Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1984, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1984, Blaðsíða 3
DV. LAUGARDAGUR 7. JULI1984. 3 Hafnarfjörður Hvernig er hægt að fá 24 ára gaml- an Hafnfirðing til að hlæja aö brandara? — Með því að segja honum hann þegar hann er tólf. Skilgreining á stjómmálamanni 215 tomma hátalari sem er tengd- ur við tvegg ja vatta heilabú. Svona færðu spékoppa „Segðu mér læknir,” sagði unga stúlkan sem átti aö fara að byrja á leiklistarskólanum. „Geturðu gefið mér gott ráð svo að ég fái spé- koppa. Mér finnst þeir svo fallegir.” „Það er bara eitt ráð,” sagði læknirinn. „Þú verður að borða hafragraut með sogröri á hverjum morgni í tvö ár.” Landið Indiánahöfðinginn var í mat hjá Reagan í Hvíta húsinu. Forsetinn spurði: „Jæja, herra höfðingi, hvað finnst yður svo um bæinn ? ” „Mér líst bara vel á hann,” svar- aði höfðinginn, „og hvað finnst yður um landið okkar? ” Geldur „Varst það þú sem slepptir kett- inum inn í hænsnabúið, Jóhann Öli?” „Já, hvað um það. Það var búið að gelda hann.” Marlon Brando Jói fyndni var hjá rakara þorps- ins og sá var dálítið fyrir flöskuna. Þegar Jói var búinn að fá nokkrar meiri háttar rispur í andlitið af rakstrinum spurði hann: „Heyrðu, rakari góður. Fyrst þú ert á annað borð farinn að skera mig í framan geturðu þá ekki reynt að gera mig líkari Marlon Brando?” BILALEICA BORGARTÚNI25 -105 REYKJAVÍK 24065 SÆKJUM - SENDUM Tegund Pr. km. FIAT PANDA/LADA 1300 600 B FIAT UNO/LADA STATION 650 6.50 MAZDA 325 700 VOLVO 244 850 8.50 HEIMASÍMAR 92-6626 og 91-78034 V/SA E Af mælisbarn vikunnar Afmælisbam vikunnar að þessu hæfileika. Þú hefir skarpar gáfur og sinni er Ottó Wathne Bjömsson, fyrr- mikla afkastagetu. Gættu þess að vera verandi flöskusali með meiru. Um ekki of undanlátssamur. Þroskaðu hannsegirafmælisdagabókin: bliðu og auðmýkt og þú munt verða „Þú hefur óvenjulega framkvæmda- hamingjusamur. Kryddarahöfundur að þessu sinni er Þorvaldur Lúðvíksson iögfræðing- ur. Hann segir s vo f rá: „Það var einhvem tímann á há- skólaárum minum að við þrír lýð- ræðissinnaðir félagar vomm nokkuð við skál, þó misjafnlega mikið. Við lögðum af stað frá Gamla Garði áleiðis upp í Þingholt. Leið okkar lá fram hjá Tjörainni og tekið var að- eins að frysta og Tjöraina var að byrja að hema. Þá gekk annar félagi minn að Tjaraarbakkanum og hróp- aði: „Á ég að synda?” En hinn félagi minn sem minnst var undir áhrifum kallaði: „Láttu ekki svona.” Þá icrvppívrvhh hrópaði sá sem bauðst til að synda: „Við greiðum atkvæöl” og sagði um leið: „Égseginei.” Ég sagði strax já og hnippti í félaga minn og sagði: „Segðu já.” Þá drandi í honum „já” og um leið stakk sá sundglaði sér til sunds en sneri fljótt til baka illa til reika og við hlupum með hann á milli okkar upp á Gamla Garð. Én hann tuldraði á ieið- inni: „Af hverju greidduð þið svona atkvæði, strákar?” Þorvaidur Lúðvíksson skorar á Sverri Hermannsson ráðherra. BÍLASÝNING Nýir og notaðir bílar til sýnis og sölu ÍDAG FRÁ KL.1-4. Tökum vel með farna Lada upp í nýja. NYJA LADAN Bifreiðar & sifeiTd þjonusta Landbúnaðarvélar hf. SUÐURLANDSBRAUT 14, SÍMI 38600 Söludéiíd sími 31236 LADA- bílar hafa sannað kosti sína hér á landi sem sterkir, öruggir, gang- vissir, ódýrir í innkaupi, með lítið viðhald og ódýra varahluti og ekki síst fyrir hátt endursölu- verð. Nú hefur útliti og innréttingum verifl breytt svo um munar: mælaborð, stýri, stólar, aft- ursæti, grill, húdd, stillanlegir speglar innan frá, stuðarar o.fl. o.fl., en sifellt er unnið að endurbótum er lúta afl öryggi og endingu bílsins. 6 ára ryðvarnarábyrgð. Verð við birtingu auglýsingar kr. 219.000,- Lán 110.000,- Þér greiðið 109.000,- VERÐLISTI YFIR LADA BIFREIÐAR Lada 1300 Safír Lada 1500 station Lada 1600 Canada Lada Sport kr. 185.000,- kr. 199.000,- kr. 210.000,- kr. 304.000,-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.