Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1984, Qupperneq 21
DV. LAUGARDAGUR19. MAl 1984.
21
Nikku-
spllá
Klelfa-
balll
Um mánaðamótin er væntanleg
á markaöinn harmoníkuplata með
Jóni Ámasyni frá Syðriá í Olafs-
firði. Kleifaball á platan að heita
og skýrir Jón nafnið með því að í
gömlu skólahúsi á svokölluðum
Kleifum í Olafsfirði hafi, þegar
hann var unglingur, verið haldin
mikil og merkileg böll. Talað hafi
verið um Kleifaböllin. Þau séu nú
ekki lengur til en plátan fái nafnið.
,,Eg byrjaði að spila 12 ára
gamall og eignaðist þá fyrstu
harmoníkuna. Fljótlega fór ég að
spila einn en síðan með öðrum og
það var snemma byrjað á að
reyna að koma saman hljómsveit.
Eg er svo búinn að spila af og til í
rúm 40 ár en þó lítið annars staðar
en heima. Það hefur verið svona
nokkuð jöfnum höndum spilað á
nikkuna og hljómborð. Síðasta
hljómsveitin hét Landátt og em
um tvö ár síðan viö hættum.”
Á Kleifaballi verður boðið upp á
bæði íslenskt og erlent efni, valsa,
skottísa, ræla, marsúka og hvað
þetta allt heitir. Tvö laganna eru
eftir Jón sjálfan. Hann sagði aö
platan væri þverskurður af því
sem hann hefði verið að gera
gegnum árin.
Músíkmenntun sagðist Jón enga
hafa. „Eg tel sjálfan mig nótna-
blindan mann, það er að segja að
ég spila ekki eftir nótum.”
En hvemig skyldi manni sem
ekki er vanur stúdíóvinnu líka að
vinna við nýjar aöstæður. Því
svaraði hann þannig að taugamar
hefðu bilað svolítið fyrst. Það
gerðist þrátt fyrir aö hann heföi
spilað á hundruðum dansleikja
fyrir þúsundir fólks og ekki fundið
til neins. En hann var ánægður
með aðstöðuna og aðstoðarmenn-
ina, Grím Sigurðsson á bassa,
Ingvar Grétarsson á gítar og
Einar G. Jónsson á trommur.
Jón var spurður um áhuga hans
á þessu hljóðfæri og gömlu
dönsunum. Hann sagðist fagna því
heilshugar að harmoníkan væri að
sækja sig í vinsældum. „Hún er
talin erfitt hljóðfæri en skemmti-
legt og ég hef alltaf haft gaman af
gömludansalögum. Maður væri
ekki búinn að vera í þessu allan
þennan tíma ef maður hefði ékki
haft gaman af því
Einhverjir uppáhalds-
harmoníkuleikarar? ,,Já, já,
maður átti sér guð. Það var Toralf
Tollefsen. Maður dáði hann óskap-
lega mikið og hann spilar víst
ennþá. Og það er svo sem fjöldi
uppáhaldsharmoníkuleikara. Þeir
eru of margir til að telja upp, bæði
erlendir og íslenskir, menn sem
maður getur litið upp til. Eg held
að sá maður hlyti að vera erkilyg-
ari sem neitaði að viðurkenna að
hann reyndi að tileinka sér það
semþeir hafa gert.”
JBH/Akureyri
L5 VIKW MISSTU EKKI VIKU ÚR LÍFI ÞÍNU
ASKRIHARSIMINN ER
27022
íTíES,
Platan hans Jóns Árnasonar var tekin upp um páskana. Myndin af Jóni var tekin í Stúdíó Bimbo nokkrum
dögum síðar þegar verið var að Ijúka við að hljóðblanda upptökurnar. JBH/Akureyri
NOACK
liT-rem'iM:!
FYRIR ALLA BÍLA OG TÆKI
Sænsku btlaliamleiðendurnir VOLVO, SAAB og SCANIA
nota NOACK ralgeyma vegna kosta þeirra.
Flugleiðir oaSAS
opna nýjarleiðii
fyrir landkönnuði!
Framhaldsflug frá Kaupmannahöfn tækniundrinu, standa á Rauöa to'rginu, kynnast könnun, sjá Flugleiðir um að flytia ykkur til
Ef þú ert landkönnuöur sem stefnir i frumbyggjum Amazon-landsins eöa telja bjór- Kaupmannahafnar, á almennu ferðamanna-
fjarlæga heimshluta er bæöi fljótlegt og nota- krárnar í Munchen? - Pegar félög eins og gjaldi, eða á ,SAGA CLASS", ef þú vilt lifa lúxuslífi
legt aö fljúga með Flugleiðum til Kaupmanna- Flugleiöir og SAS leggjast á eitt, áttu visa þægi- á leiðinni. Síöan getur þú verslaö í frihöfninni á
hafnar. Þar býður SAS þér framhaldsflug til lega og ógleymanlega ferð. Kastrup, áöur en þú heldur áfram út í heim, í
áfangastaöa um víöa veröld. Ekkert flugfélag Enn á ný er borgin viö sundiö orðin dyr hinu bekkta EUROCLASS-farrými SAS-flugfélags-
flýgur til eins margra'' áfangastaöa frá Kaup- íslendinga aö umheiminum. ins eöa „First Business Class" farrými, t.d. til
mannahöfn og einmitt SAS. Þaö er næstum Singapore eöa Tokyo.
sama hvaö þig langar að kanna, Flugleiöir og „EUROCLASS" og „SACA CLASS":
SAS gera þér þaö fært. Langar þig aö Ijúka upp Vellíðan á ferðalögum Flugleiðlr og SAS veita þér óteljandi ferða-
leyndardómum Austurlanda, átta þig ájapanska Þegar þú og þínir halda af staö í land- tækifæri!
FLUGLEIÐIR
Gott fólk hjá traustu félagi
/
S4S
„Airllne of the year"