Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1984, Blaðsíða 44
44
DV. ÞRIÐJUDAGUR 24. APRIL1984.
LEIÐARLJÓS
Hippareiga
peninga
r Margrét Ásgeirsdóttir snýr blaðinu við:
ur Gallery Lækjartorgi
yfir í Magasín
„Þetta er tilraun til aö gefa út
tímarit sem er skemmtilegt og meö
viti,” sagöi Margrét Ásgeirsdóttir
þegar timarítiö Magasín 5 kom á
markaöinn fyrir skömmu. „ViÖ ætl-
um að reyna að vera með sem mest
af aðkeyptu efni, góöar greinar,
sögur og annaö, og viö leggjum á þaö
mikla áherslu aö blaöið sé frumlegt,
ekki líkt öörum tímaritum sem hér
eru gefin út. Ég dreg ekki dui á þá
skoðun mína aö bandaríska útgáfan
af tímaritinu Cosinopolitan er aö
nokkru fyrirmyndin. ”
Magasín 5 er f jölskylduútgáfa. Rit-
stjórinn, Steingrím ur Steingrimsson,
er sonur Margrétar og svo skrifar
systir hans, Halldóra Maria, um
tísku í blaðið og prýöir auk þess for-
síðu fyrsta tölublaðsins sem gefið er
út í 5 þúsund eintökum.
„Það má segja að ég hafi farið úr
myndlistinni yfir í tímaritaútgáfuna,
þetta var rökrétt framhald af því að
ég hætti aö starfa í Gallery Lækjar-
torgi sem ég rak ásamt Jóhanni G.
Jóhannssyni, sambýlismanni mínum
fyrrverandi,” sagði Margrét sem
þegar er farin að vinna að efnisöflun Margrét og Halldóra Maria dóttir hennar virða fyrir sór fyrsta tölublað
í annaö tölublað. timaritsins Magasin Ssem nýkomið er á markaðinn.
Þaö hefur margt breyst
síðan Loftleiðir flugu með
hippa yfir Atlantshafið svo
þúsundum skipti. Hipparnir
elskuðu Loftleiðir og Loftleiðir
græddu.
Forráðamenn Flugieiða
hefðu átt að vera staddir í
Þýskalandi fyrir 2 árum þegar
heimssamtök fyrrverandi
hippa héldu mót sitt í litlum,
vinalegum smábæ þar scm Rín
slcikir bakka sina líkt og eðal-
vin varir þyrstrar konu.
Þar voru þeir margir, um og
yfir fertugt, bisnessmenn, vel
stæðir listamenn, frægt fólk og
ófrægt en átti það sameiginlegt
að vera stuttklippt og undan-
tekningarlaust í betri efnum en
áður. Sumir meira að segja
stórríkir.
Flugleiðir eiga að leysa
haUavandann á Norður-
Atlantshafsleiöinui með því að
taka upp siði Loftleiða og gera
út á hippamið.
Það er óþarfi að vera með
halla á flugleiðum því nú eiga
hippamir peninga.
-EiR.
Hippaflugvélar Loftleiða, gljáandi Rolls-Roycear, voru ódýrasti kosturinn
ef fljúga átti yfir hafið og lótu farþegar það ekki ó sig fá þótt ferðin tæki 15
tima: „Það var partístemmning frá flugtaki tíl lendingar," sagði ein flug
freyjan.
Nú eru hippar hættir að vera
hippar og Loftleiðir heita Flug-
leiðir. Einnig er orðið tap á
Norður-Atlantshafsleiðinni.
Harteríári.
En e.t.v. ekki eins hart og
margur hyggur sem fylgist
ekki nægilega vel með hvað
varð um þessa gömlu hippa
sem eitt sinu elskuðu Loflleiðir
og flugu ekki með öðrum í píla-
grímsferðum sinum austur og
vestur.
Mitya heitir litli strákurinn sem hvíl-
ir í öruggum höndum afa síns sem er
stærri en hann lítur út fyrir að vera.
Afi heitir nafnilega Konstantin Tjem-
enko og er leiðtogi Sovétríkjanna.
Stóri
afi
Loftleiðir:
HIPPAFLUGFÉLAGIÐ
SEM ALLIR ELSKUÐU
got you
across
tegre1
there
„Við vorum kölluð hippaflugfélagiö
einfaldlega vegna þess að meö okkur
var ódýrast að fljúga yfir Atlants-
hafið,” er haft eftir íslenskri flugfreyju
í bandarisku blaöi þar sem fjallaö er
um fyrirbærið Loftleiðir. Því er bætt
viö að allir hafi elskað Loftleiðir vegna
kjaranna og skipti þá húðlitur, stjóm-
málaskoöanir eöa hársídd ekki neinu
máli.
Þetta var á þeim tíma sem allir
gengu um í bláum gallabuxum, síð-
hærðir og í Bandaríkjunum dreymdi
fólk um að heimsækja meginlandið,
gömlu Evrópu, fæðingarstað forfeðr-
anna.
Noah Hardy, sem nú er 45 ára, segir:
„Þetta voru aöallega síðhærðir hippar,
fólk sem ætlaöi aö hjóla yfir Evrópu og
einstaklingar sem höfðu ekki annan
farangur en gítarinn sinn, sem fylltu
Loftleiðavélarnar. Eiginlega var þetta
alls konar fólk og biðstofur Loftleiöa á
Kennedyflugvelli vom ólíkar öllum
öðrum, önnur eins fjölbreytni í útliti
sást ekki hjá farþegum annarra flugfé-
laga.”
Þýskur útgáfustjóri sem man þessa
tíma segir að það hafi fylgt því viss
áhætta að fljúga með Loftleiöum:
„Maður vissi aldrei hvort maöur kæm-
ist alla leið yfir á gamla meginlandiö
eöa endaöi í Reykjavík, tepptur í
nokkra daga. En þetta var allt hluti af
skemmtuninni.”
Fjörið byrjaði strax eftir flugtak.
Gítararnir teknir fram og nýjustu
rokklögin sungin í kór. Okeypis koniak
eyðilagði ekki stemmninguna eða eins
og ónafngreind flugfreyja komst að
orði: „Það var partístemmning frá
f lugtaki til lendingar. ”
Samkvæmt frásögn blaösins fór
skemmtunin þó nokkrum sinnum úr
böndunum. Eitt sinn fann flugfreyja
t.d. par allsnakið við „íþróttaiðkanir”
undir flugteppi og í annað skipti varð
uppi fótur og fit þegar allsnakinn
Ameríkani hljóp sér til skemmtunar
fram og aftur í flugvélinni.
Þá segir blaöiö að maturinn hafi
verið bæði góður og sérstakur, borinn
fram með íslensku smjöri sem sé engu
líkt og svo eldfjallavatni sem sé það
fínastaíheimi.
Loftleiðir höföu það af aö flytja
273.000 hippa yfir Atlantshafið áður en
félagið lagði upp laupana og sameinað-
ist öðru flugfélagi og nú heita þau
Flugleiðir. . .
Dæmalaus Veröld Dæmalaus Veröld Dæmalaus Veröld