Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1984, Síða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1984, Síða 3
DV. LAUGARDAGUR18. ÁGUST1984. 3 Hrikaleg hætta á ferðum — í f isksölumálum okkar, segir Steingrímur Hermannsson f orsætisráðherra , ,Hvort ég hef, j ú, ég hef hugsað mik- iö um þessi mál, mér er það fullkom- lega ljóst að hér er hrikaleg hætta á ferðum en viðurkenni jafnframt að við höfum alls ekki gert okkur nógu snemma grein fyrir því sem er að ger- ast i kringum okkur í sjávarútvegi og fisksölumálum,” segir Steingrimur Hermannsson forsætisráðherra. DV bar undir hann þá frétt i blaðinu, . fyrr í vikunni, að yfirvofandi væri verðstríð á öllum fiskmörkuðum okk- ar, sérstaklega vegna gríðarlega auk- ins framboðs á fiski frá Kanada. Einn- ig þau orð Kristjáns Ragnarssonar, formanns LIU, að þetta væri alvarleg- asta máliö af öllum alvarlegum mál- um í þjóöfélaginu. ,,Já, Kristján hefur ábyggilega sagt ýmislegt vitlausara. Þetta er alveg rétt hjá honum. Sjávarútvegur er orð- inn annars flokks atvinnugrem hjá þjóöum eins og Kanadamönnum og Norðmönnum. Þeir styrkja útgerðina og fiskvinnsluna hjá sér í stórum stíl og rugia alla markaði. Aflaaukningin hjá Kanadamönnum er jafnframt ógn- vænleg ef við hugsum um okkar verð.” Hvað er til ráða ef fiskverðiö hrynur, jafnvel á næstu misserum, þegar fisk- afurðir standa undir tveim þriöju af gjaldeyristekj unum? „Ég veit þaö satt að segja ekki. Það er ekki auðvelt að bregðast svo snöggt við. En við verðum að auka og bæta stórlega hagkvæmni í okkar sjávarút- Vegi. Og vonandi batna náttúrulegu skilyrðin, sem menn eru nú að veröa sammála um aö haf i takmarkaö þorsk- stofninn ööru fremur. En við skulum gera okkur þaö alveg ljóst aö sjávarútvegurinn getur ekki lengur staðiö undir alls konar munaði eins og að borga 60—70%/með útflutt- um landbúnaðarvörum. Það verður að fara alveg nýjar brautir í atvinnumál- um og leggja miklu meira á aðrar arð- bærar greinar en sjávarútveginn,” segirSteingrímur. HERB. „Freestylekeppnin” UNDANÚRSUTIN í FULLUM GANGI Landskeppnin í „Freestyle” held- ur áfram af fullum krafti. Það eru undanúrslitin sem nú standa yfir víðsvegar um landið. Sigurvegarar úr keppnum sem fram fara á Norðurlandi taka þátt í úrslitakeppni á Akureyri og sigurvegarar úr þeirri keppni fara síöan til Reykjavíkur og taka þátt í endanlegum úrslitum sem fram fara í Traffic 9. september. Síðastliðinn laugardag hófst keppnin í Traf fic og var valinn sigur- vegari þar, af skipaðri dómnefnd. í dómnefndinni eiga sæti Vilhjálmur Svan, eigandi Traffic, Kolbrún Aöal- steinsdóttir danskennari, Kjartan Guðbergsson plötusnúður, Stefán Baxter, Islandsmeistari í diskó- dansi, og einn fulltrúi frá DV. I kvöld verður keppt öðru sinni I Traffic. Miðað er við að um fjórir þátttakendur séu hverju sinni og geta allir sem fæddir eru fyrir 1968 gerst þátttakendur. Keppnin hefst kl. 23.30 íkvöld. Undanúrslit hófust nú um helgina á Norðurlandi. I gær var keppt á Egilsstöðum og í kvöld fer fram keppni á Húsavík og á sunnudaginn verður svo keppt á Dalvík. AlUr eru hvattir til að taka þátt í þessari keppni og sá sem endanlega veröur valinn sigurvegari hlýtur 15 daga ferð til Amsterdam í verölaun. Þá verða emnig veitt vegleg önnur og þriöju verðlaun. APH Hór sjáum við sigurvegarann úr keppninni sem fram fór sl. laugardag. Það eina sem við vitum um stúlkuna er að hún heitir Eydís og dansar mjög vel. r Tf m ■ j i % - i Sjf / wTA Ríkisstjórnarsamstarfið Þingað um f ram- haldið Formenn rikisstjórnarflokkanna, Steingrímur Hermannsson og Þor- steinn Pálsson, ræddust við í gær og fyrradag um framhald stjórnarsam- starfsins og endumýjun sáttmála flokkanna. Nokkrar nefndir starfa að tiUögusmíö í einstökum málaflokkum, mest þó í hvorum flokknum fyrir sig. Þingflokkur sjálfstæðismanna var á fundi í vikunni og einnig með miðstjórn Sjálfstæðisflokksins. Á mánudaginn verður þingflokkur framsóknarmanna á fundi. Báðir formennirnir leggja kapp á aö hraöa viöræöum um stjórnarsáttmál- ann. Líklegast er talið aö endumýjunin veröi kynnt í byr jun næsta mánaöar. HERB SÍÐUSTU BÍLAR SUMARSINS! MEST SELDIBILL Á ISLANDI UhoÍer BENSÍNNIRFILL! tr t/\]? VTD AT T T?A TT/FTT FTAT IJNO sfirstrrklfirfrf snrrrnfivtinn nrrmánfifnrraríí V LiÍjí\xJL JLljtJmJl X FIAT UNO er sérstaklega sparneytinn, og má nefna aó í sparaksturspróíi sem íram íór á Ítalíu á s.l. sumri var meóaleyósla hjá UNO ES 3.9 lítrar á hundraöiö. Á90km.meöalhraöaeyöirUN0ES4.3 lítrum og UNO 45 Super 5 lítrum á hundraöiö. WEGILL l 1VILHJÁLMSSON HF.É Smidjuvegi 4. Kópavogi. Simar 77200 - 77202

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.