Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1984, Side 11
DV ÞRIÐJUDÁGUR28' F EBíðjÁfíl9ÖÍ vn
11 •
„MARGIR HÉLDU
AÐ ÉG VÆRI
AÐALMAÐURINN”
— segir Jakob R. Möller, lögff ræðingur og
samninganef ndarmaður ÍSAL
Jakob Ragnar Möller, lögfræöingur
Isal, var mjög í sviðsljósinu í samn-
ingaviöræðum fyrirtækisins við starfs-
menn nú á dögunum. Hann er þó
enginn nýgræðingur á þessu sviði.
„Eg hef starfaö hjá Isal frá því um
haustiö 1970 og hef tekiö þátt í öllum
samningaviðræðum síðan,” sagði
hann í samtali viö DV.
Fram til ársins 1982 samdi
fyrirtækið alltaf beint við starfsmenn
án milligöngu ríkissáttasemjara. Þá
voru það stjórnarformaðurinn og for-
stjórinn sem leiddu viðræðurnar. Árið
1982 varð sú breyting á aö fleiri voru í
fremstu víglínu í sjö manna samninga-
nefnd fyrirtækisins. Því var eins farið
nú.
,,Síðan var það samkomulag innan
samninganefndarinnar aö ég yrði tals-
maður Isal við fjölmiðla og það er þess
vegna sem athyglin beindist óeölilega
mikið að mér. Margir héldu að ég væri
aðalmaðurinn en ég var þaö ekki í
raun,” sagöi Jakob.
— Hvernig kunnirðu við þaö að
standa í fremstu víglínu?
,,Eg kunni því ekkert sérstaklega
vel, né heldur illa. Þetta er starf sem
þurfti að vinna en það sem er mikil-
vægt er það sem fór fram í samninga-
viöræðunum.”
Jakob sagöi að þetta væru aö mörgu
leyti erfiðustu samningaviðræðurnar
sem hann hefði tekiö þátt í fyrir fyrir-
tækið. Þar hefði tímalengdin átt sinn
þátt og að tvisvar sinnum heföu menn
haldið að samkomulag væri aö nást
áður en endar náðu saman að lokum.
Aðalstarf Jakobs hjá Isal er að vera
ráðgefandi um samskipti við verka-
lýðsfélögin og starfsfólk fyrirtækisins.
-GB.
„Starf sem þurfti aö vinna," segir Jakob R. Möller sem var talsmaður
samninganefndar Ísal.
Tilkynning
um vanskilavexti
Frá og með mánudeginum 5. mars 1984 verða reiknaðir
vanskilavextir á öli vanskil við Rafmagnsveitu og Hitaveitu
Reykjavíkur. Gjalddagi er við útgáfu orkureiknings. Eindagi
er 15 dögum síðar og er hann tilgreindur á orkureikningi. Ef
eindagi er á laugardegi, sunnudegi eða á öðrum frídögum flyst
eindagi yfir á næsta virkan dag á eftir. Sé orkureikningur
greiddur eftir eindaga falla á hann vanskilavextir samkvæmt
vaxtaákvörðun Seðlabanka íslands.
RAFMAGNSVEITA REYKJAVIKUR.
RAKA-OG
LOFTHREINSITÆKI
Er þurrkur í hálsi og nefi?
Er rafmagn í teppum?
Er loftið þurrt og þungt?
BONECO rakatæki með rafmagnsblæstri, köldum
eða heitum, er lausnin.
Eigum einnig ódýra raka-bakka til að hengja á ofna.
BONECO RAKATÆKI
BONECO fæst
víða í verslunum.
Hljóðlaus.
Hreinsa loftið.
Einföld i notkun.
Hanta bœði fyrir heimilið og
vinnustaðinn.
Fvrir allt að 100 fermetra.
Heild sölubirgðir.
Gunnar Ásgeirsson hf.
Suóurlandsbraut 16 Sími 91 3520Ö
Ertu ekki búinn að
finna þaðennþá?
O0 °°
verið slæmt
að týna kvittun..
Hjá Pennanum finnur þú allt, sem
þarf til að skiþuleggja heimilisbók-
haldið, — möppur, geymslubindi,
tímaritagáma, gatara, límmiða,
teygjur, bréfaklemmur, o.s.fr.
Hjá Pennanum finnur þú allt, sem
þú þarft til að finna þína eigin
pappíra á augabragði.
Komdu og finndu okkur í Hallarmúla!
HALLARMÚL A 2