Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1984, Page 37
DV ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRUAR1984
37
Sviðsljósið . Sviðsljósið *Sviðsljósið
Olympíuleik-
ar í sn jó
Svisslendingar eru alvörugefin þjóð
og eiga sér ýmsar hefðir. Ein
er sa^"ppnl ujn þestu skúlptúra
gerða í snjó. Snjóskúlptúr sá sem hér
sést á myndinni á aö tákna væntanlega
ólympíuleika í Los Angeles á sumri
komanda: Dollaramerki á stalli og
Plútó að þefa af.
Svisslendingar eru alvörugefnir.
XENON
klœtt og skrýtt af Xenon
hárgreiðslumeistara frá
Pivot Point.
Rómantík og framúrstefna og allt
þar á iliilli var aö sjá í „sköpunar-
verki” hárgreiðslumannsins Xenon
of London — sem hér y»;- ”ýlégii.
starfar fyrir Pivot Point hár-
greiðsluklúbbinn í Bandaríkjunum,
ferðast um heiminn og sýnir listir
sínar.
Maðurinn er breskur, bjó í
Astralíu í mörg ár, þar sem hann rak
margar hárgreiðslustofur, og síðustu
átta árin hefur hann starfaö í Banda-
ríkjunum.
Hingað kom hann frá Evrónu á
— - - -r~ **
leið sinni vestur um haf á vegum
Pivot Point klúbbsins hér á landi.
Hann er virkilegur „sjómaður” —
var sagt þegar Pivot Point klúbb-
félagar og gestir þeirra fylgdust með
meistaranum. Hann er fær í sínu
starfi — en bætir við þá kunnáttu
með lifandi framkomu. Þannig
játuöu viðstaddir að maðurinn
sjálfur hefði veriö jafnmikið sýning-
aratriði og handbra®*1*
j( ... 0vr*v. nann
ivúppn, blés, sprautaöi og togaði í
hárið á módelunum. Hann boðaði
nýjan boðskap í hártískunni, sagöi að
nú ætti umgjörðin í kringum andlitið,
hárið, aö vera fyrirferðarmikið.
Einn lokkur stuttur, næsti langur,
þunnir og þykkir, svona næstum hlið
viö hliö á sama kollinum. Með það
hvarf Xenon á braut.
-ÞG.
Corne/is Vreeswijk hefur löngum
þótt sopinn góður — nú er hann
Helle Fastrup, 32 ára og þekkt leik-
kona i Danmörku, hýsir nú trúba-
kominn i bjórinn i Kaupmannahöfn. dorinn gamla.
Comelis Vreeswijck finnur hamingjuna og
nýja kærustu íKaupmannahöfn:
Munaði minnstu að illa
færi íNorræna húsinu
Eins og kunnugt er af fréttum hefur
sænsk-hollenski vísnasöngvarinn
Cornelis Vreeswijk flúið frá Svíþjóð,
þar sem yfirvöld voru að gera hann
sturlaðan meö skattheimtu sinni, og
situr nú í ró og næði við Kristjáns-
hafnarkanal í Kaupmannahöfn og
sýpur bjór með nýrri vinkonu sinni. Sú
heitir Helle Fastrup og er fimmtán
árum yngri en trúbadorinn sem verður
47 ára í ágúst. Þau hittust í Kristjaníu
þar sem Cornelis skemmti, Helle sat á
fremsta bekk og klappaði svo mikið aö
vísnasöngvarinn komst ekki hjá því að
sjá hana — þó er hún ekki nema rúmur
hálfur annar metri á hæð. Síðan hafa
þau haft það náðugt í ibúö Helle í
Dronningensgade rétt hjá Kristjaníu.
I sjálfu sér er þetta ekki svo afskap-
lega merkilegt nema þá fyrir þá sem
áhuga hafa á vísnasöngvaranum
Cornelis Vreeswijk. Og þeir eru
fjölmargir hér á landi ef miða skal við
ásókn þá sem var í miða á hljómleika
hans í Norræna húsinu fyrir rúmum 10
árum. Þá lá við aö biðraðir næðu upp
að aðalbyggingu Háskóla Islands áður
en Norræna húsið hafði opnað gáttir
sínar klukkan 9 að morgni. Fólk bók-
staflega slóst um miðana.... „starfs-
fólk hússins átti í vandræðum”, segir
húsvörður Norræna hússins frá
þessum tíma. Og hann heldur áfram:
„Verra var að Comelis bjó í öðru
gestaherbergja Norræna hússins og
þegar salurinn var orðinn þéttskipaður
fólki á fyrsta tónleikakvöldinu lét
trúbadorinn sig vanta. Eg fór út í
gestaherbergi, bankaöi kurteislega á
dymar og tjáði skáldinu að gestirnir
væm komnir í salinn og sestir. Hann
var ekki að hafa fyrir því að opna
heldur hreytti út úr sér einhverjum
ónotum og síðan heyrði ég eitthvað
skella á huröinni innanverðri, svona
eins og hálf viskíflaska væri að
brotna.”
Húsvörðurinn vissi ekki alveg
hvernig hann ætti að snúa sér í málinu,
var að hugsa um að stiga á svið og til-
kynna þeim fáu útvöldu sem tekist
haföi aö krækja sér í miöa að Cornelis
væri týndur en þaö hefði einfaldlega
þýtt að allir hefðu farið að leita með
logandi ljósi í mýrinni þarna í grennd.
„Það varð úr að ég gerði aðra til-
raun, bankaði kurteislega á dymar hjá
skáldinu og bjóst við hinu vesta. En
viti menn. Upp lukust dyr og á miðju
gólfi stóð þessi stóri maður innan um
tómar flöskur, reigði sig litillega og
gekk síðan í salinn eins og ekkert hefði
ískorist. Það sást ekki á honum vín og
þetta urðu skemmtilegir tónleikar,”
sagði húsvöröurinn að lokum.
-EIR.
Meistarinn Xenon sprautar og blœs hór módelsins.
Honum er fleira til lista lagt en að klippa þunna og
þykka lokka . . .
. . . hann hannar líka föt
módelanna og tekur
jafnvel létt dansspor í
kringum dömurnar við
vinnuna. Þetta módel var
AUÐUNN 46 ARA
Sá þriðjudagur sem við lifum í dag er sérstakur á
margan hátt. Svo dœmi sé tekið þá á hann Auðunn
blaðasali 46 ára afmœli og má með sanni segja að fáir
jafnaldrar hans hafi selt jafnmörg dagblöð í Reykjavík
og hann hefur gert í gegnum árin.
„Hann verður að heiman í dag, ” er oft sagt um af-
mœlisbörn kornin á miðjan aldur en slíkt á tœpast við
um Auðun. Hann stendur sína vakt og lœtur ekki ald-
urinn á sig fá frekar en veður og vind.
SVIÐSLJÓSIÐ óskar afmœlisbarninu til hamingju
um leið og það hvetur hann til enn frekari dáða í
starfsgrein sinni.
HEIMSLJÓS
Verkfall prófessora
Allar líkur benda til að 171
háskólum i Fiunlandi verði lokað
í aprílmánuði nk. ef prófessorar j
láta verða af hótunum sínum um
að fara í verkfall fái þeir ekki j
kauphækkun. Hér er um að ræða
15.000 prófessora sem scgjast
hafa orðið fyrir 30% kjaraskerð-1
ingu síðan 1970. Byrjunarlaun
flnnskra prófessora eru nú 45.000
ísl. krónur á mánuði og 70.000 |
krónur eftir 10 ára starf.
Frádráttarbærar
sektir
Dómstóll í V-Þýskalandi hefur I
komist að þeirri niðurstööu að í
sektlr, s.s. fyrir of hraðan akstur j
og aðrar mhmi háttar, séu frá-j
dráttarbærar til skatts ef brotin
eru framin i vinnutíma og vegna I
atvinnu viðkomandi. Fyrirtæki
greiða þá sektirnar cn geta svo,
fengið frádrátt á skattaskýrsl-1
unnl.
Barbara brjáluð
Barbara Streisand er sögð |
foxill þessa dagana vegna þess
að nýjasta kvikmynd hennar,'
Yentl, hefur ekki verið tilnefnd til I
einna einustu óskarsverðlauna.
Streisand skrifaði handritið, i
stjórnaðl og lék aðalhlutverkið í
kvikmynd þessari og segir: k
„Karlmenn eiga bágt með að j
þola þcgar kvenmenn sýna og
sanna að þcir séu jafnokar .
þcirra.”
Bláttblóðog
húsgögn
Viscount Liniey, sonur,
Margrétar Brctaprinsessu og
Snowdon lávarðar, hyggst opna
húsgagnaversiun í New York.
Hann smíðar húsgögnin sjálfur |
og þykir meira en lítið iaghentur ;
víð þá iðju.
CaineíUSA
Breski kvlkmyndaleikarinn
Michael Caine hefur sótt um
bandarískan rikisborgararétt.
! Færir hann fram þau rök að hann
geri flestar kvikmyndir sínar þar
í landi. Einnig munu skattar vera
1 eitthvað lægri í Bandaríkjunum
| enBretlandi.
SAS ogRauði
krossinn
SAS-flugfélagið skipti um ein-
kennisliti fyrir u.þ.b. 2 árum. Um
Icið voru gömlu, ljósbláu flug-
freyjubúningarnir lagðir til
hliðar og aðrir nýrri teknir í notk-
un. SAS sat þá allt í einu uppi með
5000 flugfreyjubúninga sem nú
hafa verið sendir til Tælands þar
sem þeir verða einkennisbúning-
ur starfsfólks Rauða krossins.
Olofsson f rjáls
Clark Olofsson, frægasti
bankaræningi Svía og löngu
orðinn þjóðsagnapcrsóna í því
landi.er nú laus úr fangelsi. Þar
hefur hann setið í fjölmörg ár
vegna bankarána sinna en
hyggst ný flytja búferlum til
Belgíu ásamt konu sinni og 10
mánaða gamalli dóttur.
*ssawsi m
— Mikið ertu í fallcgum kjól.
Eg hef dáðst aö honum síðan ég
var barn...
Ljósálofti
Heyrst hefur um ókennileg ljós
á flugi víðsvegar erlendis. Lík-
legast er talið aö hér sé um að
ræða nýlátin umferðarljós.
(KPPS.)