Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1984, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1984, Blaðsíða 14
14 DV. LAUGÁRDAGUR19. MAl 1984. ROKKSPILPAN ROKKSPILDAIM ROKKSPILDAN Errokktón- leikamenn- ingindauð? .. .eða hafa pöbbarnir tekið við sama hlutverki hjá þeim sem nota tónleikana sem af- sökun fyrir því að fá sér í glas? Tímabærar spurningar nú í upphafi sumarsins þegar aöeins einn staður heldur úti „lifandi” tónlist reglulega og fær svona svipaöa aösókn og fótboltaleikur í 4. deildinni. Jafnvel hljómsveitir á borð viö KIKK fá ekki nema ca 50 manns á tónleika hjá sér, eins og sl. fimmtudagskvöld í Saf- ari, og þó heföi maður taliö að sú hljómsveit höfðaði til breiðs hóps fólks með poppuðum melódíum sínum, sumum á þýsku línunni, sem tókust vel. Svo við afgreiðui í þessa tón- leika í hvelli má í stuttu máli segja að gestir fengu meira en 150 kr. út úr miða sinum þetta kvöld. Svo við komum aftur að upp- haflegu spurningunni er kannski best aö láta seinni hluta hennar liggja alveg á milli hluta þar sem hætta er á við þær umræður að fá allt Kirkjubóls-„slagverkið” á heröablöðin, en snúa sér að meginefninu. Ljóst er aö aukin video-væð- ing borgarbúa á mikinn hlut að máli hvað varðar minnkandi aðsókn að tónleikum hérlendis, það er miklu auðveldara fyrir „liðið” að stinga spólu í tækið og fá „gæsahúðina” eða „uppáferðirnar” beint í æö í staö þess að vera að þvælast innanum meira og minna skuggalegar persónur í „út- fjólubláum” sölum úti í bæ og þurfa þar að auki að pæla aðeins í því sem er að gerast. Lítum bara á nokkrar stað- reyndir í þessu; er ekki mun þægilegra að hafa Koo Stark allsbera inni í stofu hjá sér í „Cruel passion” í stað þess að sjá úfinn Einar örn hoppandi um sviðið einhvers staðar úti í bæ. (Ekkert illt meint, Einar). Svona líkingar eru óteljandi en jafnframt kannski kjarni máls- ins, því minna sem viðkomandi þarf að leggja á sig í útvegun og neyslu skemmtiefnis því meiri líkur eru á aö það sé vin- sælt. En hver eru ráðin sem ís- lenskar hljómsveitir geta grip- ið til, fyrir utan að fara yfir í þungarokkið sem virðist vera hið eina sem blífur eitthvaö að ráði hérlendis þessa dagana? Spurningu þessari er vand- svarað, sennilega eru svörin jafnmörg og þeir sem spurðir eru. Einfaldasta lausnín er flestum ef ekki öllum óvið- ráöanleg af fjárhagsástæöum, þ.e. að gefa einfaldlega út videospólur með tónlist sinni og þá tilheyrandi húllumhæi í „thriller” stílnum eða ein- hverju álíka. önnur lausn, sem fellur fáum öðrum í geö en þeim sem stunda hana, er að gera út á sveitaballamarkað- inn en þá er frumsamin tónlist fokin út í veður og vind um leið þar sem „liðið” krefst þess að fá sinn Boy George eða sinn Jackson meðan safinn úr grænu flöskunum rennur ljúft um vélindað. Horfur eru sem sagt vægast sagt dökkar en kannski var jetta kjaftæði ótímabært, próf íafa verið í gangi að undan- förnu, sem gæti verið ástæða slæmraraðsóknar. -FRI KOMU FYRST FRAM A „EPLAKVÖLDINU” Kvennaskólinn hefur einkum getið sér orð fyrir að útskrifa dyggðuin prýdda kvenmenn sem góð skil kunna á sleif og pottum en tímarnir breytast og mennirnir með og nú er til rokkhljómsveit sem upprunninn er úr Kvennó, nefnilega Djelly-systur. Þær stelpúrnar munu hafa stigið sín fyrstu spor í „brans- anum” á „Eplakvöldinu” í Kvennó, heljarmiklu húllumhæi sem haldið er árlega fyrir hver jól svo engin af hinum dyggðugu fari í jólaköttinn. Rokkspildan brá sér í heimsókn í bílskúrinn á Rauðalæk 32 þar sem Djelly-systur hafa æfingaað- stöðu, í félagi með Landshorna- rokkurum, svona ca 9 fm pláss, eða svo lítið að maður ímyndar sér varla að annað lið komist þar fyrir en tríó samsett úr Dverg- unum sjö. Djelly-systur skipa þær Edda K. Reynis, Steinunn Baldursdóttir, Sigurbjörg Níelsdóttir, Nína M. Morávek og Katrín Jónsdóttir. „Þetta byrjaði sem skemmti- atriði hjá okkur á „Eplakvöldinu” fyrir tveimur árum en aðeins tvær af þeim eru eftir í núverandi Djelly-systrum. Segja má að Djelly-systur sem rokkhljómsveit hafi oröiö til í fyrrahaust,” segja þær „systurnar” í samtali viö Rokkspilduna. En hvað kom til að nokkrar „kvennaskólapíur” fóru út í þennan „bransa”?? „Áttu við að það samræmist ekki línunum „Dóttirin er í kvennó/lætur ekki drátt”, eöa hvað.” Hmmm, þetta gætu orðið athyglisverðar pælingar en hætt við að stór hluti viðtalsins yrði óprenthæfur. Umorðum spurning- una í hver sé aðalmunurinn á að vera í Kvennó og rokksveit? „Hann er svona svipaður og munurinn á því aö borða fisk og hamborgara, maöur er ekki að leika sér í Kvennaskólanum en hljómsveitin-er aftur á móti mest skemmtun í okkar augum.” Hver voru viðbrögð skólasystra við hljómsveitinni? „Þeim fannst þetta skemmti- legt fyrst þegar við komum fram eins og hvert annað skemmtiatriði en þegar þær sáu að alvara var í þessu hjá okkur fannst þeim hljómsveitin lítið sniðug. Það var til dæmis meiriháttar mál að fá að koma fram á síöasta „Epla- kvöldi” okkar en það tókst og eftir það höldum viö að þeim finnist þetta kannski allt í lagi hjá okkur.” I máli Djelly-systra kemur fram að þær hafa hingað til lítið getað æft. . . ” við höfum sennilega spilað oftar en við höfum æft,” segja þær. Kemur ýmislegt til, „græju”-leysi, fyrrverandi trommuleikari varð ólétt og fleira en þetta stendur nú til bóta með tilkomu bílskúrsins á Rauðalæk. En lítið þið á ykkur sem kvenna- sveit eða eins og hverja aðra rokk- sveit? „Hið síðarnefnda væri nærri lagi, okkur finnst allt í lagi að hafa stráka í hljómsveitinni. . . ” Hér á eftir fylgja nokkrar umræður um þessa staðhæfingu og greinilegt er að skiptar skoðanir eru innan hljómsveitarinnar um þetta atriöi. Ein nefnir sem dæmi strák- inn sem var vitlaus í að verða trommuleikari hjá þeim en var hafnað vegna kynferðis. „Við erum nú að taka upp plötu í Stúdíó Axels og það kemur vel til greina aö fá strák til að leika með okkur á saxófón í einu laginu og ef ekki væri um annað aö ræða en taka strák inn í hljómsveitina mundum við taka hann,” ljúka þær umræðunni um þessa spurningu. Leggið þið mikið upp úr útlitinu? „Já, við leggjum mikið upp úr því, teljum aö við eigum að vera fyrir augað líka, enda lítum við hálft í hvoru á okkur sem skemmtiatriði. Við komumst í stuö við að mála okkur og klæða fyrir tónleika, þetta „tjúnar” okkur upp.”. Hafið þið orðið fyrir áreitni gesta á þeim stöðum sem þið hatið troðið upp á? „Já, sérstaklega frá stelpum. Þær hafa sagt okkur að við ættum aö loka okkur inni og hætta að spila. Ein var alveg brjáluð er við lékum á Selfossi og öskraði á okkur. Strákarnir virðast aftur á móti meira frjálslyndir í fram- komu gagnvart okkur.” Djelly-systur eru nú að taka upp plötu í samkrulli meö Lands- hornarokkurum en þessar tvær hljómsveitir munu ferðast um landið undir yfirskriftinni „Rokk- gengið” í sumar. Eiga Djelly- systur 3 lög á plötunni, þar á meðal lagið „Marilyn Monroe”, en það lag varö einmitt til þess að samstarf þetta komst á. Axel Einarsson, eigandi Stúdíó Axels, bauö þeim að taka „demó” af því lagi og í framhaldi af því bauð hann þeim svo hlut í „Rokkgeng- inu”. Auk annarra laga á plötu þessari með þeim má nefna lagið „Húsið á sléttunni” en í því segjast þær ætla að reyna aö fá fólkið sem grætur yfir sjónvarps- þættinum að brosa yfir laginu. -FRI. Kynning á Cirkus Modern A næstu vikum munum við kynna þær norrænu rokkhljóm- sveitir sem taka þátt í norrænu rokkhátíðinni hér í sumar. Sú fyrsta þeirra er Cirkus Modern frá Noregi. Cirkus Modern er 4 manna hljómsveit, sem stofnuð var í nóvember síðastliðnum og hefur á skömmum tíma skotist upp á toppinn í norsku rokktónlistar- lífi. Það eru engir viðvaningar sem standa að hljómsveitinni því þeir hafa verið leiöandi í norskri rokktónlist um árabil. Jern Christensen gítarleikari og Ola Snortheim trommari koma úr hljómsveitinni DePress sem á sínum tíma var ein helsta nýbylgju/pönk hljómsveit í Nor- egi. Helge Gaarder söngvari, sem var aðaldriffjöður í hljóm- sveitinni Kjett, og Mari Wendel- bo hljómborðsleikari, sem starf- að hefur með fjölmörgum rokk- og jasshljómsveitum. Árið 1981 fengu Jorn og Ola hin eftirsóttu Spellemanns verðlaun fyrir framlag sitt með DePress og sama ár þótti tíöindum sæta að Helge Gaarder var látin sitja hjá við úthlutun verðlaunanna fyrir stórverk hljómsveitarinnar Kjott „Op”. Helge hefur í gegnum árin verið geysiafkastamikill texta- höfundur og hefur sýnt og sannað að hægt er að semja á norsku þannig að það verði spennandi og kryfjandi textar. Hann hefur auk þess verið stjórnandi í upptökum margra hljómsveita svo sem Raga Rock- ers, Hiss og fleiri. Hann hefur ennfremur verið óþreytandi við að skrifa í blöð og virkja aðra fjölmiðla í baráttunni við for- dóma og menningarsnobb gegn rokkinu. Fyrsta plata hljómsveitar- innar leit dagsins ljós í mars og heitir einfaldlega Cirkus Mod- ern. Allt efni plötunnar er eftir hljómsveitarmeðlimi og hefur platan fengið góða dóma og viðtökur í Noregi. Auk þessa hefur hljómsveitin þeyst landshorna á milli til hljómleikahalds og troðið upp í öllum stærstu borgum Noregs. I síðasta mánuði var svo hljómsveitinni boðið að koma fram í sjónvarpsþættinum Zikk Zakk, sem er nokkurs konar Skonrokk þeirra Norðmanna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.