Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1984, Page 9

Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1984, Page 9
DV. ÞRIÐJUDAGUR 7. ÁGUST1984. Útlönd Útlönd Þar sem áður var blómleg borg var auðn. Hiroshima eftir að bandarisk kjarnorkusprengja eyddi borginni 6. ágúst 1945. Japan: Kjarnorkuárásarinnar á Hiroshima minnst Hiroshimabúar minntust þess í gær aö 39 ár eru liöin frá því aö bandarisk kjamorkusprengja jafnaði borgina við jörðu. Rúmlega 40 þúsund manns söfnuö- ust saman til aö minnast sprengingar- innar og hinna 140 þúsunda sem létu lífið. Kjamorkusprengjan, sem varpað var á Hiroshima 6. ágúst 1945, var hin fyrsta sem notuð var í hemaði. Borg- arstjóri Hiroshima, Takeshi Araki, sagði fundarmönnum að Bandaríkin og Sovétríkin ættu í kjamorkuvopna- kapphlaupi sem endað gæti í gereyð- ingu. „Þeir láta sér ekki nægja meðal- drægar flaugar í Evrópu og Asíu, nú ná kjarnorkuáætlanir þeirra til geimsins og auka þannig hernaöarspennu í öll- um heiminum og ýta heiminum fram á hengibrún kjarnorkustyrjaldar,” sagði borgarstjóri Hiroshima. Á afmælinu var bætt nöfnum við lista þeirra sem farist hafa af völdum kjarnorkusprengingarinnar. Á síðustu tólf mánuðum hafa 2573 látist af orsök- um sem má rekja til langtímaáhrifa sprengingarinnar. Nöfnin á listanum eru nú 113 þúsund 271. Aldrei hafa ver- ið borin kennsl á 20—30 þúsund manns sem létust aö auki í árásinni. Forsætisráðherra Japans, Yasuhiro Nakasone, sendi fundinum yfirlýsingu þar sem hann hét að berjast gegn til- vist kjamorkuvopna. Hiroshimabúar þögöu allir sem einn og námu staðar þar sem þeir voru nið- ur komnir klukkan nákvæmlega 8.15 en á þeirri stundu sprakk sprengjan fyrir 39 ámm. Að því loknu var þúsundum hvítra dúfna sleppt og kór söng minningarlög um fórnarlömb árásarinnará útifundinum. Vel heppnað evrópskt geimskot Vel heppnað geimskot Ariane-flaug- arinnar vestur-evrópsku eykur til muna vonir geimtæknimanna um að álfan geti veitt Bandarikjamönnum harða samkeppni á sviði fjarskipta- gervihnatta. Ariane-flauginni var skotiö á loft frá frönsku Guyana á laugardag og tókst það mjög vel. Flaugin hefur tvo fjar- skiptagervihnetti innanborðs og á að koma þeim á sporbraut um jörðina. Það er sameignarfyrirtæki vestur- evrópskra geimtæknifyrirtækja sem stendur fyrir geimskotinu með stuðn- ingi ýmissa ríkja í álfunni. Atta slík geimskot eru áætluö á næstaári. Bandaríkin: McNamara gagn- rýnir Reagan Fyrrum bankastjóri Alþjóðabank- ans, Robert McNamara, gagnrýndi stjóm Ronalds Reagans Bandaríkja- forseta harölega fyrir stefnu hennar í bameignamálum. Reaganstjórnin hefur nýverið kynnt nýja stefnu í þessum málum en sam- kvæmt henni veröur allri aðstoð ríkis- ins við samtök sem mæla fóstureyðing- um bót hætt. ,,Ég held aö þetta sé mjög baga- legt,” sagði McNamara í sjónvarps- viðtali um helgina. ,,Ég held aö þetta stuðli frekar að auknum fóstureyðing- um en hinu. Samtök á borð við alþjóða- samtök fyrir skynsamlegri notkun getnaöarvarna styðjast nær eingöngu við ameríska sjóði. Þau munu ekki lengur fá fé og þar fara öflugustu öfl í heiminum sem berjast fyrir skipu- lögðum barneignum. Umsjón: Guðmundur Pétursson Stefna Bandaríkjastjórnar mun ' verða eitt aðalumræðuefni á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um fólksfjölda sem hefst í dag. GÆÐATÆKI Glerárgötu 32 • Akureyri Týsgata 1. Pósthólf 1071.121 Reykjavik Simar 10450 & 20610. SJÓNVARPSMIÐSTÖÐIN® |Síðumúla 2 — Símor 09090, verslun 09 39091, verkstæði. Ámsterdam borgin sem kemur á óvart Fullyrða má að fáar borgir Evrópu njóta jafnmikilla vinsælda íslenskra ferðamanna og Amsterdam, enda býr hún yfir miklum töfrum og býður ferðamanninum flest það, sem hugur hans girnist, svo sem mikið og fjölbreytt úrval verslana, skemmtistaða, veitingastaða og ekki síst fjölda stórbrotinna listasafna og annarra menningarstofnana. Saga býður marga ferðamöguleika til og frá Amsterdam. Helgarferðir — flug og gisting Vikuferðir — flug og gisting Flug og bíll — 1 vika, fjórir í bil. verð kr. 13.600,- verðkr. 15.900,- verðkr. 11.084,- Ferðaskrifstofan Laugavegi 66. ’ 101 Revkjavik, Simi 28633 er meða nótunum * Ö3$5 Ö TfObte psrth CftKát. Ssanvo S Awt0 ftíwe Enn er komin ný sending af hinum frábæru Sanyo bíla- tækjum og verðið er við allra hæfi. FT-280, tæki hinna kröfuhörðu. Verð aðeins kr. 11.305. ! Kostaði áður 28.946,- / 0 5. I 5 €999 11.305,- 15 sinusvatta endamagnari með minni bjögun en 1%. FM Stereo, mono, LW og MW. Sjálfvirkur stöðvaleitari með 13 minnum - G FM, 6 MW, og 1 LW. Tengill fyrir sjálfvirkt rafmagnsloftnet. SDK-umferðarupplýsingamóttakari (notast erlendis) auto reverse (afspilun snældu í báðar áttir). Hraðspólun í báðar áttir. Lagaleitari. Dolby Nr suðueyðir. Stillingar fyrir metal, króm og normal snældur. Aðskildir bassar og diskant tónstillar. Balance stillir loudness. Innbyggð digital klukka. Staðgr. <2\ Gunnar Ásgeirsson hf. Suöurlandsbrant 16 Sími 91 35200

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.