Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1984, Page 3
DV. ÞRIÐJUDAGUR 7. ÁGUST1984.
3
Hópur Viðeyjarfara kemur aftur til meginlandsins í rigningunni á sunnudaginn.
DV-mynd: S.
Útihátíðin í Viðey:
VEISLA SEM ALDREI
Það var frekar dapurlegt um að lit-
ast í Viðey á sunnudaginn. Auð tjald-
stæði, lokuð sölutjöld og mannlausir
danspallar báru vitni um hátíð sem
komst ekki á laggirnar, veislu sem
aldrei varð.
Utisamkoma sem haldin var í eynni
um verslunarmannahelgina fór að
mestu leyti út um þúfur. Aðsókn var
dræm og óveður setti dagskrána úr
skorðum. Að sögn Kristins T. Haralds-
sonar svæðisstjóra reikna
aðstandendur hátíðarinnar með að
tapa um einni milljón króna.
400 manns
Talið er að um 400 manns hafi lagt
leið sína út í Viðey um helgina og voru
flestir farnir heim eftir hádegi á
sunnudag. Nokkrir unglingar, sem
voru á reiki í rigningunni sögðu í
samtali við DV að margir hefðu farið
eftir óveðrið kvöldið áður. Dagskráin
hefði að mestu fallið niður vegna
veöurs og um nóttina lentu margir i
hrakningum. Tjöld fuku og svefnpokar
blotnuöu en mótsstjórnin skaut skjóls-
«s»«
Tjaldaus tjaldstæði í Viðey. DV-myndir: Kristján Ari
húsi yfir alla sem þess þurftu. Flestir
virtust skemmta sér þrátt fyrir allt og
sögðust Jafnvel koma aftur ef önnur
hátíð yrði haldin í eynni.
Fólk vill komast út úr
bænum
Kristinn svæðisstjóri sagði að
margar ástæður væru fyrir því að
aðsókn hefði verið jafnlítil og raun bar
vitni. ,,En ætli meginástæöan sé ekki
sú að fólk vill komast út úr bænum um
verslunarmannahelgi.”
Hann sagöi aö aöstandendur
samkomunnar ætluöu sér ekki að
gefast upp og væru með hugmyndir
um að efna til sérstakrar Viðeyjarhá-
tíðar fyrstu góðviðrishelgina í júlí á
næsta ári. „Við auglýsum hana vel
VARÐ
fram eftir sumri og sláum síðan til um
leið og kemur gott veður,” sagði
Kristinn. Hann taldi að um 2500
manns þyrftu að sækja slíka hátiö til
þess að hún stæði undir sér fjárhags-
lega.
Poppkorn og pylsubrauð
Laganna verðir stóðu saman í hnapp
Stúlkurnar tvær sögðust hafa skemmt
sér ágætlega þrátt fyrir fámennið í
Viðey.
og gerðu að gamni sínu í skjóli við lög-
reglutjaldið. Þeir sögðu að samkoman
hefði fariö einstaklega vel fram og
engin vandræði átt sér stað sem heitið
gætu. Skipuiag mótsins var gott að
dómi lögreglunnar og umgengni fólks í
eynni til fyrirmyndar.
Fjallháir staflar af óseldu
poppkorni og pylsubrauöi biðu þess á
bryggjunni að vera fluttir aftur í land.
Heilmikið mas út af engu. -EA.
ALDREI SKEÐ ÁÐUR
Frá því aö innflutningur á UNO hófst höfum viö
aldrei átt jafn margar geröir af UNO til sölu í einu.
1 Bjóöum nú nokkur eintök af eftirtöldum geröum á
frábæru veröi eins og fyrr:
6 ÁRA RYÐVARNARÁBYRGÐ
UNO BASIC 3d
UNO 45 SUPER 3d
UNO 55 3d
UNO 45 ES 3d
1 UNO 55 SUPER 5d
UNO 70 SUPER 5d
kr. 218.000.-
kr. 248.000.-
kr. 250.000.-
kr. 260.000.-
kr. 269.000.-
kr. 299.000.-
(gengi 1/8 '84)
MEST SELDIBILL
ÁÍSLANDI
EGILL
VILHJÁLMSSON HF.
r