Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1984, Side 2
2
DV. LAUGARDAGUR 7. JUU1984.
Breið-
síðan
BARÁTTUMÁL
STJARNANNA
Burt Reynolds
Burt kallinn er sjaldan tengdur
góögeröarstarfsemi. Miklu fremur er
hann kynntur sem haröi naglinn sem
drekkur vískí og eltir konur.
Sannleikurinn er hins vegar sá aö
hann vinnur í kyrrþey fyrir þroskaheft
börn í f rístundum sínum.
Hann skipuleggur tennismót einu
sinni á ári til tekna fyrir þessi börn.
Hann mun einnig viðræðugóöur aö
koma fram fyrir ýmis góö málefni.
Warren Beatty
Tími hans fer ekki allur í aö elta
konur. Hann er einn af virkustu
leikurum í Bandaríkjunum í pólitík.
Hann studdi Mc Govem 1972 og hefur
síðan stutt einn forsetaframbjóöand-
ann af öörum. Enginn þeirra hefur
ennþáunniö.
Hann skipuleggur tónleika og
mætir á fundum og tekur þátt í um-
ræðum í sjónvarpi til aö halda fram
frjálslyndisskoöunum sínum.
□□□□□□□DDDa□□□□□□□□□DQD□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□
□ ÁÐUR
EFTIR
SOL SALOON
sólbaðsstofa,
Laugavegi 99
Andlitsljós og sterkar perur
Opiö
rnánud. -föstud. kl. 8—23
oglaugard. kl. 9—21.
SÍMI22580
□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□naoaDBaaooaaoaDooEinaoaaaa
Teinamöppur fyrir Úrval
Sent í póstkröfu
ef óskað er
VANDINN LEYSTUR
Handhœg lausn til ad vardveita hlaóiö
Hálfnr árgangnr í hverja tnöppn
Fást á afgreiösln Irvals,
Inerholti 11, sími (91) 27022
og h já Bindagerdinni,
Smidjnvegi 22,
símar (91) 77040 og (91) 25468
Jerry Lewis
Hann hefur í yfir þrjátíu og þrjú ár
staöið í broddi fylkingar í samtökum
sem hjáipa bömum meö vöðvarýrnum.
Hann byrjaöi aö hjálpa þessum
börnum meö ólæknandi sjúkdóm af
ástæöum sem hann vill ekki tilgreina
nánar.
Á hverju ári stjórnar hann sér-
stökum sjónvarpsþætti til tekna fyrir
samtökin. Hann hefur hingaö til önglaö
saman yfir 500 milljónum dollara
ásamt öðrum stjörnum fyrir málstaö-
inn. Hann segir' aö þessi þáttur gangi
fyrir öllu ööm hjá sér, þar meö taliö
kvikmyndun.
Fyrir nokkrum árum var stungiö
upp á Jerry Lewis til friðarverðlauna
Nobels fyrir starf hans aö mannúðar-
málum. „Það var merkasta augnablik
í lifi mínu,” segirgamanleikarinn.
Jane Fonda
Hún hefur komið víða viö í barátt-
unni, Nú era brátt fimmtán ár frá því
hún neitaöi aö leika fleiri kynferöisleg
hlutverk, klippti á sér háriö og gekk í
mótmælagöngu gegn Víetnamstríðinu.
Þaö eyðilagði næstum feril hennar.
Nú er hún orðin hófsamari og vinnur
mest á grasrótarstigi fyrir hærri
launum, lægri húsaleigu, fríum dag-
heimilisplássum og náttúruvernd.
Vandamál hennar mun aö hún fer
ekki alveg eftir öllu sem hún boðar.
Eftir frumsýningu á Níu til fimm fór
hún um Bandaríkin og hélt fyrirlestra
um vesalings undirborguöu einka-
ritarana. Á sama tíma fór undirfólk
hennar í verkfall vegna þess aö launin
sem hún greiddi því voru ákaflega lág.
Robert Redford
Hann er ákafur umhverfis-
verndarsinni. Hann vinnur af ákefö til
aö auka notkun á sólarorku og gegn
veldi risaolíufélaga. Hann hefur
stofnað sjóð til aö koma á viöræðum
milli umhverfisverndarhópa og iön-
framleiðenda.
Bob Hope
Hann hétt upp á áttræðisafmælið sitt
í Washingtonsem gestur stjórnarinnar.
Þaö er í fyrsta dcipti sem listamaður
fær þann heiöur en Hope hefur nú í
meira en f jörutíu ár unnið ókeypis viö
aö skemmta bandarískum hersveitum
um allan heim. Eitt sinn var hann
næstum drepinn á ferðalagi í Víetnam.
Hann gefur á hverju ári töluvert af
auðæfum sínum til góögeröarmála,
þar á meöal til frelsishersins, skáta-
hreyfingarinnar og ýmissa heilbrigöis-
stofnana.
Clint Eastwood
Heldur uppi merki Johns heitins
Wayne. Þaö á bæöi viö um hvíta tjaldiö
og einkalífið. Hann er sterki einfarinn
sem leggur aðaláherslu á aö viðhalda
lögum og reglu.
Máliö sem hann leggur mesta áherslu
á er að fá hina 2500 amerísku stríös-
fanga sem enn er haldiö föngnum í
Indókína látna lausa. I fyrra fjár-
magnaöi hann björgunarsveit inn í
Laos til að reyna að bjarga einhver jum
þeirra. Hann lét nokkur gömul stríös-
brýni fá tæpa milljón til þess að gera
þeim kleift aö bjarga einhverjum af
gömlum félögum sínum. Feröin varö
hneyksli en reynt veröur aftur.
Clint mun hafa veriö búinn aö
tr>ágja sér réttinn til aö kvikmynda
björgunarsöguna.
Fyrirliggjandi í birgðastöð
Stál 37.2 DIN 17100
Aliar algengar stærðir
Hh E B I
U.N.P.
SINDRA
STALHF
I.P.E.
Borgartúni 31 sími 27222