Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1984, Qupperneq 16
16
DV. ÞRIÐJUDAGUR 7. ÁGOST1984.
Spurningin
Finnst þér að Ríkið ætti að
vera lokað daginn fyrir
verslunarmannahelgina?
Snorri Gunnarsson: Nei, alveg örugg-
lega ekki.
Davíð Gunnarsson: Eg held að mér sé
alveg sama.
Hólmfríður Sigurðardóttir: Ég veit
það ekki. Mér er alveg sama.
Leifur Núpdal: Ég held aö það skipti
engu máli. Þá er vínið bara keypt dag-
inn áður. Bönn kunna aldrei góðri
lukkuaðstýra.
Þorvaldur Bragason: Nei, það finnst
mér alls ekki.
mm
Herdís Arnardóttir: Nei, það finnst
mér ekki.
Lesendur Lesendúr Lesendur Lesendur
Er veríð að taka teiknimyndirnar af
börnunum með kiámi?
Bíósýningar
fyrir börn
eru of fáar
3241—7884 skrifar:
Mér finnst fjári hart þegar farið er
aö taka teiknimyndirnar af börnunum
með því aö gera klámteiknimyndir
sem eru til á vídeóleigum og óhugnan-
legar sem eru bannaöar börnum. Ég
tel að fólk sé smáskrítið sem nennir aö
horfa á slíkar myndir. Er ekki nóg að
við fáum bíómyndir og leyfum börnun-
um aö hafa teiknimyndirnar í friði?
Mér finnst alltof lítið af myndum í bíó-
um fyrir bömin. Myndir sem eru sýndar
á sunnudögum kl 3 er búið að sýna
alla daga á venjulegum sýningum.
Krakkar geta alveg séð þær þá. Þetta
eru ekki myndir fyrir 3—7 ára. Haldiö
þiö aö þau skilji þessar myndir? Þau
eru síspyrjandi út alla myndina:
„Hvað er aö ske núna?” Þess þurfa
þau ekki á mynd viö þeirra hæfi. Af
hverju eru bíóin hætt aö hafa sýningar
fyrir börnin kl. 3, teiknimyndir og
ævintýramyndir? Ég skora á bíóin að
taka þær upp aftur.
ölvir skrifar:
Ég las í DV um daginn aö þaö heföi
veriö bannaö að auglýsa bjórblendi á
rás 2 vegna þess að það heföi veriö
áfengisauglýsing. I fréttinni kom
fram, sem ég sannreyndi síðar, aö
bjórblendiö er algjörlega óáfengt. Því
finnst mér þetta bann alveg út í hött.
Lengi er nú búiö að fjargviðrast út
af bjórnum en eins og allir vita reis
óánægjubylgjan hæst á þessu ári. Þær
raddir sem krefjast þess aö hægt sé aö
kaupa bjór hafa aldrei veriö háværari
og er þaö ofur skiljanlegt. Fólki er
nefnilega fariö aö þykja nóg um hvern-
ig þaö er hunsaö ár eftir ár og eiga þar
stærstan hlut að máli dreissugir stjóm-
málamenn og aðrir forræðishlunkar.
Bjórbannið á Islandi er alger rök- og
vitleysa út í gegn og þjóöinni til háð-
ungar.
Umræðan hefur legiö dálítið niðri í
sumar en bannið á útvarpsauglýsing-
unni vekur athygli á málinu aftur. Nú
er bara aö vona aö baráttufólk um
bjórinn taki viö sér með haustinu af
auknumkrafti.
deildarstjóri bifreiöadeildar ráöinn án
þess aö hafa nokkru sinni starfað viö
bifreiðatryggingar en mörgum all-
reyndum starfsmönnum bifeiöa-
deildar hafnaö?
3. Hvers vegna birtir félagiö ekki
tæmandi lista yfir tjónbílakaup starfs-
manna félagsins, samanber þaö sem
blaöamaöur DV segir í athugasemdum
sínum þann 31. júlí sl. við skrif deildar-
stjóra bifreiðadeildar?
4. Hvers vegna hefur viöskipta-
vinum Samvinnutrygginga GT ekki
veriö greiddur tekjuafgangur síöustu
árin? Á iögjaldakvittun er dálkur fyrir
slíkan afgang til lækkunar tryggingar-
iðgjalda. Ég minnist ekki aö hafa
fengiö slíkan frádrátt síöastliöin 10 ár,
þó svo vitað sé að tekjuafgangur hefur
oröiö hjá félaginu allflest árin, þó
mestur síöasta rekstrarárið, okkur
samvinnumönnum til mikillar ánægju,
en ég hélt aö þessi tekjuafgangur ætti
að renna til félagsmanna, þ.e. við-
Bréfritari varpar fram spurningum um Samvinnutryggingar en hús fyrir- skiPtavina félagsins.
tækisins er lengst til hægri. Hvaö ®tlar stjórn félagsins aö
Samvinnutrygg-
ingahneykslið
Tryggingataki skrifar:
Undanfarna daga hafa birst á
síðum DV fréttir um aö eitthvaö sé
ekki eins og það eigi að vera í meöferð
Samvinnutrygginga GT á þeim bif-
reiðum sem félagið kaupir af við-
skiptavinum sínum er verða fyrir
tjóni. Ég er viöskiptavinur þessa
tryggingafélags og þar af leiðandi einn
af fjölmörgum eigendum þess og satt
best aö segja þá vonaði ég aö þetta
væri ekki satt. Nú hefur svo brugðið
við aö hluti þess sem blaðiö hefur
haldið fram hefur veriö staöfest og
varð ég aö vonum fyrir miklum von-
brigðum. Þessar staðfestingar koma
fram í athugasemdum deildarstjóra
bifreiðadeildar í DV 31. júlí sl. Þar
svarar hann ýmsu því sem blaöið hefur
haldið fram en lætur ööru ósvaraö og
skrifar eins og hann hafi ekki séð frétt
blaðsins þann 25. júlí sl. I þeirri frétt
kemur fram aö deildarstjóri bifreiða-
deildar hafi misnotaö aðstöðu sína. Er
þetta rétt? Þar kemur einnig fram aö
svo virðist sem leyna hafi átt málinu
fyrir stjórn félagsins. Er þetta rétt? 1
fréttinni er einnig sagt frá skýrslu sem
endurskoöandi félagsins gerði um
þetta mál. Hvernig væri aö birta inni-
hald hennar? Viö þessum spurningum
þarf aö fá svör, fyrr getur félagið ekki
hreinsað sig. Eða er þaö kannski rétt
sem haft er eftir framkvæmdastjóra
félagsins aö engum komi þetta við? Ég
er ekki viss um aö allir tryggingatakar
séu sammála því, allavega ekki ég, því
Samvinnutryggingar GT eru ekki neitt
einkafyrirtæki. Það er samvinnufyrir-
tæki og á sér því engin einkamál.
Viö þessum spurningum væri fróð-
legt að fá svör. Einnig væri fróölegt aö
fá svör viö eftirfarandi spurningum þó
þær tengist ekki þessu máli beint (og
þó).
1. Hvaö mælir með því að
framkvæmdastjórinn hafi tvær bif-
reiðar til afnota frá félaginu? Vitaö er
aö hann hefur tvær bifreiöar til afnota
frá félaginu og þaö ekki af verri
endanum, Opel bifreið af dýrustu gerö
og japanskan „jeppa” frá bifreiöa-
umboði Sambands íslenskra sam-
vinnufélaga. Mér er ekki kunnugt um
aöra framkvæmdastjóra samvinnu-
hreyfingarinnar sem jafnhressilega er
hlaðið undir í bifreiöakosti.
2. Hvers vegna var núverandi
gera í þessu máli og hver eru svör
hennar og framkvæmdastjóra viö
ofangreindum spurningum?
Mér finnst aö félagið eigi aö opin-
bera allan sannleika málsins og
hreinsa sig og starfsmenn sína af þeim
áburöi sem DV ber þaö. Þaö getur ekki
verið sæmandi svo stóru samvinnu-
fyrirtæki sem Samvinnutryggingar
eru aö láta slíkar fréttir berast um sig.
ORÐSENDING
TILKARLA
Þriggja barna móðir skrifar:
Þið f jölmörgu karlmenn sem gefiö
ykkur tíma til að skrifa háfleygar
greinar um fóstureyöingar með upp-
hrópunum um morð, eins og Hannes
H. Gissurarson í DV þann 26. júlí,
þar sem hann notar tækifæriö til aö
koma sinni skoöun' á þessum málum
gegnum gagnrýni á fjölrit Félags
áhugamanna um heimspeki.
Ég vil koma með nokkrar
spumingar til ykkar, karlar, sem ég
tel að gætu gefið upp helstu ástæður
fyrir því að móöir grípur til þeirra
örþrifaráða að fá fóstureyðingu.
Hvaða umönnun sýna feður börn-
umsínum?
Hve mikinn þátt taka feður í upp-
eldi barna sinna?
Hvað getur væntanlegt „lausa-
leiksbam”, sem oftast er alið upp
hjá móöur, búist við að sjá af fööur
sínum?
Hve margir eru þeir karlar sem
eiga böm utan hjónabands eöa eftir
skilnað og telja sig góöa meö því einu
aöborga meðlag?
Hve margir karlar hafa yfirhöfuð
einhverja ábyrgðartilfinningu fyrir
bömum sínum?
Hvað finnst ykkur körlum um
stöðu verðandi móður í dag?
Karlar! Er ekki kominn tími til aö
„Hvað finnst ykkur köríum um
stöðu verðandi móður i dag? spyr
brófritari.
þið notið frekar tímann til að leita
skýringa á þessum „fjöldamorðum”
og leiða kynbræðrum ykkar fyrir
sjónir að þeir eru hrikalega samsek-
ir í staö þess að þruma yfir landslýö
eins og æöri dómstóll.
Engin ný kærasta hjá Símoni.
SÍMON ER
SINNI,
DÖMU TRUR
Duran Duran aðdáandi skrifar:
Þaö var grein í blaðinu i dálknum
Sviðsljós um hirrn sæta poppsöngvara
Símon LeBon, þar sem gefið var til
kynna aö hann hefði fengiö sér nýja
kærustu. Þetta er algjör vitleysa. Eftir
söngvaranum í einu Oh Boy blaöanna er
sagt að hann hafi aldrei heyrt aðra eins
vitleysu. Um þetta leyti er skiptin á
konunum áttu að hafa farið fram voru
Símon og kærasta hans, Clair, aö leita
sér aö íbúö til aö búa saman í.
Fáránlegt
banná
auglýsingu
,'AFEIMGr
/S.ÖIMIMUR>
' VHVIUEFIMI'
Áfengi og
önnur vimu-
efni eiga aldrei sam-
leiö meö akstri, hvorki á
feröalagi né heima viö
Ekkert hálfkák aildir i
þéim efnum.
yxERi