Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1984, Qupperneq 26

Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1984, Qupperneq 26
38 DV. ÞRIÐJUDAGUR 7. ÁGÚST1984. Hjalti Geir Kristjánsson afhendir Einari Guðmundssynigullúrið. D V-myndir Kristján Ari IM Heiðraður á 60 ára starfsafmæli sínu Einar Guömundsson, starfsmaöur í vélsmiöjunni Hamri, átti 60 ára starfs- afmæli þann 1. ágúst sl. og var honum af því tilefni haldiö hóf þar sem voru saman komnir gamlir starfsfélagar-og stjórn Hamars. Sennilega er þaö eins- dæmi aö starfsmaður nái 60 ára starfs- aldri en sjáift fyrirtækiö, vélsmiöjan Hamar, er 66 ára. Einar sagðist enn vera í fullu starfi. ,,Eg var þar í gær og í dag og verö þar á morgun,” sagöi Einar. Hann sinnti venjulegum skrif- stofustörfum uns hann tók við síarfi gjaldkera sem hann gegndi í 33 ár. Fyrir hönd stjórnar Hamars afhenti Hjalti Geir Kristjánsson Einari áletrað gullúr og sagði við þaö tækifæri: „Þaö var gæfuspil er Einar var ráöinn til Hamars. Kjölfestan í hverju fyrirtæki eru góðir starfsmenn. ’ ’ ÞJH *— ---------------->- Einar Guðmundsson ásamt konu sinni, MargrétiÁgústsdóttur. í blíðunni á Hofsósi Mikið blíðskaparveður hefur verið að undanförnu á Hofsósi og hafa bæjarbúar notið veðurbliðunnar i rikum mæli. Á dögunum tóku foreldrar á staðnum sig tH og settu upp leiktæki við leikskólann. Á meðan dyttuðu börnin að nánasta umhverfi. ISÉSi Jón Þór Sigmundsson, rallkappi. Torfærurallmót í Borgarnesi Frá Sigurjóni Gunnarssyni, frétta- ritara DV í Barnarnesi: „Strákar, komiö þiö! Þaö er skrán- ing hérna uppi á hólnum”. Rauð- hæröur strákur meö freknur og gler- augu veifar skráningablööum. Tor- færukeppnin er aö byrja. Frábær braut Svæöiö er eins og sérhannaö fyrir sh'k mót. Þar skiptast á drullupollar, hrossaskítshaugar, hólar og hæöir. Fréttaritari er staddur í Votadal í Borgarnesi þar sem áöur var aðal- hesthúsabyggð Borgnesinga en nú eru þar aðeins fáeinir kofar. Keppn- isbrautin er lögö um allt svæöiö og er afmörkuö meö baggaböndum. Hrossaskít er mokaö út í pollana til þess aö gera keppnina meira spenn- andi. Þetta er erfið braut. Nokkrir veröa aö hætta keppni þegar úthaldið brestur og aörir eiga viö alvarlegar bilanir aö stríöa. Það springur og keöjurfljúgaaf. Adam bestur Það fór kbður um áhorfendur þeg- ar sá sigurstranglegasti fór af staö og mátti heyra „Adam sigrar, þaö er alveg öruggt.” „Adam er bestur. Hann er líka á svo góöu hjóli.” Og Adam bregst ekki aödáendum sínum og sigrar án þess aö fá refsistig. Ákveðnar reglur Annar stjórnandinn veröur aö hlaupa meö keppandanum og telja stigin og því veröa stjórnendur aö vera í góöu líkamlegu formi. En það er ekki byrjað að telja fyrr en komin eru fjögur stig. Þó má leiða hjóliö yfir versta skíthauginn án þess að þaö teljist meö en aöeins yfir sjálfan hauginn. Og ekki voru allir sáttir viö niöurstööumar: „Hvaö fékk ég mörg stig?” „Sjö.” ,,En ég steig ekki nema þrisvar niöur!” „Og þú steigst nú f jögur skref þeg- ar þú varst kominn út úr hrossa- skítnum þarna og þá eru þaö sjö!” „Djöfullinn.” Ja, ekki þýöir aö deila viö dómar- ann! Einbeitnin skein úr hverjum svip. DV-myndir Guðni Óskarsson. Og svo þurfti að hvila lúin bein á milli að sjálfsögðu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.