Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1984, Síða 5
DV. LAUGARDAGUR 7. JULI1984.
5
við borgað skattana. Við áttum íbúö og
leigðum hana. Þetta er ekki eins dýrt
og erfitt og margir halda. öll ævintýri
kosta að visu peninga en þau eru flest
þeirra virði. Eg tel að almenningur
ætti að gera meira af þessu.”
„Fer í viku
sumarfrí tii ömmu?"
Hvað hyggst þú gera í sumarfríinu?
„Ég er nýbúinn að kaupa mér aðra
og stærri íbúð og sé mér því ekki fært
að taka nema viku sumarfrí. Þá viku
ætla ég að nota til að heimsækja
ömmur minar í Isafirði og Súganda-
firði.”
Nokkurorð umeiginkonuna?
„Eg kynntist Guðmundi Pálssyni
þegar viö vorum á ferð saman á leiö á
skíði. Hvert ferðinni var heitið man ég
ekki en í þessari ferð byrjaði sem sagt
ballið,” sagöi eiginkona Guðmundar
E. Pálssonar, Sigrún Erla Hákonar-
dóttir, í samtali við DV. Sigrún hefur
verslunarpróf og starfar sem ritari á
skrifstofum Eimskipafélag Islands.
Einnig hefur hún fengist við nám í söng
og hljóöfæraleik en hún vildi sem
minnst gera úr því.
„Guðmundur er mjög duglegur
maður og elskulegur í alla staði. Hann
hjálpar mér mikið við heimilisstörfin
og það þarf ekki að dekstra hann til aö
vaska upp. Það gerir hann þegjandi og
hljóöalaust. Það hefur reyndar alltaf
„Hún er ákveðin kona og veit hvað
hún vill. Okkur hefur alltaf komið vel
saman og mér er alltaf minnisstætt
hvað presturinn sagði þegar hann gifti
okkur fyrir 10 árum. Hann sagði að
hjónabandið ætti að vera tveir sjálf-
stæðir lúðrar sem gætu hljómað
sama.”
Ert þú að hætta í blakinu?
„Ég veit það ekki. Ég á von á því að
dingla með í haust en ég hef alltaf sagt
þegar ég hef vorið spurður að þessu að
ég myndi hætl a um leið og ég þyrfti að
fara að berjast um sæti í Þróttar-
liðinu. I framtiðinni ætla ég aö þjálfa.
Það er mjög skemmtilegt og ég hef
mikinn áhuga,” sagði Guðmundur
Elías Pálsson.
mætt mikið á því að við gætum unnið
vel saman. Við höfum reynt að skilja
og virða þaö sem hinn aöilinn er að
gera hverju sinni og ég held að það haf i
gengið bærilega.”
Hvað var það sem fyrst vakti áhuga
þinnáGuðmundi?
„Eg tók strax eftir því þegar ég sá
hann í fyrsta skipti að hann var mjög
vel vaxinn. Herðabreiður var hann og
niðurmjór frekar. Eg féll fyrir því
meðal annars. Einnig því að hann
virtist vera traustur, talaði ekki mikið
en hlustaði á fólk þegar það var að
tala. Hann var og er ekki einn af þeim
sem alltaf eru að segja einhverja
bölvaöa vitleysu,” sagði Sigrún Erla
aölokum. -SK.
✓
Guðmundur Pálsson sagði að
hann hefði nýverið heyrt talað um
kaninurækt í útvarpinu og í
f ramhaldi af þvi langaði hann til aö
vita hvemig ætti að meðhöndla og
matreiða kanínukjöt.
Svar Guömundar Valtýssonar,
matreiðslumanns á Aski:
Kanínusmásteik
Shasseur:
1 stk. kanína
1 stk. laukur
400 g kjörsveppir
3 dl hvítvín
2 dl koníak
1 dl tómatmauk
1/21 spönsk sósa (brún sterk sósa)
Kaníuan hlutuð í bita og steikt i
smjöri. Haldið heitri í skál.
Laukurinn saxaður. 400 grömmin
af kjörsveppunum látin krauma í
smjörinu sem kanínan var steikt í.
Hvítvininu og koníakinu hellt út í
og soðiö niður. Spönsku sósunni og
tómatmaukinu einnig blandað út i.
Bætt með söxuðum estragon-
blöðum. Sósan siðan sett yfir
kaninuna og saxaðri steinselju
stráð yfir. Fram borið með parísar-
kartöflum og gljáðum gulrótum á-
samt ostabrauði.
-SK.
„Var herðabreiður
og vel vaxinn”
— segir eiginkona Guðmundar E.
Pálssonar, Sigrún Erla Hákonardóttir
©i
David Bowie er i uppáhaldi hjá
Guðmundi Pálssyni.
FULLT NAFN: Guðmundur Elías
Pálsson.
HÆÐ OG ÞYNGD: 187 cm og 84 kg.
BIFREIÐ: Volvo 244 árg. 1977.
GÆLUNAFN: Fommi.
UPPÁHALDSÍÞRÖTTAMAÐUR ÍS-
LENSKUR: Jón Sigurðsson,
körfuknattleiksmaður í KR.
UPPÁHALDSlÞRÓTTAMAÐUR
ERLENDUR: Sava, rússneskur
blakmaður.
MINNISSTÆÐASTI LEIKUR:
Landsleikur gegn ítalíu sem við töp-
uðum 0-3 (0-15,0-15,0-15).
LÍKAR VERST í SAMBANDI VIÐ
ÍÞRÓTTIR: Hvað mikill tími fer í
þetta.
UPPÁHALDSLEIKARI ÍSLENSK-
UR: Gísli Halldórsson.
UPPÁHALDSLEIKARI ERLEND-
UR: Dustin Hoffman.
UPPÁHALDSMATUR: Stór og góð
nautastcik.
UPPÁHALDSDRYKKUR: Vei
sterkt kaffi án sykurs og mjólkur.
BESTIVINUR: Eiginkonan.
HVAÐ FER MEST í TAUGARNAR
Á ÞÉR? Smyrja nestið mitt á
morgnana.
UPPÁHALDSBLAÐ: Norska tíma-
ritið Vi menn.
UPPAHALDSFÉLAG 1 ENSKU
KNATTSPYRNUNNI: Man. Utd.
UPPAHALDSSJÓNVARPSÞÁTT-
UR: Fréttir.
UPPAHALDSHLJÓMSVEIT: David
Bowie.
BESTIÞJÁLFARISEM ÞU HEFUR
HAFT: Ni Fenggo frá Kína.
HELSTI VEIKLFÍKI ÞINN: Hlé-
drægni.
HELSTIKOSTUR: Að geta þagað og
hlustað.
FRAMTÍÐARLEIKMENN Í
BLAKI: Jón Árnason, Þróttl, og
Marteinn Guðgeirsson i Þrótti, Nes-
kaupstað.
HVAÐA PERSÓNU LANGAR ÞIG
MEST TIL AÐ HITTA? Lech Wal-
esa.
YRÐIR ÞU HELSTI RÁÐAMAÐUR
ÞJÓÐARINNAR A MORGUN,
HVERT YRÐI ÞITT FYRSTA
VERK?: Að fella niður aiia álagn-
ingu á íþróttavörum.
ANNAÐ VERK?: Að hækka kaup
kennara i þessu landi en það er
skammarlega lágt.
„Fomma" iangar mest tii að hitta
Lech Walesa.
•&
Líkamsdýrkunin er viðurkenning á því að fallegt og heilbrigt útíit auki
likurnar á þvi að vel gangi á vinnu- og hjónabandsmarkaðnum," segir
danski fóiagsfræðingurinn Joi Bay.
Líkaminn er kominn í tísku. A tímum
óvissrar framtiöar hefur ungt fólk og
miðaldra hellt sér út í likamsræktina.
Þeim fjölgar sífellt sem sjást skokk-
andi á götunum og geysileg fjölgun
reiöhjóla sem hér varð fjrir nokkrum
árum tengist þessari bylgju
áreiöanlega líka. Krakkarnir ganga
um i æfingagöllum og strigaskóm.
Upphafiö má iíklega rekja til æsk-
unnar. Unglingar áttunda áratugarins
eru fyrir löngu búnir að snúa baki við
flippkynslóðinni sem sökkti sér í
vangaveltur og sýndi tísku og útliti
hina mestu fýrirlitningu. I dag þykir
þaö fint að stunda líkamsrækt og bera
það á torg hversu vel maður líti út á
götunni, ballinu eða íþróttavellinum.
Það fer geysilega mikil orka og tími í
líkamsmenninguna. Draumurinn um
heilbrigðan og hraustan líkama hefur
breiðst út til annarra aldurshópa en
hinna yngstu. Miöaldra fólk (það sem
m.a., reykti hassið og barði bongó-
trommumar) fer í langhlaup og lifir á
grænmeti.
„Dýrkun likamans hefur um margra
ára skeið verið illa séð á þeim grund-
velli að hún sýndi að maður væri
fórnarlamb auglýsingaiðnaöarins og
að maður væri afturhaldssamur í
viðhorfum til jafnréttis kynjanna,”
segir Joi Bay sem hefur skrifað bók
um þjóðfélagsfræði æskunnar.
„I æskuuppreisnunum var lögö mikil
áhersla á að leyna kynferðislegri út-
geislun likamans. Það var menning
sem lagöi áherslu á rökhyggju, horfði
fram hjá likamanum og þar sem konur
og menn gátu í mestaJagi talað sig upp
í rúmið hvort hjá öðru. Það var
menning sem nú er gjaldþrota því hún
horfði fram hjá mikilvægri vídd í til-
verunni,” segir Joi Bay.
Bókin og líkaminn
Á hinum glaöværu uppgangstimum
var bókleg iðja leið til að njóta virðing-
ar í þjóöfélaginu. Það var rökleg
aðferð til að fá heitustu framtíðar-
drauma sína uppfyllta.
Á erfiðum krepputímum er ekki
hægt aö lesa aig til virðingar. Joi Bay
segir að ungt fólk setji spurningar-
merki við notkun á höfðinu.
„Það vakti upp ramakvein þegar
rannsókn, sem danska forlagið
Gyldendal lét gera, sýndi að ungt fólk
er næstum því hætt. að kaupa bækur.
Talaö var um þá sem hefðu fleygt frá
sér bókinni og hópforheimskun næstu
kynslóðar. En ég hef ekki svo miklar
áhyggjur af þeim sem hafa fleygt
bókinni. Það er jákvætt að ungt fólk
taki ekki viðhorf foreldranna hrá.
Unga fólkið á að þróa eigin hugmynda-
flug og eigin tjáningarmáta.
Þaö hafa allir þörf til að tjá sig í
einhverju öðru en málinu. Fullorðnir
geta tjáð sig á vinnunni, með heimilinu
og bílnum eða vel snyrtum garði. Unga
fólkið hefur ekkert nema eigin líkama.
Þaö veit tískuiðnaöurinn. En unga
fólkið er ekki aögeröarlaus fórnarlömb
tískuiðnaðarins. Líkaminn er færður í
búning eftir einstaklingsbundinni þörf
og löngunum.
Líkamstjáning
Pönkararnir og vel snyrtir íþrótta-
iökendur eru tvær mismunandi
tjáningaraðferðir á sigurgöngu lík-
amsmenningarinnar. Báðir nota lík-
amann til að sýna hverjir þeir eru. En
draumamir og fyrirmyndirnar eru
ólikar.
Þegar pönkaramir mála sig í
framan og ganga um i þrælslitnum
frökkum tjá þeir löngun í frelsi eins og
til dæmis bóhemarnir, flakkari eða
slæpingi. Það eru gamalreynd hlut-
verk sem sýna vantraust á samfélag-
inu. Pönkið gefur pönkuranum eigin
tjáningarform,” segir Joi Bay.
„Annað ungt fólk spreytir sig á hlut-
verkinu: ungur, fallegur og ríkur. Það
kaupir dýr föt og notar geysilegan
tima til að þjálfa líkamann. Dýröin er
síðan sýnd um helgar á diskótekum og
íþróttamiðstöðvum. Þetta er draumur
um f relsi sem er t jáður af sannfæringu
og með riku hugmyndaflugi.
Á vissan hátt má líta á iikams-
menninguna sem aölögun aö þeim
gildum sem ber hæst í dag.
Viðurkenning á því að fallegt og heil-
brigt útlit geti aukiö möguleikana á
vinnu og hjónabandsmarkaðinum. En
það er líka alveg eins hægt að skýra
þessa dýrkun likamans sem mótmæli
gegn kynslóöinni sem fórnaöi lík-
amanum fyrir höfuöið.
Líkamsmenningin er gárur á yfir-
borðinu. Það eru auövitað allt aðrar
efnahagslegar ástæður sem ákvarða
framtíð unga fólksins. En áhuginn á
líkamanum getur veitt okkur aukinn
skilning á sambandinu milli sálar og
líkama. Áhuginn sýnir ef til vill andóf
• gegn skóla og vinnumarkaði sem eyði-
leggur ánægjuna af likamanum.
Líkamsmenningin gefur okkur nýja
vídd í tilveruna. Hún bendir á ánægj-
una sem hafa má af heilbrigði og
vellíðan.
Eilíf æska
Áður höfðu karlmenn einungis
áhuga á útlitinu þangað til þeir voru
búnir að f inna sér nýja móður í mynd
eiginkonunnar. Þá óx maginn og
minna var hugsað um fötin. I dag
verða allir að reikna með því að
þurfa kannski að leita fyrir sér aftur
á hjúskaparmarkaðnum. Þá verður
likaminn að vera í lagi. Líkams-
menning mic .ldra fólks er tjáning
á leitinni að . ilífri æsku. Æskan er í
dag það sem . ilv kynslóöir dreymir
um. Fólk á erfitt meö að sjá eitthvað
jákvætt í þroska og reynslu.
Fulloröna f ólkið gengur í barndóm.
Æ fleiri fullorðnir taka upp lifnaðar-
hætti sem líkjast lifnaðarháttum
unga fólksins. Þeir fara í endur-
menntun eða lifa einlífi. Kannski
grillir í daginn þegar hugtakiö æska
verður ekki lengur til.
Þetta má sjá í tískunni. Það stefnir
í sameiginlega tísku fyrir böm, ungt
fólk og uppkomið. I auglýsingunum
má gjamari sjá fleiri kynslóöir en
eina í sama íþróttalega frístunda-
fatnaðinum.”