Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1984, Qupperneq 27

Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1984, Qupperneq 27
DV. LAUGARDAGUR19. MAl 1984.. 27 hann fór að skjálfa um leið og hann var settur í uppvaskiö og úr því að vaskur- inn hafði þessi áhrif á hann hlökkuðu allir til að sjá hvernig honum yrði við þegar hann sæi laugina en fyrsta daginn vorum viö látnir synda uppi á borðum og þá stóð sá vatnshræddi sig alveg skínandi vel. Hann stóð sig einnig prýðilega á fyrirlestrinum þar sem okkur var sagt aö þaö væri mun hollara að detta i sjó- inn syndur en ósyndur og ef við lentum í því aö bjarga einhverjum sem dottið hefði í Atlantshafið væri viðbúið að hann yrði viti sínu fjær þegar við kæm- um að honum og þess vegna myndi hann hér um bil örugglega grípa svo fast um hálsinn á okkur að við neydd- umst til aö br jóta á honum f ingur til aö koma í veg fyrir að hann kyrkti okkur af einskærri gleöi yfir því að við værum að bjarga honum. Að fyrirlestrinum loknum var okkur kennt aö lifga menn úr dauðadái en loks rann upp hinn langþráði laugar- dagur og sá vatnshræddi afklæddi sig og fór í sundskýluna sína jafnákafur og við hinir en þegar hann sá allt vatnið í lauginni hljóp hann alveg ógurlega hratt til baka og læsti sig inni í skáp. Okkur fannst það dálítið gott hjá honum að geta troðið sér inn í skápinn en hann fékk ekki aö vera lengi í skápnum því að sundkennarinn opnaði hann og þegar hann dró strák út úr honum skalf hann svo mikið aö það hefði sjálfsagt mælst sjö komma fimm á Richter og þegar kennarinn dró hann að lauginni öskraði hann svo hátt að viö vonuðum að sundkennarinn drekkti honum sem allra fyrst svo að við losnuðum við óhljóðin. Okkur til hinnar mestu furðu drekkti kennarinn þeim vatnshrædda alls ekki heldur stökk með hann út í grunnu laugina og sagði honum að ríghalda sér í bakkann og það gerði hann svika- laust í hálfan mánuð á meðan við hinir vorum að læra að synda í kafi og æfa tuttugu og fimm metra björgunarsund sem gekk svo illa hjá flestum að það munaði ekki nema hársbreidd að menn þyrftu aö fara að rifja upp kunnáttu sína í lífgun úr dauöadái. Holl hreyfing — Þú hefðir bara gott af því að fá þér smásundsprett, sagði konan mín í sama tóni og hún segir mér hvað ég hafi gott af því að ryksuga. — En ef ég drukkna? sagði ég. — Þá neyðist ég til aö ryksuga sjálf, sagði konan mín af slíku miskunnar- leysi aö ég ákvað á stundinni að fara með kunningja mínum í Vesturbæjar- laugina og drekkja mér eins fljótt og ég gæti en þegar viö komum þangað hætti ég við það vegna þess að þar var svo mikið af fallegu kvenfólki. Eg fékk mér þvi sæti á bekk og virti það fyrir mér en kunningi minn stakk sér um- svifalaust út í laugina. Hann synti með glæsilegum tilburð- um út í miðja laug en þegar þangað var komið hætti hann að synda og fór að pata með höndunum út í loftið. — Guð minn góður, hugsaði ég, — hann er aö drukkna. I fyrstu datt mér í hug að hringja í varnariiðið eða hjálparsveit skáta en svo ákvaö ég að bjarga honum sjálfur. Eg tók alveg gífurlega langt tilhlaup og þegar ég kom að laugarbarminum var ég orðinn svo móður aö það munaöi minnstu að ég hefði ekki þrek til að kasta mér út í laugina. Mér tókst það þó og af einhverjum óskiljanlegum ástæðum tókst mér einnig aö synda til vinar mins og ná góöu taki á kjammanum á honum, eins og mér hafði veriö kennt á nám- skeiðinu forðum daga, og aö því búnu öskraði ég upp í eyrað á honum að ei hann reyndi að brjótast um myndi ég brjóta á honum alla fingurna og suma tvisvar ef á þyrfti að halda. Auðvitað var þetta ekki alveg sam- kvæmt bókinni en mér fannst vissara að hafa vaðið fyrir neðan mig i þessum efnum. Eg hafði hins vegar ekki fyrr náð góðu taki á kunningja mínum en hann öskraði eins hátt og hann gat, sem var ekki mjög hátt því að ég hélt fyrir munninn á honum; slepptu mér, helvítis fíflið þitt. Þetta fannst mér ekki kurteislega sagt af manni sem verið var aö bjarga úr lífsháska og þess vegna sagði ég þessum vini mínum aö ef hann yrði ekki sallarólegur á meðan ég væri aö bjarga honum frá drukknun hætti ég einfaldlega við það og færi heim að sofa. — Láttu mig í friði, bölvaöur asninn þinn, skrækti kunningi minn, — þú ert ekkert að bjarga lífi mínu, þú ert aö kæfa mig. — Víst er ég að bjarga lífi þínu, öskraði ég eins hátt og ég gat inn í eyr- að á honum, — og ef þú verður ekki til friðs meðan ég er að því skaltu hafa verra af. — Andskotans beinið þitt, skrækti kunningi minn, — ætlarðu að drekkja okkur báðum? Þessi spurning vinar míns vakti mig til umhugsunar og ég komst sam- stundis að þeirri niðurstöðu að það væri algjör óþarfi aö við drukknuöum báöir, það væri alveg nóg að hann gerði það, svo að ég sleppti tökunum á honum og synti að bakkanum. Mér til undrunar kom kunningi minn syndandi á eftir mér, móður og más- andi, og spurði hvað þessi fíflalæti ættu aðþýða. — Kallarðu það fíflalæti að bjarga lífi þínu? spurði ég. — Þú varst ekkert að bjarga lífi mínu, — sagði kunningi minn og var reiður, — ég var að troða marvaðann þarna úti í lauginni þegar þú komst aðvífandi og ætlaöir aö kæfa mig. — Þú varst sko ekki að troða neinn andskotann, sagöi ég og var líka reiður, — þú varst að drukkna, viöur- kenndu það bara. Kunningi minn viðurkenndi ekki að hann hefði verið að drukkna og þakkaði mér þvi ekki lífgjöfina en þótt við skildum sæmilega sáttir efast ég um að hann bjóði mér í sund á næst- unni. Kveðja Ben.Ax. með 32. Del Hg8 o.s.frv. Nú strandar 32. -Dxc4 á 33. He8+ Kg7 34. Hxc8. Kortsnoj var nú alveg að falla á tíma. 32. -Bg7 33. Dd3 Dd4 34. Dxf5 Dxc4 35. He7! Hrókur á 7. reitaröðinni er að verða eitt af aðalsmerkjum heims- meistarans. 35. -Hb8 36. Kg2 Db3 37. Dxg4 Hg8?? Hann varð að reyna 37. -Dc3. 38. Rg6+ abcdefqh Lokastaðan verðskuldar stöðu- mynd. Um leið og Kortsnoj gafst upp fór hann yfir tímamörkin. Hann er mátíöðrum leik. Hvítt: J.Mestel Svart: A. Miles Enskur leikur (!) 1. Rf3 Rf6 2. c4 c5 3. Rc3 b6 4. e4 Bb7 5.e5Rg8 Furðubyrjanir af þessu tagi eru einkennandi fyrir Miles. Ekki er 5. —Rg4 mikið betra eins óg Ftacnik' lék gegn Mestel í Hastings um ára- mótin. 6. d4 cxd4 7. Rxd4 g6 8. Bf4 Bg7 9. De2 Rc610. Rf3! Yfirvaldar e5-reitinn í anda Nimzowitsch sáluga! 10. -Rh6 11. h4! Rf512. h5 0-0 13.0-0-0 Dc814. Rd5 Ekki 14. g4 vegna 14. -Rcd4! og hrókurinn á hl er í uppnámi. Hvíta staðan ermunbetri. 14. -d6 15. g4! dxe5 16. gxf5 exf4 17. fxg6 Eftir skákina taldi Mestel aö 17. hxg6 Dxf5 18. gxf7+ væri jafnvel enn sterkara, því að ef 18. -Hxf7? þá 19. Bh3-e6. Annars stendur textaleikur- inn fyrir sínu. Eini varnarmöguleiki svarts er 17. -f5! en eftir 18. h6 Bf619. g7 stendur hvítur mun betur (Keene). 17. -Bh618. gxf7+ Kh819. Bh3 Db8 20. Rxe7! Hxf7 Eftir 20. -Rxe7 21. Dxe7 Bxf3 22. Hhgl virðist svartur í fyrstu bjarga sér með 22. -Bg2! - T.d. 23. Bxg2 f3+ 24. Kbl fxg2 25. Hxg2 Df4! o.s.frv. Hins vegar leikur hvítur 23. f3!! og vinnur. Ef 23. -Bg7, þá 24. h6! (24. Hxg2 De5) Bxh6 25. Hxg2 og gegn hótuninni 26. Df6+ er engin vöm (ef 26. -Bg7, þá auðvitaö 27. Hxg7). 21. Rc8! Lokardrottningarvænginninni! Ef nú 21. -Dc7, þá 22. Hd7! Hxd7 23. De8+ og mátar. 21. -Bxc8 22. De8+ Hf8 23. Dxc6 Bxh3 24. Hxh3 Dc8 Eða 24. -Bg7 25. h6 Bf6 26. Hd6 og vinnur. 25. Dxh6! Dxc4+ Eftir 25. -Dxh3 26. Hgl Hf7 (eða 26. -Dd7) kemur 27. Re5 með leikvinn- ingi og hvítur vinnur vegna hótunar- innar 28. Rg6+. 26. Kbl Hac8 27. Rd4 f3 28. Hg3 Hf7 29. Dcl Da6 30. Dg5 He8 31. Rb5 Da4 32. De5+! Lokahnykkurinn. Svartur gaf því að hann er fljótlega mát eftir 32. -Hxe533.Hd8+. JLA Spilað er í Gerðubergi kl. 19.30 stund- víslega. Athugasemd viðvalá unglmga- laildslidi Til landsliðsnefndar Bridgesambands íslands Við undirritaðir Islandsmeistarar yngri spilara í bridge 1984 viljum hér með láta koma fram athugasemd við val unglingalandsliðs BSI. Það hefur tíökast aö þeir er .Islands- meistaratitla hljóti keppi fyrir Islands' “ hönd á erlendri grund. Það hefur einnig verið viö val landsliös, yngri spilara, hjá landsliðsnefnd BSI hingaö til. Spurningin er því sú, til hvers eru íþróttamenn að heyja keppni um titla þegar titlarnir hafa enga merkingu? Sök'un þess að nú hefur orðið breyting á og við yfirlýstir óverðugir að þessum titli sjáum við okkur ekki fært að taka við Islandsmeistaratitlinum sem gildir ekkert fýrir okkur eins og á málum hefur verið tekið hjá landsliðsnefnd BSI. Það er súrt epliö sem fylgir Islands- meistaratitlinum, er engan rétt gef ur. Anton R. Gunnarsson. Guðmundur Auðunsson. Stefán O. Oddsson. Ragnar Ragnarsson. 10 ára AFMÆLISHÁTÍÐ Samtaka gegn astma og ofnæmi Skemmtun fyrir atta fjölskylduna Hótel Sögu, Súlnasal sunnudag kl. 14 Laddi, Tóti trúður, Break-bræður, Kamma Karlsson og Árni Gunnlaugsson Hittumst á Sögu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.