Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1984, Page 15
DV. LAUGARDAGUR 7. JUL! 1984.
15
Quidort fjölskyldan.
Síðasta ár seldust birgðimar upp en í
ár komum við til meö að ná endum
saman,” segir frúin með viðskiptasvip
á andlitinu. Hverjir skyldu nú versla
hjá henni?
„Það eru mest stúdentar og ferða-
menn, sérstaklega Þjóðverjar. Þeir
eru óskaplegir hunangsmenn og
skemmtilega fróðir um þau mál. Svo
koma nokkrar ungar mæður til mín
reglulega og versla ofan i ungana
sína,” segir frúin og brosir.
Fleira er það sem býflugurnar gefa
af sér en hunangiö. Ur vaxinu má gera
hin snotrustu kerti og svo safna
býflugumar líka blómtrævlum. Þeim
er safnað á þann hátt að fíngert net er
strengt fyrir inngönguopiö í búið.
Möskvástærð netsins er hæfileg til aö
flugumar verða að troða sér í gegn til
að komast inn en um leið missa þær
blómfrævlaköggulinn sem þær bera á
afturlöppunum. Köggullinn rúllar
síðan sallarólega ofan í til þess gerðan
bakka þar sem Claude hirðir hann.
Það er sumsé hugsaö fyrir öllu á
bænum þeim.
i/ ■■ áJÍC
'M?'*’*<*
Quidort býr sig undirað opna kassa.
Síðari hluta sumarsins tekur hann
þær af fjalli og sleppir þeim á
lavanderakra nágrannanna gegn
greiðslu í formi hunangs. Aöra hluta
ársins ganga (fljúga) flugumar sjálf-
ala í grenndinni eða nærast á sírópi
sem þeim er gefið í kassana. „Til
allrar hamingju eru nágrannamir
famir að eitra minna en áður. Annars
hefur eitrið engin áhrif á gæði hunangs-
ins því að býflugurnar koma ekki
nálægt eitruðum eða ábomum
blómum. En ef þær asnast til þess
kostar það þær lífiö. Þefnæmi þeirra er
slíkt að maöur getur verið viss um að
hunangið er hundrað prósent náttúr-
legt, ” heldur bóndinn áfram.
Vinnslan
Claude er greinilega mikiö
metnaðarmál að vanda til fram-
leiöslunnar. Hann er búinn aö koma
sér upp myndarlegum tækjakosti til aö
vinna og hreinsa hunangið. Það má því
segja að hann fylgi því eftir frá flugu
til kmkku.
Fyrsta skrefiö er náttúrlega að tæla
flugurnar út úr búinu. Það gerir hann
meö því að taka drottninguna og setja
hana yfir í annan kassa þar sem fyrir
eru vaxplötur sem fyllast siuilu
hunangi. Og eins og löghlýðnir
borgarar fylgja hinar flugumar
hátigninni yfir í nýja kassann.
Claude tekur síöan kassann, sem
tæmdur er af flugum en fullur af
hunangi og fer með hann inn í vinnslu-
salinn. Þar tekur hann plöturnar
hlaðnar hunangi strýkur vaxlagið af
hliðunum í burtu í því skyni að opna
vaxhólfin og setur síðan plötuna ofan í
e.k. skilvindu. Plötunum er síðan snúið
i skilvindu þessari á ógnarhraða þar
til allt hunangið hefir þeyst úr vax-
hólfunum og safnast í botn skil-
vindunnar. Þvi næst er hunangið
margsiað i fíngerðum síum til að losna
við aðskotahluti, eins og vax, dauöar
flugur, vængi og fætur. Hunangiö er
síaö aftur og aftur þar til fullvíst þykir
að þaö sé orðið hreint.
Þannig fer hunangiö í kmkkurnar
hjá þeim, svo að segja eins og það
kemur af flugunni.
Um glært hunang og matt
„Það virðist vera nokkuð algengur
misskilningur að við býflugnabændur
blöndum sykri í hunangið til að drýgja
framleiðsiuna. En það er alger firra,
það er einfaldlega ekki hægt því að ef
sykri eða sírópi er blandað saman við
hunangið fer það að gerjast og það
eyðileggst,” segir Claude og er nú
mikiö niðri fyrir. „Býflugnabóndi, sem
gerir slíkt, er bara sjálfum sér
verstur.” En hver er þá munurinn á
möttu hunangi og glæm? „Það er von
þú spyrjir,” segir bóndinn og glottir,
„annar hver viðskiptavinur spyr
okkur þessarar spurningar. Sjáðu til,
nýtt hunang er alltaf glært, hvert svo
sem blómiö er. Þannig kemur þaö úr
þrjátíu og fimm stiga heitu búinu.
Þegar búið er að setja það í kmkku
smástorknar það og eftir nokkrar
vikur er þaö orðið matt. En þaö skiptir
engu máli upp á bragðið að gera, það
helst alveg óbreytt. ”
Stór hópur kaupenda kýs þó fremur
glæra hunangið og til aö þjóna smekk
þeirra tekur Claude storknað hunang
og hitar þaö aftur upp í 35 gráður en viö
það verður hunangiö aftur glært. En
aöeins einu sinni því að aö sögn Claude
er margupphitað hunang bæði
næringarlítið og bragðlaust.
Þjóðverjar bestir
Það er ekki nóg að koma
hunanginu i kmkkur heldur verður
lika að selja það. Þess vegna fer frú
Quidort fjórum sinnum í viku til Aix-
en-Provence og selur hunangiö sitt á
útimarkaðnum þar. „Við seljum alla
okkar framleiðslu á markaðnum í Aix.
Þetta er smátt og knátt
Það er óhætt að segja að Quidort
fjölskyldan stundi býflugnaræktina af
mikilli alúð enda er afkoman undir því
komin að allt gangi snurðulaust fyrir
sig. Svo er alltaf ákveðinn dularblær í
kringum þessi dýr. Vitaö er til að menn
hafi stundað býflugnarækt allt frá
timumFornegyptaog allt til þessa dags
veldur býflugan manninum heila-
brotum. Nýlega voru býflugur t.d.
sendar út í geiminn með geimskutlunni
Challenger í því skyni aö kanna við-
brögð þeirra við þyngdarleysinu. Og
vísindamönnum til mikillar furðu
byggðu þær kúpuna sína eins og ekkert
hefði ískorist.
Gamla islenska máltækiö um þann
smáa og knáa á því einkar vel við um
flugfénað Claude Quidort. Það veit
hann manna best þótt hann kunni ekki
staktoröiíslensku.
En borðar maðurinn hunang
sjálfur? „Já, já, blessaður vertu, tvö
kíló á mánuði,” sagði þessi höfðingi
að lokum þar sem hann stóð í hlað-
inu íklæddur hvítum samfestingi með
breitt, svart leðurbelti um sig miðjan
og ljónshöfuð á sylgjunni.
Alxí júni,
Friðrik Rafnsson.
Þýskunám
í Þýskalandi!
Skrautfjöður
í Hfshattinn
ÞýskunámskeiÖ á öiium stigum.
Kennt er i litlum hópum, mest 10
nemendur. Skólinn stendur i
skemmtiiegu haiiarumhverfi. Nú
námskeiö i hverjum mánuöi. Auk
þess er haldiö sumarnámskeið i
Konstanz-háskóla.
Skrifiö og biðjið um upplýsinga-
bœkling.
Humboldt-lnstitut
Schloss Ratzenried,
D-7989 Argenbuhl.
■ Simi 9049 7522- 3041.
Telex 732651 humbo d.
er
Lesið úr skrift, lófa,
talnalogy og lögð Tarotspil
Tek að mér að lesa úr skrift með aðstoð
handritunargreiningar
(Graphoanalysis based on
Graphology). {
Hef stúderað þetta meira og minna í 12 ár og
skrifast á við skóla í Illinois í Bandaríkjunum
sem greint hefur skrift mína og meðal annars
mælt með hæfni minni á þessu sviði.
Tilvalið fyrir atvinnurekendur við manna-
ráðningar, skóla, varðandi inntökur og út-
skriftir, úrskurði varðandi skjala-, ávísana-
eða hvers konar falsani og fyrir ýmsar
stofnanir og félagasamtök sem þurfa að úr-
skurða geðheilsu eða grafast fyrir um vanda-
mál ýmiskonar.
Einnig mjög áhugavert fyrir fólk almennt
sem vill athuga persónuleika og hæfileika,
leynda og ljósa, tilhneigingar og fá
ráðleggingar til að breyta og bæta því sem við
verður komið og tilsögn til að geta greint gróf-
lega skriftir nákominna og þar sem það gæti
komið að gagni í lifinu.
Einnig les ég úr líkamanum og þá aðallega
úr lófiun o. fl. er því tengist og ráðlegg
varðandi svæðameðferð ef með þarf hjá við-
komandi (zone-terapy). Ég styðst aðallega
við speki Cheiros varðandi lófalestur og nota
einnig numerology hans, meðal annars til að
lesa úr nöfnum og fæðingardögum til að finna
persónuleikatölur, lífstölur o. fl. Þá legg ég
fyrir fólk Tarot-spáspil, hinar ýmsu spár
eftir samkomulagi.
Hringió og meldið ykkur tíma í
síma 31811
eða skrifið:
MYNDMÁL
Austurbrún 2
2. hæð nr. 3, Rvík.
GEYMIÐ AUGLÝSINGUNA.
------------
f%«ll Splendo
Pilluna
á rúðusprautuna
Hún er óbrigðult meðal við
óhreinum framrúðum!
Olíufélagið hf
Splendo pillan fæst á bensínsfcöðvum ESSO
AUGLÝSINGASTOFA KRISTÍNAR HF 15.62