Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1984, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1984, Blaðsíða 19
DV. FIMMTUDAGUR12. JULI1984. fþróttir fþróttir fþróttir Þrúgandi spenna í jafntef li ólympíuliðanna íþróttahúsið i Seljaskóla lék á reiði- skjálfi lokamínútumar i laadsleik ólympíuliða íslands og Vestur-Þýska- lands i gærkvöld. Spennan þrúgandi og hvatningarhróp rúmlega eitt þúsnnd áhorfenda gifnrleg, það svo að varla heyrðist i flautum dómaranna. Troðfnllt hús. 45 sekúndum fyrir leiks- lok jafnaði besti maður íslenska liðsins, Þorbergur Aðalsteinsson, í 15— 15. Þjóðverjarnir í upphlaup en Michael Roth skant framhjá og ísland fékk tækifæri tfl að sigra. Brotið var á Þorbimi Jenssyni i hraðaupphlaupi og aukakast. Fimm sekúndur eftir. Gefið á Alfreð Gislason sem skaut á markið. Vöfler varði og þessum ótrúlega spennandi leik lank þvi með jafntefli. Sanngjöm úrslit og það má búast við miklum fjölda áhorfenda í Langardals- höfl þegar liðín leika á ný í kvöld. Leikurinn hafði ekki verið rismikill lengstum en spennan þeim mun meiri lokakaflann. Lætin byrjuðu þegar staðan var 15-14 fyrír Þýskaland og 11 mínútur eftir. Einar Þorvarðarson, sem litið hafði varið framan af, komst í mikið stuð í isL markinu. Hann varði vítakast frá Wunderlich og varði vel á 19. min. en braut illa á þýskum leik- manni, sem reyndi að koma í veg fyrir hraðaupphlaup, og var rekinn af velli. Rétt áður hafði fyrirliðanum Þorbimi Jenssyni líka verið vikið af velli. En þó ísl. leikmennimir væru tveimur færri tókst þeim að halda í horfinu. Síðan fullskipað á ný. Varnarleikur liðanna mjög sterkur. Mikið púað á hollensku dómarana. Tvívegis slepptu þeir augljósum vítum á Þjóðverja og verra var þegar þeir dæmdu skref á Bjarna Guðmundsson, sem skorað hafðí fallegt mark eftir hraðaupphlaup. Ekki allt búið með þvi. Víti dæmt á Bjarna nokkrum sekúndum á eftir en Einar gerði sér Iítið fyrir og varði frá Schwalb. Fagnaðarlætin gifurleg og urðu enn meiri þegar Þorbergur jafnaði. HÁVAXNIR ÞJÖÐVERJAR Island hafði yfirhöndina framan af í leiknum, 3—1, 5—3 en þýska liðið jafhaði 5—5. Komst yfir 6—5 í fyrsta sinn á 18. min. Jafiit síðan á öllum tölum. 9—9 í hálfleik. Þýska liði skor- aði tvö fyrstu mörkin í s.h. 11—9 og eftir það var á brattann að sækja. En um miðjan hálfleikinn — eftir að Einar hafði varið víti Wunderlich — tókst Bjarna að jafna með fallegu marki á línu eftir sendíngu Atla, 13—13. Þjóðverjar komust aftur tveimur mörkum yfir, 15—13 eftir 48 mín. en tókst ekki að skora mark síðustu tólf mínútumar. Frammistaða Einars í markinu var þá frábær. Þýsku leikmennirnir eru sumir hverjir mjög hávaxnir og var því erfitt að eiga við vöm þeirra. Auk þess tóku þeir fast á mótL Risinn Wunder- lich er ekki sami leikmaður og áður en það má þó ekki líta af honum. Neitzel, einnig mjög hávaxinn, besti maður liðsins ásamt Völler markverðL Hefur gifurlegan stökkkraft en mikið er um unga stráka í þýska liðinu. KEYRT Á SÖMU MÖNNUM Bogdan Kowalczyk keyrði á nær sömn mönnnm allan leiklnn, þeim Einari, Þorbimi, Kristjáni, Þorbergi, Bjama, Jakobi og Atla. AUreð lék nokkuð, Siggi Sveins, Siggi Gunnars, Þorgils Öttar og Jens stutta kafla. Vissulega sterkor kjarni. Þorbergui var jafnbesti maður isl. liðsins, stjómandi i sóknarleiknum og markhæstur með 4 mörk úr 5 skottiiraunum. Atli byrjaði vel, skoraðl tvö fyrstu mörk tslands en daiaði svo veruiega. Kristján jafn. Skoraði 4/2 mörk, sex tilraunir, og Atli var með 3 mörk ár 7 tilraunum. Missti knöttbm tvivegis eins og Kristján en þar var kannski frekar við dómarana að sakast. Bjami komst vel frá leiknnm, 3 mörk úr fjórum tgraunum en varnarieikuriiui er þó enn ekki nógu góður. Jakob Sigurðsson skor- aði eitt mark og þessi ungi lelkmaður er mjög skemmlilegur. Þorbjöm sterkur í vöminni en leikur hans á Ununni hefur oft verið betri. Einar varði tvö skot fyrstu 40 mín. ieiksins. Komst siðan í mikinn bam. Bæði lið fengn 3 víti í leiknum, Sigurður Sveinsson skaut trambjá úr fyrsta víti tsiands. Einar varði tvö þýskra. Fimm sinnum var bL leikmönnum vikið af velli. Fjóram þýskum. Mörk Þjóðverja skomðu Wunderlich 4/1, Neitzel 4, UIli Roth 2, Springel 2, Meffle, Rauin og Fraatz eitt hver. -hsfm. Mazda 929 árg. '80, ekinn 60.000, vínrauður. Verð 230.000. Einnig: Mazda 929 árg. '80, ekinn 75.000, gullsans. Verð 220.000. Toyota Cressida árg. *81 GL, sjálfsk., ekinn 58.000. brúnn. Verð 330.000. Skipti möguleg á ódýrari. W. 13.00 til 17.00. Suzuki sendibili árg. '83, ekinn 20.000, hvítur. Verð 175.000. Nýbýlavegi 8 Sími: 44144.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.