Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1984, Qupperneq 43

Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1984, Qupperneq 43
.MmrTAM ftí HITOAQÍIAOTTA,. T vn DV. LAUGARDAGUR19. MAI1984. 43 i skífan meö laginu: Is She Really Going Out With Him? og fyrsta breiðskífan í janúar 1979: Look Sharp. Breiöskífan var hljóðrituö á hálfri annarri viku og fékk dágóða dóma. Nýbylgjan var þá að koma fram á sjónarsviðið og gagnrýnendur líktu Jackson einkanlega við Elvis Cost- ello eða Graham Parker. Smáskífan gekk furðuvel og hafnaði í fimmt- ánda sæti breska listans. Og stóra platan gerði lukku í Bandaríkjunum. Hálfu ári seinna var Joe Jackson aftur á feröinni, að þessu sinni með nýja breiðskífu: I’m the Man, og rokkiö var öllu kraftmeira en á fyrri plötunni. Enn tóku Bretar vel á móti tónlist Jacksons, platan fór ofarlega á breska breiðskífuhstann en það sem vakti mesta athygli voru samt viðtökurnaríBandaríkjunum: báðar þessar fyrstu plötur hans náðu þar gullplötum og Joe Jackson var einn fyrsti breski nýbylgjurokkarinn sem slóígegnvestra. Hafi menn ætlað að Joe héldi áfram á sömu braut og fyrstu plöturnar gáfu til kynna varð reyndin alltént önnur. Þriðja breiö- skífan, Beat Crazy, frá árinu 1980 hafði að geyma tónlist samda undir sterkum raggíáhrifum. Jói stjórnaði upptökum sjáifur og í fyrsta sinn var hljómsveitin skrifuö á hans nafn: Joe Jackson Band. I henni voru: Graham Maby, bassaleikari, Gary Sanford, gítarleikari, og trymbillinn Dave Houghton. Platan fékk verri viðtökur en hinar fyrri bæði í Bret- landi og Bandaríkjunum og ekkert lag af henni náði vinsældum, ekki einu sinni útfærslan á lagi Jimmy Cliff: The Harder They Come. Hins vegar fengu raggímenn mikinn áhuga á Jackson og til dæmis var hann fenginn til þess að stjórna upp- tökum á plötu Lincoln Thompson. Og um sumariö 1980 mátti sjá nafn Joe Jackson á hljómleikum Bob Marleys sem „Guest Star”. I árslok 1980 tilheyrði Joe Jackson Band liðinni tíð. Hljómsveitarstjór- inn fékkst við upptökustjórn hjá Ungri, óþekktri hljómsveit, The Keys, í upphafi ársins 1981, en þegar sól fór að hækka á lofti braust sveifl- an fram í dagsljósið og Joe Jackson tók ákvöröun um að endurvekja gamla djömp og djævið í sinni upp- haflegu mynd eins og þaö kom fyrir hjá mönnum á borð við Louis Jordan og Cab Calloway. Swingtónlist frá árunum milli 1940 og 50 var sumsé á næsta matseðli Joe Jacksons á plöt- unni: Jumpin’ Jive. Og Joe fylgdi uppákomunni eftir með stórsveit, big bandi, og tróð upp á hljómleikum bæði í Bretlandi og Bandaríkjunum. Eftir ferðina settist Joe Jackson að í Bandaríkjunum enda höfðu menn vestra sýnt honum meiri skilning en landar hans. Hann lét swingið lönd og leið og hljóöritaði plötuna: Night And Day. Hún var að sönnu með djassívafi en miklu afslappaðri en fyrri plötur hans og þar mátti greina áhrif úr fönki og salsatónlist. Það var um sumarið 1982 sem platan kom út og Joe Jackson var ekki lengur líkt við Costello þó þeir eigi það sameiginlegt að vera í hópi gáfu- legustu lagasmiða okkar tíma. Plat- an gerði stormandi lukku í Banda- ríkjunum og lagiö Steppin Out fór í eitt af efstu sætum bandaríska list- ans; löngu síðar létu Bretar svo lítið að hampa laginu og höfundi þess. Breiöskífan var meira en ár á Bill- board-listanum og meðan vel gekk samdi Jói kvikmyndatónlist við mynd að nafni: Mike’s Murder. Plata með tónlistinni kom út síðast- liöið ár en myndin lá óhreyfð bjá framleiðendum í meira en ár og þar með var dómur um kvikmynda- tónlistina uppkveðinn. Og nú er Joe Jackson aftur kominn til leiks. Að þessu sinni í sparifötun- um og tilbúinn í slaginn. Nýja platan hans heitir Body And Soul, sögð rök- rétt framhald af Night And Day, þó ekki eins aðgengileg, en þrælgóð og mjög New York-leg aö því er Bretum finnst. Hjálparkokkarnir staðföstu eru enn til reiðu: Kershenbaum og Maby og sá síðamefndi hefur fylgt Jackson frá blautu barnsbeini svo að segja. Þar með lýkur pistli um Joe Jack- son. Platan biöur hlustanda sins á fóninum og hlustandinn spenntur að kynnast henni nánar. -Gsal Þaö er víðar en í stjómmála- flokkunum sem setja þyrfti menn á þann stall/stað sem þeim ber. Við nefnum rokkið. Auðvitað er afstætt hvað mönnum ber og gildir þá einu hvar í flokki þeir standa og jafnvel mætti segja að í rokkinu kæmu bestu tónlistarmennirnir sér í „ráðherra- stólana” á eigin vegum. En er það svo? Eru ekki einmitt nokkrir af- burða rokktónlistarmenn sem hafa ekki komist á þann stali sem þeim ber, ekki fengið þá athygli, umfjöll- un, f jölmiðlafrægð að ekki sé minnst á virðingu sem þeir ættu skilið; menn sem standa upp úr í gæðalegu tilliti og hafa stórkostleg áhrif á alla í kringum sig en eru einatt flokkaöir með lærisveinunum. Eg nefni þrjá menn: Elvis Costello, Bruce Spring- stecn, Joe Jackson. Eru þeir metnir að verðleikum? Svarið: nei. Joe Jackson er okkar maður í Helgarpoppi dagsins og viö leyfum okkur að fara að dæmi bresku popp- pressunnar sem gerir sér annaö veif- ið til gamans að tengja saman bók- stafi og hugtök: a fyrir atorku, b fyr- ir bros og svo framvegis. Fyrsti bókstafurinn sem kemur í hlut Joe Jacksons er v fyrir vanmet- inn. Þaö þarf tæpast aö fjölyrða um þessa úthlutun. A fimm árum hefur fram aö fríöleiki sé hans stóra tromp þá geislar af manninum hvar sem hann kemur. Jafnvel í hópi úrvals- manna er auðvelt að greina Joe Jackson; útlitið, röddin, framkoman er öll á einn veg og persónutöfrar er rétta orðið. F gildir fyrir fjölhæfni. Að þessu leyti er auðvelt að líkja Joe Jackson viö David Bowie. Báðir eru svo ótrú- lega fjölhæfir aö engu tali tekur. I tónlistinni hafa þeir einlægt leitað á ný mið með hverri plötu; hæfileik- anna vegna geta þeir nýtt sér þann munaö sem hjá miðlungsJónum yrði kallað flakk og enn-að-leita-fyrir-sér stefnan. Utkoman hjá þeim báðum er alltaf fyrsta flokks (hér er ekki miðað við finnskar kartöflur í flokk- un!) og leitin er ekki leit að sjálfum sér heldur leit að fullkomnun. Jói fær g fyrir greind og s fyrir • skop en þessir þættir í fari hans eru nátengdir. Einfaldast er aö fletta upp í textum hans til þess aö finna þessum staðhæfingum stað. Hann fær ö fyrir að vera öðruvísi. I raun og sann er Joe Jackson engum líkur. Hann er einlægt ööruvísi, frá einni plötu til annarrar, frá einu lagi til annars og almennt ööruvísi en annað fólk. Herfyrirhugrekki. JoeJacksoner Spólurnar með lögunum fóru víða, frá United Artists yfir til Albion Music og loks til A&M sem gerði hljómplötusamning við Joe Jackson. Það var upptökustjóri A&M, David Kershenbaum, sem stuðlaði að þessum samningi og færum við honum héðan úr Helgarpoppi bestu þakkir. Hjá Arms & Legs bar það helst til tíðinda að eftir þrjár misheppnaðar smáskífur geispaöi hljómsveitin gol- unni. En Joe Jackson hóf að standa við sinn hluta samningsins við A&M og í lok ársins 1978 kom fyrsta smá- Joe sent frá sér sjö breiðskífur sem heföu með réttu átt að skipa honum í flokk þeirra allra stærstu í rokkinu; samt er Jói ekki nema svona miðlungsþekktur. Hann hefur samið lög sem ættu að vera nefnd gullkorn rokksins, til dæmis What’s Different For Girls, en ég efast um að helming- ur lesenda kannist við lagið. Hæfi- leikarnir hafa engan veginn verið metnir að veröleikum; einn besti lagasmiður rokksins, einn besti út- setjari rokksins. Hann fær p fyrir persónutöfra. Þó ekki sé beinlínis hægt að halda því einn fárra manna í tónlist sem þorir. Flestir rokkarar sem hafa náð sæmi- legri athygli taka enga áhættu; Joe Jackson þorir og þó hann ætti á hættu aö klúðra ferli sínum gaf hann út swingplötuna Jump And Jive og plötu með lögum úr mynd sem aldrei hefurveriðsýnd; Mike’s Murder. T er fyrir tónleika. Hann hefur síð- ustu vikurnar verið að troöa upp í Bretlandi og sumir gagnrýnenda fullyrða að þó enn sé hálft ár til ára- móta séu hljómleikar Joe Jacksons: hljómleikarársins! Að lokum fær hann ó fyrir ósk: það væri vonandi að sú ósk mín rættist að rokkáhugafólk færi aö sperra eyrun við tónlist Joe Jacksons. Eg á líka þá ósk að hann yrði fenginn hingað á hljómleika, til dæmis opnunartón- leika nýja tónhstarhússins. Það væri verðugt! Þar meö hættum við þessum bók- stafaleik og rennum yfir í ættfræöina og ævisöguna. Islendingar hafa aUt- af verið sólgnir í ævisögur! Joe Jackson fæddist í Burton-on- Trend á Englandi 11. ágúst árið 1955. Hann ólst upp í Portsmouth og byrjaði að læra á fiðlu eUefu ára gamall. Skömmu síðar tókst honum með lempni að snúa á foreldra sína og fá þá til aö kaupa píanó svo hann fengi útrás fyrir sköpunargleöhia. Hann vildi sumsé semja á píanó! Fremur en að vinna valdi Joe að nema tónsmíðar við konunglegu tónUstarakademíuna á árunum 1971 til 1974. Eftir útskrift úr skólanum lá leiðm í Playboy klúbbinn í Ports- mouth þar sem honum bauðst staða tónstjóra. Starfinu fylgdi nokkur þóknun í peningum og fyrir aurana keypti Jói sér tíma í fínu hljóðveri og tók upp tylft söngva á segulband. Um svipað leyti var hann með hljómsveit í sinni umsjá: Arms And Legs.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.