Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1984, Síða 22
__T . ccj. r; . \r rjit,tr*t r««-j
DV. ÞRlbJUDAGUR 24. APRIL1984.
íþröttir
íþróttii
íþróttir
NOACK
FYRIR ALLA BÍLA OG TÆKI
Sænsku bilaframleióendurnir VOLVO. SAAB og SCANIA
nofa NOACK ratgeyma vegna kosta þeirra.
(^^naust h.t
íþróttir íþróttir íþrótti
íþróttir
OFFSET FJÖLRITUN
SILIUPRENT-
LITGLÆRUR («*»«)
VÉLRTTUN-
BLOKKIR-
EMfíff FJÖLRITUN SF.
Magnús H Jónsson
Skipholt 1 Sími 91-25410
••••••••
KASSETTUÚTVARP,
MODEL TK-7758.
— sagði Þorvaldur
Jónsson, íslandsmeistari
í stökki þriðja árið í röð
„Ég er ákaflega ánægður. Ég hef
ekki æft mikið og þessi sigur minn hér f
skiðastökkinu og alpatvíkeppninni var
mjög kærkominn,” sagði Þorvaldur
Jónsson frá Ólafsfirði en hann sigraði
með miklum glæsibrag i skiðastökkinu
og hafðl mikla yfirburði yfir aðra
keppendur. Stökk lengst og sérstak-
lega var niðurkoman örugg hjá honum
en gefin voru mörg refsistig fyrir að
missa jafnvægið eða draga hendur
neðst i brautinni. Kom það mörgum
keppendum í koll en Þorvaldur kom
ávallt niður sem flugvél til lendingar.
„Þessi sigur var nokkuð mikið
auöveldari en ég haföi reiknað meö.
Mér gekk ekki vel á æfingu fyrir mótið
og segja má að þeir hafi þá burstaö
mig. En í keppninni sjálfri gekk mér
hins vegar allt í haginn og það var gott
að stökkva hér í dag. Það er mjög erfitt
aö æfa skiðastökk hér á iandi vegna
veðurs. Það fer mjög mikill tími í að
byggja upp stökkpalla og svo þegar því
er lokið kemur kannski vont veður í
langan tíma og þá er allt unniö fyrir
gýg. Én ég er alveg ákveðinn í að halda
áfram. Mig langar mikið til að komast
til æfinga og keppni ytra. En þaö
kostar mjög mikla peninga og þeir eru
ekki alltaf fyrir hendi,” sagði Þorvald-
ur.
Þorvaldur hafði mikla yfirburði í
stökkinu en þó var greiniiegt að við
eigum unga og efnilega stökkvara sem
ættu að geta náð langt ef rétt er á
málum haldið. SK/Akureyri.
„Ég er sko kát núna. Þetta var alveg
æði,” sagði Nanna Leifsdóttir, skíða-
drottning frá Akureyri, er við ræddum
við hana lafmóða eftir að keppni lauk í
stórsviginu. Nanna sýndi það og sann-
aði á þessu landsmóti að hán er okkar
fremsta skíðakona og ber titilinn
skiðadrottning tslands með réttu. Hún
vann til þriggja gullverðlauna á lands-
mótinu um páskana, sigraði í svigi,
stórsvigi og að sjálfsögðu i alpatví-
keppninni. Sérstaklega var sigur
Nönnu í stórsviginu glæsilegur og þar
voru yfirburðir hennar miklir. Það var
því skiljanlegt að Nanna væri í glaðara
lagi eftir stórsvigið.
„Mér líður alveg stórkostlega. Eg
var nokkuð smeyk fyrir stórsvigið en
þetta gékk allt samkvæmt áætlun. Eg
tel aðalástæðuna fyrir þessum sigri
minum vera gott skipulag æfinga fyrir
mótið. Eg var orðin mjög þreytt og leiö
rétt fyrir mótið og tók mér þá vikufrí
frá æfingum. Svo kom ég alveg vitlaus
til baka og var alveg hungruð í að
vinna til margra verölauna hér á þessu
móti og það tókst. Eg er ekki viss um
að ég hefði staðið mig svona vel ef ég
hefði æft á fuliu alveg fram að keppn-
inni,”sagðiNanna.
Hún bætti því við aö þetta mót hefði
verið sérlega skemmtilegt og að allt
skipulag og tímasetningar hefðu verið
til mikillar fyrirmyndar. Aö lokum
Nanna hætt j
ilíandsliðinu i
„Hef einfaldlega ekki efni á þvf, ” segir Nanna
Leifsdóttir skíðadrottning
i
„Ég er alveg ákveðin í því að
hætta að keppa með landsliðmu á
skiðum. Einfaidiega vegna þess að
ég hef ekki efni á því,” sagði Nanna
Leifsdóttir, þrefaldur íslands-
meistari á skíðum og okkar besta
skíðakona, í samtali við DV eftir
landsmótið á Akureyri um pásk-
ana.
„Það er orðið svo dýrt aö ferðast
með landsliðinu aö ég sé enga
möguleika á því að geta verið með.
Ég er meira aö segja atvinnulaus
sem stendur og hef verið það nokk-
uð lengi. Fengið að vísu aö skjótast
á skrifstofuna til afa til að ég þurfi I
ekki alltaf að hanga heima. Það fer
mikill tími í æfingar og þá sérstak- |
iega ef maður ætlar að ná góðum ■
árangri. Og ferðalög milli landa I
eru ekki gefins í dag. En það sem 1
fram undan er hjá mér sem stend- I
ur er að fá mér vinnu og síðan I
stefni ég í nám í hárgreiðslu í ■
haust,” sagði Nanna Leifsdóttir.
-SK/Akureyri.^
Björn Þór Olafsson var elsti keppandinn á
landsmótinu um helgina. Bjöm stóð slg mjög
vel á mótinu og hér hefur hann nýlega svifiö
tii jarftar úr einu stökkinu og svitinn perlar af
kappanum.
„Ég er rétt
að byrja”
^ — sagði Bjöm Þór
ðlafsson frá Ólafsfirði
Ohætt er að segja að Björn Þór Ölafs-
son hafi að miklu leyti stolið senunni í
stökkkeppni landsmótsins. Þessi
gamla kempa lét ekki deigan siga og
gaf yngri mönnunum ekkert eftir.
Björn var elsti keppandinn á mótinu,
43 ára gamall.
„Eg keppti fyrst á landsmóti árið
1957 og varð þá unglingameistari.
Síðan hef ég alltaf verið með og
Islandsmeistaratitlarnir eru orðnir
tíu. Eg hef alltaf jafngaman af þessu
og þaö er jú aöalatriðiö. Og ég er á
besta aldri og ætla að vera með eins
lengi og ég mögulega get. Eg vona
bara að skíðastökkið eigi eftir aö
blómgast í framtíðinni því þessi
tignarlega íþrótt má alls ekki deyja út.
Við eigum marga efnilega stökkvara
en Þorvaldur er þó þeirra fremstur.
Hann er góöur stökkvari og gæti náð
mjög langt. Eg er þó ákveðinn í að
— sagði Árni Þór
Ámason, Reykjavík,
eftir sigurinn f sviginu
„Ég get ekki sagt að ég sé í fýlu. Mér
líður mjög notalega og það var virki-
lega gaman að ná að sigra í sviginu,
sérstaklega eftir að mér tókst ekki að
sigra í stórsviginu,” sagði Arni Þór
Árnason frá Reykjavík en hann sigraði
með nokkrum yfirburðum í sviginu á
iandsmótinu.
„Eg er ekki í toppæfingu sem
stendur, hef verið í lægð eftir ólympíu-
leikana í Sarajevo en var á toppnum í
janúar. Eg var einna smeykastur við
Daníel Hilmarsson frá Dalvík fyrir
keppnina í sviginu. Hann hefur staðið
sig svo vel á síðustu mótum. En þetta
gekk upp hjá mér og ég er einfaldlega í
sjöunda himni,” sagði Arni Þór.
Hann sagði aö brautin heföi ekki
verið erfið, í fyrri ferðinni hefði hann
ekki tekið á honum stóra sínum en í
síðari ferðinni hefði brautin ekki verið
eins góð. „Þaðkom þó ekki að sök. Það
hjálpaöi mikið að hafa forystuna eftir
fyrri ferðina og í þeirri síöari gekk mér
mjög vel. Eg er ekkert á þeim buxun-
um að hætta, ætla að vera með í fjögur
til fimm ár í viöbót og stefni af hörku
að því að verja titOinn á næsta lands-
móti,” sagði Arni Þór og bætti við:
„Þetta hefur verið stírfínt mót. Skipu-
lag allt er til mikillar fyrirmyndar og
Nanna Leifsdóttir hefur hér skfðl sín
hátt á loft skömmu eftir að hún kom i
mark í stórsviginu. Nanna sigraði bæði
í svigi og stórsvigi og þar af leiðandi
einnlg í alpatvíkeppni kvenna.
sagði hún: „Og svo mætir maður bara
á næsta landsmót og ver þessa titla.
Það veröur erfitt en það ætla ég mér aö
gera. Eg ætla að reyna aö halda
þessum titilum eins lengi og kostur
er,” sagði Nanna. SK/Akureyri.
AmiÞór Árnason.
Næsta
Landsmót
á Siglufirði
— Hreggviður Jónsson
endurkjörinn formaður
Skíðasambandsins
„Það var ákveðið á þessu þingi að
halda næsta landsmót á Siglufirðl og
unglingameistaramót Islands í
Reykjavík,” sagði Hreggviður Jóns-
son, formaður Skíðasambands tslands,
í samtali við DV að loknu skíðaþingi á
Akureyri.
„Þetta var frekar rólegt þing og
menn ræddu málin af miklum skilningi
og það var lítið um deilur. Þetta var
mjög átakalítið þing og þrátt fyrir að
kannski hafi ekki alveg verið logn þá
var mjög gott veður, við getum orðað
það þannig,” sagði Hreggviður.
Hann taldi aöalmál þingsins hafa
verið landsliðsmálin og skipulagning
samfara Iandsliðum og liðum á vegum
Skiðasambandsins.
Hreggviftur var endurkjörinn formaður SKI
á þinginu og fjórir nýfr menn kosnir í stjórn
til næstu tveggja óra. Þeir eru: Trausti
Ríkharftsson, Sigurður Einarsson, Jón A.
Jónsson og Hans Kristjánsson. Fyrir voru í
stjóm sambandsius: Ingólfur Jónsson, Ottó
Leifsson, Guftný Aradóttir og Hermann Sig-
tryggsson.
SK/Akureyri.
allar tímasetningar hafa staðist eins
og stafur á bók. Það er mjög mikilvægt
á mótum sem þessum,” sagði Islands-
meistarinn.
SK/Akureyri.
JK, I . -
veita honum keppni eins lengi og mér
er það fært,” sagði Bjöm Þór eftir
stökkkeppnina. Sannarlega leitun að
skemmtilegri íþróttamanni, mátulega
léttur í keppni og áhorfendur skemmtu
sér vel yfir töktum hans og mikið var
hlegið er Bjöm Þór datt lítillega í lok
eins stökksins og sagði sposkur: „Eg
lifi.”
SK/Akureyri.
Skíðalandsmótðð
á Akureyri:
„Langar
að þreifa
fyrir mér
ytra”
„Þetta var
alvegæði”
— sagði Nanna
Leifsdóttir eftir að hón
hafði unnið til þriggja
gullverðlauna
„Eralveg
í sjöunda
himni”