Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1984, Síða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1984, Síða 40
DV. LAUGARDAGUR19. MAl 1984. Sérstæð sakamál Sérstæð sakamál „ Vandræðamenn " þótti ekki nógu sterkt hugtak tii að lýsa Champion og Ross, sem báðir höfðu frá unga aldri átt i alvarlegum útistöðum við lögregluna. Champion starfaði með mörgum glæpagengjum og hér sést hann með einu þeirra. „Þeir myrtu ekki fórnarlömb sín til aö hylma yfir aöra glæpi heldur í ábataskyni og vegna þess einkum og sér í lagi að þeir voru haldnir kvala- losta. Þeim fannst slíkt óhæfuverk óhemju spennandi. Þeir nutu þess að myröa.” Þessa sérkennilegu lýsingu gaf Jeff Semow, aöstoöarríkissaksókn- ari í Los Angeles. Lýsingin á viö tvo unga íbúa Los Angelesborgar, annan 18 ára og hinn 22 ára, sem sviptu fjórar saklausar manneskjur lífi á tveimur mánuðum. Semow er enginn viövaningur í því sem fram fer á götum Los Angeles og þeirri grimmd sem þar viðgengst í samskiptum manna. Skrifstofa hans á 18. hæð í byggingu lögreglunnar í Los Angeles er þakin skjölum um þessa atburöi alveg frá gólfi og upp í loft. Þar er margt aö finna sem getur fengiö hárin á venjulegu fólki til að rísa af hryllingi. En sú slátrun sem átti sér staö á tímabilinu frá 15. nóvember til 27. desember 1980 gat jafnvel fengiö svo harögeröan mann sem Semow til að hrylla sig af við- bjóöi. Hafa sagt skilið við mannlegt eðii Þaö var því engin furöa að hann skyldi leggja það til við kviödóminn aö kveöa upp þann dóm sem einn hæfði slíkum glæpum, — dauðarefs- ing. „Hinir ákæröu hafa sagt skiliö viö allt sem heitir mannlegt eöli og þess vegna er sú skylda lögð ykkur á herðar að kveða upp dauöarefsingu yfir þeim,” sagöi hann í réttinum. Kviðdómendurnir horfðu íhugandi á þá ákæröu í stúku sinni. Mikiö stækkaðar myndir sem sýndu þá ákæröu meö 38 kalibera skamm- byssu í höndunum voru lagðar fram í réttinum. Hinir ákærðu voru þar brosandi meö vopnin i höndunum og augu þeirra ljómuöu. En þaö brosti enginn í réttinum. Kviödómendur töluðu stöku sinnum hver viö annan í lágum hljóðum. Yfirheyrslunum lauk þann 27. októ- ber 1982. Kviödómurinn tók sér tvo daga til að ráögast um málið. Ummælin sem talsmaöur kviödóms- ins lét eftir sér hafa þann dag var heldurekkert tilaðbrosaaö. Teheran Jefferson, 32 ára gamall, bjó i lítilli tveggja herbergja íbúö í suöurhluta Los Angeles, ekki fjarri Helen Keller-garöinum. Lífiö haföi ekki dekraö við Jefferson en hann komst af meö því aö taka þá vinnu sem hann gat snapaö hér og þar. Jefferson var sparsamur og tókst aö láta enda ná saman meö litlu. En hann bætti einnig upp þær tekj ur sem hann fékk meö vinnu með þvi að selja marijuana. Þaö er ólögleg iöja en nokkuð mikið stunduö í suöur- hluta Los Angeles þar sem sveimur- inn af eiturlyfjasölum er jafn þykkur og sótmökkurinn sem umlykur borgina. En þessi iðja kallar líka stundum yfir menn nokkuö haröa refsingu. Jefferson komst aö því full- keyptu. Þann 15. nóvember 1980 var Bill Leader, rannsóknarlögreglumaöur í lögregluliði Los Angelesborgar, kvaddur að heimili Teheran Jeffer- sons. Þegar hann kom á staöinn var þar fyrir fjöldi lögreglumanna. A rúmi sínu inni í íbúðinni lá Teheran Jefferson látinn. Hann hafði verið bundinn, stunginn og skotinn í höfuöið með einu skoti eins og um aftöku heföi verið aö ræða. Öllu haföi verið snúiö við i íbúðinni í leit aö verömætum og þaö sem verömætt var talið hafði verið hirt. Leader þaulleitaöi íbúöina í von um einhverjar vísbendingar, en einu sönnunargögnin sem höfðu einhverja þýöingu voru leifar af marijuana og plastpokar sem fundust í ruslakörfu. Skammbyssuskot eru og algeng Jefferson haföi veriö skotinn meö skammbyssu sem annaðhvort var 38 eöa 357-magnum. Skotiö haföi riðiö af rétt ofan við höfuð hans og leitt hann til dauöa á augabragði. Þaö reyndist erfitt að draga upp heillega mynd af því sem gerst hafði. Nokkrir nágrannar kváöust hafa heyrt skot um klukkustund áöur en lík Jeffer- sons fannst en enginn haföi þó veitt því þá athygli aö hann heföi haft rænu á að kalla til lögreglu. ,,Skammbyssuskot eru of algeng á þessum slóöum til þess aö þeim sé veitt sérstök athygli,” sagöi einn nágrannanna. Það var hugsanlegt aö Jefferson heföi verið myrtur af eiturlyfjakaup- anda sem taldi sig hafa veriö svik- inn. En eftirgrennslan lögreglunnar leiddi í ljós aö Jefferson var ekki tal- inn líklegur tii aö standa að svikum í sínum viðskiptum. „Það hefur enginn haft ástæðu til aö skjóta á hann fyrir þær sakir,” sagöi einn þeirra sem þekkti til þessara viðskipta. Lögreglan komst ekkert lengra meö þetta mál að sinni. Engar vis- bendingar fundust sem leiddu til gruns ákveðinna manna eða hand- töku. Það var síðan þann 12. desember sama ár aö rannsóknarlögreglu- menn voru kallaðir að húsi við 112. götu til rannsóknar á moröi 32 ára gamals manns og 13 ára gamals fatlaðs sonar hans. Hann hét Bobby Hassan og bjó meö konu sinni og syninum Eric í lítilli íbúö viö götuna. Hassan gætti sonar sins á meðan eiginkona hans vann úti. Hann helgaöi h'f sitt þessum fatlaöa syni sínum og fylgdi honum á hverjum degiíogfráskóla. Samkvæmt þeirri mynd sem lögreglunni tókst aö draga upp af at- burðum þessa dags yfirgáfu þeir feðgarnir skólabygginguna laust fyrir klukkan 3 þennan dag. Þegar þeir komu heim hringdi Hassan í konu sina og spjallaöi viö hana í nokkrar mínútur. Það var þaö síðasta sem hún heyröi frá honum í lifanda lífi. Um klukkan hálffjögur Ross kemur til yfirheyrslu i fylgd lögreglumanns. Hann er ekki sakbitinn á svipinn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.