Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1984, Qupperneq 38
50
DV. ÞRIÐJUDAGUR 7. ÁGUST1984.
Þröstur Elliðason og Jón Ársælsson hjá bleikjunum sem veiddust um
helgina. Nokkrum erraðað upp tilsýnis.
D V-mynd G. Bender.
Laxá og Bæjará í Reykhólasveit:
Mokbleikju-
veiði en
lítið af laxi
— veiðst hafa 17 laxar og 550
bleikjur, 1-3 pund
Þær voru veiðilegar um helgina,
sem fyrr Laxá og Bæjará í Reykhóla-
sveit, þar sem þær runnu út í spegil-
sléttan Króksfjörðinn. Enda var nær
alis staöar líf í þeim að finna og var
þar mest góö sjóbleikja sem veiddist
og einn og einn lax sást skjótast milli
hylja þegar rigna tók og vatniö óx í
ánum til muna. 26. júní veiddist
fyrsti lax sumarsins í Bæjará og síð-
an hafa menn verið að fá einn lax á
dag að jafnaði. Hann er 9,5 pund sá
stærsti og veiddist á maðk, en allir
laxamir hafa veiðst á maðk í Bæjará
og Laxá. Eins og menn rekur eflaust
minni til átti bara að leyfa fluguveiði
í Laxá og þótti mörgum það mjög at-
hyglisvert en það stendur bara ekki
allt sem menn ætla sér og þess vegna
hefur veriö ákveðið að leyfa þann
slímuga. Ojbara. Viö veiddum í tvo
daga um helgina og fengum um 150
bleikjur og einn lax. Eitthvað var lax
að ganga í Laxá og gætu næstu
stangaveiðimenn fengið hann. Mikið
er af sjóbleikju um allt og er gaman
að fá þær á maök og flugu, stærstu
bleikjumar hafa verið 3 pund, feitar
og fallegar. Því miður hefur ekki
komið eins mikið af iaxi í árnar og
vonast var til en þeir koma vonandi
með tíð og tíma, kannski sem
tveggja ára laxar næsta sumar.
Reyndar er alls ekki öll von úti um
mikla laxagengd, þeir gætu komiö
næstu daga. Við skulum bara vona
það. Laxá er laxgeng eina 11 kíló-
metra og Bæjará um 1 kflómetra Þeir
Ámi Baldursson og Gunnar Másson
munu ætla að sleppa 40 þúsund seiðum í
ámar í sumar.
G. Bender.
VEIÐIVON
Gunnar Bender
Rennt fyrir lax i Tónafossi i
Bæjará en hann var tregur.
DV-myndG. Bender.
Veiðimaður sóst renna fyrir lax i Haukadalsá á sunnudaginn en laxinn
vartregur. Veiðst hafa um 510 laxar og er hann 17 pund sá stærsti.
DV-myndG. Bender.
Eins og kunnugt er af fréttum
sigraði franska sveitin naumlega á ný-
afstöönu Evrópumóti ungra spilara.
Islenska sveitin deildi 15. sætinu með
þeirri spönsku, fékk 230 vinningsstig
sem er 40 stigum undir meðalskor.
Heldur klénn árangur.
I síðasta þætti birtum viö úrslit
fyrstu tíu umferðanna og hér fer á eftir
árangur liðsins í seinni átta um-
feröunum:
Ísland-Póliand 7—23
Island-Ungverjaland 14-16
Island-Irland 20-10
Island-Júgóslavía 25-2
Island-Belgía 13-17
Island-Grikkland 10-20
Island-Israel 13-17
Island-Þýskaland 5-25
Sveitin vann því fimm leiki, gerði
tvö jafntefli og tapaði ellefu.
Frönsku Evrópumeistararnir eru
engir nýgræðingar í íþróttinni og nutu
forystu gamalreynds landsliðsmanns,
P. Schemeil, sem m.a. hefur spilað í
landsliðum fjögurra landa — Líbanon,
Egyptalands, Sviss og Frakklands.
Aðrir meðlimir sveitarinnar eru
Eisenberg, 25 ára gamall. Meðal
afreka hans sigur á fríverslunar-
bridgemóti fyrir unga spilara 1983 og
annað sæti á franska landsmótinu
| sama ár. Desrousseaux er sonur
gamals bridgemeistara og landsliðs-
manns. Hann er aöeins 19 ára en hefur
verið sigursæll í tvímenningsmótum
hin síðari ár. Crozet hefur spilað í
Grundarfjörður:
Veitt
fétil
orgel-
kaupa
Þegar Sparisjóður Eyrarsveitar
á Grundarfirði hætti starfsemi i nóv-
ember 1982 var stofnaður sjóður um
eignir sparisjóðsins sem skyldi vera
til styrktar menningar- og líknar-
málum í Eyrarsveit. Búnaðarbanki
Islands tók við rekstri sparisjóðsins.
Fyrst var veitt úr sjóðnum 17. júní
síðastliðinn að lokinni messu, 500.000
krónum til orgelsjóðs Grundar-
fjarðarkirkju til kaupa á pípuorgeli
sem er í smíðum í Þýskalandi.
karlalandsliðinu þótt hann sé aöeins 25
ára. Árið 1981 náði hann öðru sæti á
franska landsmótinu. Kerlero er
bridgekennari og einnig 25 ára.
Fallegustu spilararnir í sveitinni eru
samt áreiðanlega systurnar Fabienne
og Benedicte Pigeaud, 25 og 23 ára.
Þær eru taldar besta kvennapar
Frakklands í dag og hafa bæði unnið
landsmót og alþjóöamót.
Bridge
Stefán Guðjohnsen
Við skulum skoða eitt spil frá leik
Belgíu og Frakklands með Eisenberg í
aðalhlutverkinu.
Norður gefur/a-v á hættu
Vestur Norour * G96 V 76 0 KG972 * 873 AU*T!1R aAD853
A 742
^ 982 V DG543
0 1086 0 43
* ÁD104 Sumjn ♦ K10 ÁK10 0 ÁD5 * KG976 * 5
Suður varð sagnhafi í þremur
gröndum á báðum borðum og vestur á
báðum boröum spilaði út hjartaníu. I
opna salnum gaf austur níuna og belg-
íski sagnhafinn drap á tíuna. Hann
ákvað að reyna að fá níunda slaginn á
lauf og spilaði því tígulás og drottningu
sem hann drap með kóngi. Síðan
spilaði hann laufi og svínaði gosanum.
Vestur drap á drottningu og spilaði
meira hjarta. Suður tók nú tígulslagina
og spilaö laufi. Vestur tók þrjá slagi á
lauf því suður hafði kastað frá laufinu í
tígul. Spaðaásinn var síðan fimmti
slagur varnarinnar.
Eisenberg tók hins vegar tígulás til
þess að athuga hvort tígullinn félli og
spilaði síðan spaðakóngi.
Þessi spilamennska tryggir spilið
nema austur eigi Á-D í spaöa og vestur
Á-D-10 í laufi. Spilið lá að vísu þannig
en austur átti einspil í laufi og þar með
var spiliö unniö.
Og að lokum er hér lokastaða mót-
sins:
1. Frakkland 344. 2. Italía 344. 3.
Noregur 317. 4. Danmörk 303. 5. Sví-
þjóð 292. 6. Ungverjaland 291. 7. Pól-
land 286. 8. Holland 285. 9. Belgía 265.
10. Israel 260. 11. Grikkland 256. 12.
Þýskaland 253. 13. England 247. 14.
Austurriki 247.15. Spánn 230.16. Island
230. 17. Júgóslavía 227. 18. Finnland
220.19. Irland 197.
A meðfylgjandi mynd, sem
Bæring Cecilsson tók, afhendir Hall-
dór Finnsson Vilhjálmi Péturssyni
sóknarnefndarformanni ávísunina.
Á milli þeirra er séra Jón Þorsteins-
son sóknarprestur. -pá