Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1984, Qupperneq 1
r
•4
SIGRIFAGNAÐ
ALLT UM ÓLYMPÍULEIKANA A BU. 23-34
Útihátíðin íViðey:
Milljón króna tap
Fáir sóttu útihátíðina sem haldin hátíðarinnar ætla þó ekki að gefast
var í Viðey um verslunarmannahelg- upp og hyggjast efna til sérstakrar
ina. Rúmlega fjögur hundruð manns Viðeyjarhátíðar næsta sumar.
lögðu leið sína út í eyna og nemur Tíðindamenn DV skruppu út í Viðey
tapið af rekstri samkomunnar um á sunnudag.
einni milljón króna. Aðstandendur
— sjá nánarábls.3
Þessir þjóðhátíðargestir ofan af landi ætiuðu alls ekki að verða
svangir, svo að ekki dugði minna en heill skrokkur ofan ihópinn.
DV-mynd: SJ.
Fjölmenn þjóðhátíð
— sjá nánarábls. 4
Þessar lögðust tH svefns undir berum himni enda hlýtt i veðri i
Þjórsérdal um helgina. D V-mynd: Kristján Ari
MIKILL FJÖLDI
í ÞJÓRSÁRDAL
— sjá nánarábls. 18
Kristján Ragnarsson, formaður LÍÚ, um loðnuveiðarnar
viðJan Mayen:
„Norðmenn og
Færeyingar
eru ábyrgir”
„Það er auðvitað stóralvarlegt
mál að bæöi Norðmenn og Færeying-
ar virðast nú brjóta á okkur, Norð-
menn með því aö hindra ekki veiðar
annarra þjóöa skipa á gráa svæðinu
við Jan Mayen og Færeyingar með
því aö veiöa þama þótt þeir viti um
allar aðstæður og njóti sérstakra
vildarkjara í okkar landhelgi,” segir
Kristján Ragnarsson, formaöur LltJ,
um loðnuveiðarnar við Jan Mayen
þessa dagana.
Danir sendu fjögur skip á miðin i
skjóli Efnahagsbandalags Evrópu. 1
gær voru þrjú búin að landa en eitt
eftir. Flugvél ísiensku landhelgis-
gæslunnar taldi enn fjögur skip á
miðunum í gær, þar af eitt örugglega
færeyskt, hin sennilega líka eða
dönsk.
Samkomulag er milli Islendinga og
Norðmanna um skiptingu loðnuveiða
á Jan Mayen svæðinu, í hlutföllunum
85% i okkar hlut og 15% í hlut Norð-
manna. Þar sem veiðihlutföll hafa
raskast undanfarið áttum við rétt á
195.000 tonnum af 300.000 tonna
heimiluðum afla i ár, en Norðmenn
105.000 tonnum. Á sínum tíma ætluöu
Norðmenn aö gefa Dönum 20.000
tonn af ársaflakvóta sínum. Þeir
féllu frá því vegna harðra mótmæla
okkar.
„Þeir virðast samt ætla að gefa
Dönum þetta og samkomulagið við
Norömenn er lítils virði ef stór svæði
eru án eftirlits og þaö kemur út á eitt
þótt íslenska utanrikismálanefndin
hafi gert Norðmenn ábyrga fyrir
gæslunni í samræmi við samkomu-
lagið þá. Framkoma Færeyinga er
svo, því miður, svipaðs eðiis,” segir
Kristján Ragnarsson.
„Við hljótum að krefja Færeyinga
um að þeir hverfi frá þessum veiðum
eða missi hlunnindi sín hér við land
aööðrumkosti.” HERB
Ringo Starr tekur lagið Johnnie be good með Stuðmönnum íAtlavík. DV-mynd: FRI.
Yf ir 6000 manns f Atlavík:
RINGO TÓK LAGIÐ
MEÐ STUÐMÖNNUM
„Þetta hefur verið stórkostlegt. Eg
gæti hugsaö mér að koma hingað aft-
ur ef það byðist,” sagði Ringo Starr í
stuttu samtali við DV á útihátíðinni í
Atlavík um verslunarmannahelgina
þar sem hann var sérstakur gestur
hátíðarinnar.
Ringo kom meö konu sinni,
Barböru Bach til Atlavíkur, og það
fyrsta' sem þau gerðu var að bregða
sér á hestbak. Síðan heimsótti hann
hátíðarsvæðið á laugardagsnóttina
og á sunnudeginum varð svo allt
brjálaö er yfir 6000 manns fylgdust
með Ringo Starr og Gunnari Þórðar-
syni taka gamla rokklagið Johnnie
be good ásamt Stuðmönnum. öskrin
og lætin minntu á Bítlaæðið á sínum
tíma enda sagði einhver sem staddur
var á sviöinu: „Þetta er of gott til að
Igetaveriðsatt.”
-FRI.
— sjá nánarábls.2