Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1984, Blaðsíða 18
18
DV. LAUGARDAGUR 7. JULI1984,
Likami Annemarie Schenk borinn i
kistu út af kránni þar sem hún
fannst myrt.
Krá nokkur sem heitir Zum
schnellen Klaus og er í þorpinu Alten-
kessel í Vestur-Þýskalandi er mjög
áþekk krám hvar sem vera skal
annars staöar í landinu. Hún er bara
minni. Hún er hrein, þægilega skreytt
húsgögnum en í henni eru einungis
f jögur borö og þaö eru bara tveir kollar
viö bardiskinn. Hægra megin við bar-
inn er gengiö um dyr inn á salernin til
hægri og eldhúsið beint áfram.
Kiaus Becker sem er eigandi staöar-
ins þarf ekki aö vera snar í snúningum.
Altenkessel er sérlega lítiö þorp ekki
langt frá bænum Saarbruecken viö
landamæri Frakklands og þaö eru
sjaldan nógu margir viðskiptavinir til
aö öll sæti viö borðin fjögur séu setin.
Auk þess eru fleiri krár í nágrenninu.
Á hinn bóginn eru jákvæöir hlutir
viö þaö aö eiga krá í þessum stæröar-
flokki á þessum slóðum. Þaö er til
dæmis lítil hætta á aö menn rjúki til og
fari að stela öllu steini léttara. Fyrir
utan nokkra feröalanga þá eru næstum
allir viöskiptavinirnir úr þorpinu og
þeim má treysta fullkomlega.
Klaus Becker var ekki kunnugur
öllum íbúum Altenkessel og nær-
liggjandi sveitarfélaga eins og
eigendur annarra kráa því hann haföi
tekið viö kránni áriö áöur og var ekki
fæddur í héraðinu. Hann treysti viö-
skiptavinum sínum hins vegar full-
komlega og þegar hann að kvöldi þess
fimmta ágúst 1981 fékk hringingu frá
eiginkonu sinni sem baö hann um að
sækja sig úr verslunarleiðangri vegna
þess aö hún haföi misst af strætis-
vagninum þá fór hann af staö án þess
aö hika og skUdi þrjá viöskiptavini
eftir eina. Hann sannfæröi þá um að
hann myndi verða kominn aftur eftir
hálftíma, fór út í bU sinn og ók á braut.
Hann vissi ekki hvaða fólk þetta var en