Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1984, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1984, Side 17
DV. LÁÚG ARDAGÍJR 7. JtjLI 1984. 17 Bflar Bflar Bflar Bflar Bflar Reynsluakstur á Volvo 740 og 760 turbo intercooler: Gef ur stóra bróður ekki neitt eftir — tvö þúsund kílómetra reynsluakstur sýndiað munurinn á bílunum er minni en menn gætu haldið Þegar Volvo kom fram meö „flagg- skip” sitt, 760 bílinn, þá þótti mörgum vera komið of stórt stökk frá 240 bíln- um, munurinn í verði og búnaði þótti þaö mikill að það kallaði á eitthvert millistig. Or þessu var bætt á liðnum vetri með nýjum bíl, 740. Sá bíll er með útlit og margt af búnaði 760 en nær 240 vélaraQi og verðl Á dögunum gafst mér tækifærí til raunhæfs samanburðar á „flaggskip- inu” 760 turbo intercooler annars vegnar og nýja bílnum 740 GLE. Sam- tals var þessum tveimur bílum ekið um tvö þúsund kilómetra á nokkrum dögum svo að góöur samanburður fékkst. Með 760 turbo bílnum hefur Volvo tekist aö koma meö bil sem fátt er hægt að finna að. Vélarorka, aksturseigin- leikar og þægindi fyrir ökumann og farþega eru slík að fátt eitt er hægt að telja til lasts. Þegar hefur verið sagt frá reynsluakstri á 760 bílnum í þessum dálkum svo að hér verður fjailaö um samanburð á þessum bilum og einkum 740 bilinn. Gefur stóra bróöur lítið eftir Sá „niöurskurður” sem gerður var á bílnum frá lúxusbílnum 760 til að koma fram með þennan nýja bíl 740 er það léttvægur að enn má segja að hér sé sami billinn á ferðinni: yfirbygging sem svarar vel kröfum dagsins í dag, aksturseiginleikar sem gefa ökumanni ávallt til kynna að hér situr öryggi í fyrirrúmi. Það er vélaraQ og viðbragð sem verður mest áberandi þegar þessir tveir bílar eru bornir saman. 740 bíll- inn er með 129 hestafla vél á móti 193 hestöQum i turboútgáfunni af stóra bróður. Þessi munur kemur vel fram í þjóðvegaakstri á hraðbrautum eins og þær gerast bestar en verður mun minna merkjanlegur í innanbæjar- akstri. Vissulega gefur v-6 mótorinn í 760 bílnum ökumanninum þægilega tilfinn- ingu og sé gefið inn þrýstast farþegar aftur í sætið líkt og í Qugvél í Qugtaki. En þessi eiginleiki nýtist sjaldan og hefur ekki úrslitaáhrif á mat á eigin- leikum bílanna. Margir myndu ef til vill telja að aöeins fjögurra strokka vél með 129 hestöQ væri of lítið í jafnstóran bíl, en reynslan eftir aksturinn á dögunum skilur eftir þá tilfinningu að afar sjaldan sé það merkjanlegur galli. Vissulega hefur 760 turbo meiri sveigjanleika og er hljóölátarí þegar þörfin kallar á háan snúningshraða og afl, en með réttri notkun gíranna næst ósköp svipuð nýting út úr hestöQunum 129 sem liggja undir vélarhlífinni i 740 bilnum. Hámarkshraðinn liggur í Voivo 740 GLE — þrátt fyrir „niðurskurð” gefur hann stóra bróður 760 litið eftir í þægindum og akstri. Útlitsmunur er enginn ef frá er taiið svart „grillið” að framan og listar á hliðunum. ins á 760 eru sjáanlegur munur á útlit- inu. Það er í innréttingu og innrí bún- aði sem munurinn er merkjanlegur. Sætin eru nær hin sömu, en meira er lagt í áklæði og frágang í 760 bílnum. 760 bíllinn hefur það einnig fram yfir aö hægt er að breyta hæðarstillingu ökumannssætisins í akstrí, sem er mjög þægilegt á lengri leiöum. Báöir bilamir eru með f jögurra gíra kassa með yfirgír sem stýrt er með hnappi ofan á girstönginni. Nokkuö sem nýtist vel í langkeyrslum og sparar ökumanninum margar gír- skiptingamar. Hita- og loftræstikerfið í 740 bílnum er gott og með einföldum stjómbúnaði sem kom vel út í hitanum sem var í Skandinavíu á dögunum, þótt ekki jafnist það á við sjálfvirka loft- kæli/hitabúnaöinn (automatic climate control) búnaðinn sem var í 760 turbo bílnum sem reynsluekið var. Ríkulega búinn aukabúnaði 740 bíliinn er rikulega búinn auka- búnaði í standardútgáfu. Þar á meöal má telja snúningshraöamæli, sam- hæföa læsingu á öllum hurðum, les- lampa fyrir framsæti, hreinsibúnað fyrir framljós og aflstýri. Vilji menn hins vegar fá rafdrifnar rúöur og spegla, s jálfvirku miðstöðina, léttmálmsfelgur eöa hleðslustilltu höggdeyfana sem em í 760 bílnum þá verða menn að opna budduna eilítiö meir. Mælaborðið í 740 bílnum er vel heppnaö og er þægilegt aQestrar jafnt í björtu sem myrkri. Nokkuð sem oft fer ekki saman í bílum i dag. Fáir bílar sem ég hef reynsluekið fara eins vel með ökumann og farþega, jafnt þótt ekið sé um lengri eða skemmri veg. Sérstaklega á þetta við um aftursæti, sem stundum virðast hafa mætt afgangi í hönnun bíla. Viða- mikill fjöðrunarbúnaður afturöxulsins í bílnum gerir það að verkum að aftur- sætisfarþegar sitja mun hærra en í mörgum öðrum bílum. Fyrst þegar 760 billinn kom fram var kvartað yfir of lítilli Iofthæð fyrir aftursætisfarþega, en þetta hefur verið bætt í 740 bílnum, án þess að minnka þægindin. Hvað varðar aksturseiginleika þá er munurinn á 760 og 740 nær enginn. Stýrið er mjög gott og veggrip er nær með eindæmum gott. Það er ekki fyrr en ekið er við brattar og krókóttar aöstæður að umframorkan í 760 turbo skilar sér umfram það afl sem hægt er aðtoga út úr 740 bílnum. Bilið brúað Með 740 hefur tekist að brúa það bil sem margir töldu hafa orðið á milli 760 og 240. Útkoman úr þessum reynslu- akstri sýnir að miðað við þær aöstæður sem eru hér á iandi mætti jaf nvel segja að 740 bíllinn komi betur út, því að sá munur sem er á þessum tveimur bílum nýtist ekki hér og sá aukabúnaður sem 760 billinn hefur umfram nýtist lítt eða ekki nema ekið sé á breiöum hrað- brautum í hinu stóra útlandi. Gaman verður að fylgjast með í hvaða átt 760/740 línan þróast. Sjálf- sagt er enn hægt að gera betur og þar á ég helst von á liprari gírskiptingu sem er f ullþunglamaleg fyrir bíl í jafnháum gæöaQokki. Sama mætti einnig segja um kúplinguna. Einnig væri gaman að sjá þennan lúxusbíl meö góðu velti- stýri sem í dag eru í boði í bílum sem standa þessum bílum i öðru að baki hvað varðar annan búnaö. Og þegar þessi bíll kemur i stationútgáfu, sem mun verða innan tíðar, þá verður kom- inn f jölskyldubíll sem á sér f áa líka. -JR í langkeyrslum fer vel um farþega og rúmgott farangursrýmið nýtist vel. Sætin eru eitt helsta trompið í 760—740, þótt eilítið sé minna í þau lagt í 740 bílnum. Eini ágallinn er að ekki er hægt að breyta stiliingu höfuðpúða eftir óskum hvers og cins. kringum 200 km markið svo að af nægu er að taka sé miðað við þann hraða sem víðast hvar er leyfilegur. Hvað hefur verið sparað? Við samanburð á þessum tveimur bilum kemur upp sú spurning hvað hefur verið sparað? Svarið er einfalt, sé litið fram hjá vélaraflinu, næsta lítið. I Qjótu bragði er munurinn lítill. I út- liti eru bílarnir eins. Aðeins hliðar- listamir og svart grillið í stað króms- VOLVO 740 GLE Lengd: 4785 mm Breidd: 1750 mm Hæð: 1410 mm Bil milli öxla: 2770 mm Þyngd: 1250 kg Vél: 4 strokka m/ yfirliggjandi knastás. 2316 rúmsentímetrar, 129 hestöfl (95 kW) við 5250sn. á mín. Gírkassi: fjögurra gíra með rafstýrðum yfirgír (3ja gíra sjálf- skipting með yfirgír einnig fáanieg). Fjöðrun: Að framan McPhcrson ásamt jafnvægisstöng. Að aftan heill öxull með gormum og átaksútjöfnun á hliðarörmum. Stýrl: Tannstangarstýri með hjálparafli. Tvöfalt hemlakerfi, diskar á öllum hjólum. Verð: 671.000 kr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.