térnenko kom fram
opinberlega eftir leiötogaskiptin jók
hann ekki mikið álit sitt út á viö í
þessu tilliti. Viö útförina gat nýi leið-
toginn naumast lyft hendi í heiöurs-
kveöju og hann rak í vörðurnar þeg-
ár hann flutti ræðu sína.
En þrennt skyldu menn hafa í
huga áöur en þeir afskrifa sem ein-
hvern aukvisa þennan síökomna arf-
taka Brezhnevs.
I fyrsta lagi hefur aldrei neinn
minnimáttar í pólitíkinni í Sovétríkj-
unum komist í æðstu valdastöðu eöa
haldiö sér þar. Það sem viðgekkst
hjá Goðmundi kóngi á Glæsivöllum
var hreint barnagaman miðaö viö
aðferðir þeirra í Sovétríkjunum. I
ööru lagi er það fáheyrt í Sovétríkj-
unum aö maöur lendi þar undir í
valdatogstreitu og nái samt aö rísa
upp aftur eins og Témenko gerði eft-
ir aö hafa beðið lægri hlut fyrir
Andropov um leiðtogasætiö 1982. Að
síðustu má svo rif ja upp aö á sínum
tíma þótti engum á Vesturlöndum
neitt sérstakt til Stalíns og Krúsjeffs
koma þar til þeir sýndu fram á ann-
aö.
Konstantín Térnenko fæddist 1911
og þá fjarri glæsivöllunum í Kreml.
Það var í afskekktu þorpi í Síberíu,
Tolshaya Tes, sem er 70 mílur frá
næstu járnbrautarstöð og 300 mílur
frá Krasnyoarsk, sem er höfuöstaður
heimahéraös hans. (Krasnyoarsker
2500 mílur frá Moskvu.) Foreldrar
hans voru örsnauðir og móðir hans
dó þegar Térnenko var enn aöeins
smábarn. Hann hætti skólagöngu
tólf ára og fór aö vinna hjá einum af
ríkari bændunum, kulak, en þeir
voru á valdatíma Stalíns síöar myrt-
ir í miUjónataU. Eina framhalds-
menntunin sem Térnenko hlaut var í
þjálfunarbúðum flokksins og í bréfa-
skóla fékk hann kennararéttindi,
oröinn 42 ára gamaU.
Þjálfun hans var öll innan flokks-
apparatsins. Hann gekk í ungliða-
samtökin, Komsomol, aðeins 15 ára
og 18 ára hafði honum veriö faUn
áróðursútbreiðsla og æsrngar í
heimahéraðihans. Þegar frá eru tal-
in þrjú ár í landamæravörslu (sem
nú er í höndum KGB) starfaði hann
að slíku næstu tvo áratugma.
Abyrgðarmesta starfiö sem hann
gegndi á árunum 1941 til 1943 var
erindrekstur flokksUis í Krasnoy-
arsk þegar þangaö streymdu þús-
undir flóttafóUis. Þar á meðal marg-
ir eyjaklasafangar. EftU- stríð tók
hann aftur tU við áróðursstörfin,
fyrst í Uralfjöllum og síðan í Molda-
víu og viö Svartahafið. Það var þar
sem hin örlagaríku kynni hans við
Brezhnev hófust 1950 en þá var Brez-
hnev nýorðinn framkvæmdastjóri
hjáflokknum.
Þaðan í frá var feriU þeirra flétt-
aður saman. Brezhnev hélt tU
Moskvu 1956, tveim árum eftir dauöa
Stalins, og Térnenko fór með honum
til aö annast upplýsingamiðlun um
ÖU Sovétríkin. 1960 var Brezhnev
kosmn forseti æðsta ráðsUis (þings-
ins) með Krusjeff og lét Témenko
taka við framkvæmdastjóraskrif-
stofu sinni. Þegar Brezhnev hafði
heppnast aö þoka Krúsjeff frá völd-
um umbunaöi hann Térnenko með
stjórn hinnar aUnennu skrifstofu
miðstjómar flokksins. Þar hafði
Témenko hönd í bagga með hverjum
hlotnuðust viðtöl við ráöamenn og
hvert pappU-sflóðið streymdi upp á
efri þrepin í Kreml.
Um þær mundir sigldi Térnenko
hraðbyri upp á við. 1976 varð hann
fullgUdur ritari í miðstjórninni (eUin
af aðeins 12) og 1977 varafuUtrúi í
stjórnmálanefndmni en síðar fuU-
gildur fulltrúi, svo að hann varð einn
af örfáum æöstu valdamönnum Sov-
étríkjanna.
Flestir litu þó á Térnenko sem
skugga Brezhnevs. Sá sem hjálpaði
honum í frakkann, sem ýtti til hans
skjölum tU undirskriftar. Þegar
hann sjálf ur tók tU máls á opinberum
vettvangi þótti honum mælast hræði-
lega. Hann hikstaði á erfiðustu
tækniorðunum og fyrir kom á fund-
um með mikilvægum erlendum gest-
um aö hann hreinlega þagði þunnu
hljóði.
Þeir annmarkar virtust þó ekki
standa Témenko fyrir þrifum í aug-
um Brezhnevs sem hafði hann hiö
næsta sér í hópi „hirömanna” sinna.
Þegar forsetinn var við sæmilega
heilsu lét hann fá tækifæri ónotuð tU
þess að hygla þessum fylgisveini sín-
um og þegar hann var forfaUaöur
vegna veikinda notaði Tér-
nenko aöstööuna sem valinn fuUtrúi
Brezhnevs til þess aö ota sinum tota.
En það var á brattann að sækja
þrátt fyrir dyggan stuöning Brez-
hnevs. Témenko hafði þríþætta and-
stöðu við að etja. Þaö var Andropov,
þessi voldugi og umbótasinnaði for-
stöðumaður KGB. Þaö var Andrei
Kirilenko, annar fylgisveinn Brez-
hnevs, sem þokast hafði aftur úr, en
þótti af öörum hafa miklu meira til
brunns aö bera en þessi Utilþægi Si-
beríumaöur. Og það vora aUir hinir
sem öfunduðust yfir velgengni Tér-
nenko er þeim fannst hafa sleikt sig
upp við Brezhnev allar götur upp í
æðstu stööur. En Témenko hræddist
engan þeirra og atti ótrauður við þá
kappi. Ef Brezhnev hefði notið við
örfáum mánuðmn lengur hefði hon-
um jafnvel tekist að hreppa leiðtoga-
sætið í fyrstu tUraun.
Togstreitan hófst fyrir alvöra í
febrúar 1981. Témenko hafði annast
undirbúning 26. flokksþingsins og
tekist að koma hlutum þannig fyrir
aö Andropov fékk naumast nokkum
tíma komist í ræðustóUnn. Kirilenko
þokaði hann úr þriðja stæði niður í
þaö f jóröa út frá virðingarröðinni. Á
þessu gekk aUt það ár og alveg fram
að janúar 1982 þegar MihaU Suslov,
hugmyndafræðingur flokksins, and-
aðist. Hann hafði gegnt einhverju
mikilvægasta embættmu hjá Kreml-
bákninu.
Témenko lagði sig aUan fram um
að fá embætti Suslovs. Hann hafði
þegar getiö sér orö fyrir að vera af-
kastamikúl penni og hafði skUað af
sér þrem bókum, ótal ræðum og
endalausum blaðagreinum. Þeir
Andropov tóku að skylmast. Tér-
nenko tók að láta hin óUklegustu
mál, sem hann hafði aldrei áður gef-
iö sig út fyrir að hafa neina sérstaka
þekkingu á, tU sin taka. Jafnvelher-
mál og utanríkismál, matvælafram-
leiðsluna og fleira. Allt tU að sýna
hvevíðahann værivelheima. Hann
skopaðist aö ummælum Andropov
sem sagt hafði aö Sovétríkin þyrftu
„minna lýðræði og meiri aga”.
Brezhnev og Tihonov forsætisráð-
herra léðu Témenko atkvæði en
Gromyko, Ustinov, Kunaev, Gorbas-
jeff og Sérbitski gerðu það ljóst aö
þeir tækju engri hugmyndafræði-
legri tUsögn frá manni sem þeir
bæra í rauninni enga virðingu fyrir.
— Témenko og Andropov skiptu með
sér störfum Suslovs en Térnenko hélt
áfram að hlaöa undir sig þótt fráfaU
Brezhnevs í nóvember 1982 bæri aö
áöur en hann náði að rétta sig af.
Térnenko varð undir og venjan er
að það verði snöggt um hina sigruðu í
valdatogstreitunni í Sovétríkjunum.
En annaðhvort gat Andropov ekki
eða vUdi ekki ganga mUU bols og höf-
uðs á keppinaut sínum. Hann tók að
vísu af honum hans gamla starf hjá
miðstjórninni en lét honum eftir hug-
myndafræðimiðlunina að minnsta
kosti hvaö varöaði daglegan rekstur.
I heUan mánuð haföi Témenko
hægt um sig, og lá enda veikur í
flensu um hríö, en um miðjan maí í
fyrra var hann kominn á fuUa ferð
meöal annars meö ódulda gagnrýni á
stefnu Andropovs í ýmsum smáatrið-
um. I Kreml héldu menn niöri í sér
andanum og biðu þess að eldingu
lysti niður í Térnenko. Þess í stað
var honum boðið að flytja eina af
aðalræðum ársins, júníávarpið á árs-
fundi 300 manna miðstjórnarinnar.
— Augljóslega var Térnenko aftur
kominn á toppinn. Tveim mánuðum
síðar kom Andropov fram opinber-
lega í síðasta sinn og eftir hálfsárs
þögn þess opinbera var tUkynnt um
andlát hans.
Gromyko, Ustinov og hinir aUir,
sem áður höfðu afskrifað Témenko,
flýttu sér aö sööla yfir og greiddu
honum einróma atkvæði tU að við-
halda óbreyttu ástandi innan valda-
klíkunnar og valdaskiptingarinnar
mUU „eldri mannanna” og „yngri
mannanna” í flokknum. Þeir síðar-
nefndu — MUihail Gorbasjeff (52
ára), Grigory Romanoff (61 árs) og
Vitaly Vorornikoff (57 ára) — urðu
að geyma sína innbyrðis samkeppni
tUbetritíma.
(Endursagt úr Sunday Times.)
Umsjón: Guðmundur Pétursson