Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1984, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1984, Side 10
10 DV. ÞRIÐJUDAGUR 7. ÁGÚST1984. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd r-———-------1 Vandræðin j útlendingumi að kenna j — rifjuð upp fróðleg | ummæli Le Pen Jean-Marie Le Pen er um margt I einn skrautlegasti stjórnmála- • maöur Frakka og ljóst er aö | persónuleiki hans á stóran þátt í I uppgangi Front National. Eins og á Islandi skammtar I franska sjónvarpið hverjum flokki * ákveöinn tíma til aö kynna sjónar-1 miö sín fyrir kosningar. Fá þá _ þingflokkarnir hálfa klukkustund ■ en hinir aðeins örfáar mínútur. Til aö mótmæla þessu mætti Le * Pen meö svartan klút reyrðan um I andlit sitt í kynningu Front. National, reif hann af sér eftir ör-1 fáar sekúndur og mælti: „þaö ríkir ■ ekki málfrelsi í þessu landi.” Á undanförnum árum hefur Le I Pen látiö margt út úr sér sem hann * hefur ekki veriö of stoltur af. Hér á eftir fylgja nokkur gull-; korn sem hrotið hafa úr munni eöa | penna Jean Marie Le Pen. Áriö 1968 stjórnaöi Le Pen plötu-1 fyrirtæki. Ein af hljómplötunum I sem hann gaf út var: Safn söngva ■ úr þýsku byltingunni. Og þar mátti I lesa aftan á umslagi: „Uppgangur * Adolfs Hitlers og þjóöernisjafn-5 aðarmanna flokksins einkenndist | af starfsemi kröftugrar fjölda-. hreyfingar sem var aö öllu leyti al-1 þýöleg og lýöræðisleg.” Aðspurður um afstööu sína til I útrýmingarherferöar nasista á I hendur gyöingum: „Þaö hafa veriö svo mörg þjóö-1 armorö! Fyrir okkur keltana (Le . Pen er bretóni) er óvinurinn miklu | frekar Englendingar eftir g’spi þeirra í Mers el Kébir.” (Le I Pen vitnar í að Bretar sökktu I franska flotanum til aö koma í veg ■ fyrir aö hann lenti í höndum Þjóð-1 verja í síöari heimsstyrjöldinni.) Aðspuröur imi mikla sölu á SS- * búningurn í verslunum í París segir I Le Pen: „Unga fólkiö hefur þörf “ fyrir hreinleika. Á tímum þar sem I guðleysi ræöur ríkjum eykst þörf . imgs fólks fyrir siöræna reglu- ■ semi.” Um Araba áriö 1984: „Ef þiö passiö ykkur ekki munu þeir setjast aö hjá ykkur, boröa súpuna ykkar og sofa hjá konunni ykkar, dóttur ykkar eða syni ykkar.” Um kynvillinga árið 1984: „Mesta ógn sem steðjar aö mann- kyni er lítill f jöldi fæðinga í hinum vestræna heimi og offjölgun í þriðja heiminum. Kynvilla leiðir okkur að heimsendi” og ef sonur hans væri kynvilltur? „Eg henti honum út en hvort sem er yröi sonur minn aldrei kynvilltur”. Um frú Simone Veil, fyrrverandi forseta Evrópuþingsins og fyrr- verandi ráöherra: „Herra Veil, því svo kalla ég pólitískan andstæðing minn sem skipulagöi morö á ung- bömum...” Veil lagöi fram frum- varp um frjálsar fóstureyðingar sem var samþykkt. Þessi ummæli eru tekin af handahófi og eru engan veginn þau verstu sem Le Pen hefur látið út úr sér. Jean-Marie Le Pen hrósaði sigrii Evrópuþingskosningunum. Gyðingahatri var óspart beitt gegn Mendés-France, Poujade kallaöi hann yfirleitt Mendés-Portugal til aö minna á portúgalsk-gyðinglegan uppruna stjórnmálamannsins. Ungur á þing Le Pen var um tíma í miklu uppá- haldi hjá Poujade og svo fór aö honum skolaöi inn á franska þingið í stórsigri poujadista 1956, aðeins 27 ára aö aldri. Hann varð fljótlega þekktur á franska þinginu fyrir ósvífinn málflutning og hvaö eftir annaö varö þingforseti að þagga niöur í þessum unga óróasegg er hann notaði sér ræöustól til aö komast upp meö róg og níð í skjóli þinghelgi. Le Pen varö fljótt leiöur á þinginu, enda ætíö fyrstur til aö benda á vánkanta þingræðisins og krefjast sterkrar stjómar. Hann ákvaö að taka sér frí frá þing- störfum og gekk í franska herinn. Var þar í útlendingahersveit meö, að eigin sögn, „ýmsum mætum mönnum sem sumir hverjir höfðu getið sér gott orð í Waffen-SS”. franska efnahagsundrinu á sjötta og sjöunda áratugnum meö því aö skaffa ódýrt vinnuafl. En nú var franskur efnahagur á fallandi fæti og ekkert pláss fyrir þetta lið. Á þessu hefur Le Pen hagnast. Um miðjan áttunda áratuginn kynntist Le Pen ungum, öfgasinnuöum milljónamæringi. Svo fór aö maðurinn sem erft hafði fyrirtæki í sements- framleiösluveiktist. Tóku Le Pen og kona hans manninn aö sér og hjúkruöu honum uns hann dó. Er erfðaskrá hans var opnuö kom í ljós að hann arfleiddi Le Pen aö öllum eigum sínum. Á uppleið Þetta gat ekki komið á betri tíma fyrir Le Pen. Hann hóf nú skefjalausa baráttu fyrir að koma hugðarefnum sínum, Araba- og útlendingahatri á framfæri. Ekki bar þaö þó tilætlaðan árangur fyrr en stjórn Mitterrand var búin að svíkja öll loforð og efnahagur landsins var kominn á kaldan klaka. I árs- byrjun 1983 fer Le Pen loks yfir þessi 1 til 2% sem hann hefur ævinlega haft í Franskur fasismi fékk uppreisn æru 17. júní FERILL JEAN-MARIE LE PEN RIFJAÐUR UPP „Le CHOC” — „Le Poison”. „ÁfaiÚið” — .Jíitrið”. Slíkar voru fyrir- sagnir Parísarblaðanna eftir Evrópu- kosningarnar 17. júní síðasthðinn. Hvað oUi? Sannarlega var það ekki hrun kommúnista eða fylgistap sósíal- ista sem þessu olU. Nei, það var stór- sigur Front National. Front National fékk 11% atkvæða í kosningum til Evrópuþings, aðeins 20 þúsund atkvæðum minna en franski kommúnistaflokkurinn. I fljótu bragöi mætti ætla aö hér væri ekki um alvar- legt fyrirbæri að ræöa. Blöð utan Frakklands greindu frá því aö „hægri- sinnaðir þjóöernissinnar” heföu unnið sigur en alUr hömruöu á ósigri Francois Mitterrands og vinstri flokk- anna. Svo einfalt er þaö nú ekki því hinir klassísku hægriflokkar: Rassem- blement pour la Republique(RPR- nýgaulUstar) og Union democratique pour la France (Giscardsinnar) töpuðu einnig. Front National, og þá einkum for- ingi og stofnandi hans, Jean-Marie Le Pen, voru sigurvegararkosninganna. Fasistar En því er litið svo alvarlegum augum á sigur hans í Frakklandi? Því er til aö svara að hér er á ferðinni flokkur kynþáttahatara, útlendinga- hatara og fasisma. Þetta kunna að þykja stór orð en ég held að það verði að kaUa hlutina réttum nöfnum. „Hægrisinnaður þjóðernissinna-. flokkur” — sú lýsing gæti átt við Sjálf- stæðisflokkinn eða nýgauUista en Front National er af öðrum meiði. Ef litið er á feril Jean-Marie Le Pen skýrist þetta nánar. Hann var of ungur tU að berjast í síðari heimsstyrjöldinni og hélt sig að mestu í sínu heimahéraöi á Bretagneskaga. Að stríöi loknu hélt Le Pen menntaveginn og lagði stund á lögfræðinám í höfuðborginni, París. Lagadeild Sorbonne-háskóla hefur löngum þótt gróörarstía fasískra við- horfa — sumir hafa leitt rök aö því að þar sé vöggu þeirra að finna. Le Pen varð fljótlega foringi slags- málaflokka fasista, öfgasinnaðra hægrimanna, sem fóru með báU og brandi um Latínuhverfiö. Hann lenti hvaö eftir annaö í kasti viö lögregluna og í skýrslum hennar má finna ásakanir á hendur Le Pen fyrir líkams- árásir, drykkjuskap og fleira sem ein- kennt hefur Le Pen allt fram á vora daga. Ekki varð hann þó eUidauöur í ryk- ugum sölum lagadeildar Sorbonne-há- skóla. Hann ákvað að halda tU Víet- nam og berjast þar með franska her- Uöinu í vonlausri baráttu þess gegn öflum sem kröföust sjálfstæðis lands- ins. Heim kominn hóf hann á ný af- skipti af stjórnmálum. Hann komst í kynni við Pierre Poujade sem var eins konar Mogens Glistrup franskra stjórnmála á sjötta áratugnum. Poujade var foringi samtaka smá- kaupmanna og handverksmanna sem náðu fjöldafylgi á þeim tíma sem Frakkland var að breytast úr tiltölu- lega Utt þróuðu efnahagskerfi í eitt af stóru iðnríkjum vorra daga. Poujade barðist einkanlega hart gegn Pierre- Mendés France, foringja radíkala á þessum tíma og forsætisráðherra. Barist var í Alsír á þessum tíma. Le Pen hélt þangað og lét skjótt mjög tU sín taka. Ef skýrslur franska hersins frá þessum tíma eru athugaðar kemur margt fróðlegt í ljós. Le Pen var hvað eftir annað kærður fyrir fólskulegar árásir á Araba, bæði í og utan vinnu- tíma. Meðal annars voru mörg vitni að því að Le Pen fór fyrir flokki manna sem beittu rafmagnspyntingatólum á ungan Araba og drekkingaraðferðum. Ástæðan: Hann haföi neitaö aö selja frönskum hermönnum áfengi eftir lög- skipaðan lokunartíma. Á móti De Gaulle Fjórða lýöveldið franska hrundi 1958 og poujadistar gengu ýmist til liðs við De Gaulle eða misstu þingsæti sín ella vegna mikils fylgis hershöfð- ingjans. Þó ekki Le Pen, hann náði að halda sæti sínu í Latínuhverfinu í París þrátt fyrir andstöðu sína bæði við gamla kerfið, fjóröa lýðveldið og De Gaulle. Þetta var þó skammgóður vermir því 1962 var honum kastað út af þingi. Um þetta leyti lenti Le Pen í undarlegu máli. Á hávaðasömum fundi poujadista var gerður aðsúgur aö Le Pen sem lauk með því að annaö augað var krækt úr honum. Gekk Le Pen upp frá því meö pjötlu fyrir auga aö hætti sjóræningja. Næstu áratugum í lífi Le Pen má líkja viö eyöimerkurgöngu. Hann starfaði aö pólitík yst á hægri kanti stjómmálanna en hafði ekki árangur sem erfiði. Á sjöunda áratugnum var einn mesti uppgangstími franskrar sögu. Aö vísu sprakk sæluríkið í loft upp með hvelli í maí 1968 en það voru vinstri menn sem áttu daginn. Stofnar Front National Olíukreppur og efnahagsvandræöi tóku að gera vart við sig upp úr 1974. Tveimur árum áöur hafði Le Pen stofnað flokk, Le Front National. Hann var og er fyrirliði, þjálfari, senter og vítaskytta eins og sagt er á knatt- spyrnumáli. Hann safnaði þar í kring- um sig ofstækismönnum. Og aöalmálið varö: Losum okkur við útlendingana og læknum þannig atvinnuleysið, minnkum glæpi og sköpum sæluríki. Þetta var aö vísu sami söngurinn og hann hafði kyrjað alla tíð, þótt meira bæri á gyðingahatri áður fyrr. En að- stæður þjóðfélagsins voru honum í hag. Utlendingar, einkum Norður- Afríkubúar, höfðu átt stóran þátt í Dæmigert fyrir viðbrögð vinstri manna við uppgangi Le Pen. Forsiða Nouvei Observateur með risaletri: LE PEN eitrið. skoöanakönnunum. Frá þeim tíma þar til í júní 1984 hefur vegur hans farið vaxandi og í Evrópukosningunum 17. júní sl. fékk flokkur hans 11% atkvæða og var sjónarmun á eftir franska kommúnistaflokknum sem hafði 26% atkvæða fyrir aðeins tæpum 40 árum. Sigur Le Pen Sigur Le Pen var eins og leiöara- höfundur frjálslynds Parísarblaðs sagði: „Osigur skynseminnar, ósigur lýðræðisins, ósigur slagorðs franska lýðveldisins — frelsi, jafnrétti, bræðra- lag. I kosningabaráttunni fyrir Evrópu- þingskosningarnar mátti þegar greina að aðferöirnar voru þær sömu og í stjórnmálum fjórða áratugarins. Öryggissveitir Front National kljáðust við vinstri menn og slagsmál á götum úti voru daglegt brauð er flokkarnir á vinstri og hægri kanti stjórnmálanna funduðu. Og þegar foringjar stjórnmálaflokk- anna þinguðu í beinni útsendingu að- faranótt 18. júní gerðist fáheyrður at- burður. Varaformaður Sósíalistaflokks- ins, Jean Popemen, gekk út, er Jean- Marie Le Pen mætti í útsendinguna og sagði: „Til hvers var ég að berjast gegn nasismanum í andspyrnuhreyf- ingunni ef það hefði allan tímann legið ljóst fyrir að það hefði verið hægt að ræða viö fasista? ” ás—(Heimildir Le Nouvel Obser- vateur, Liberation, Le Point....) Umsjón: Árni Snævarr Efnahags- örðugleikar sem stjórn Mitterrands hefur orðið að berjast við hafa reynst vatn á myllu Le Pen.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.