Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1984, Qupperneq 30

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1984, Qupperneq 30
30 DV. LAUGARDAGUR18. ÁGUST1984. Everton á raun- hæfa möguleiha Howard Kendall var þrjil ár að gera draumlnn á Goodison að verulelka Alveg frá því Bill Shankley tók aö sér þaö verkefni aö gera Liverpool aö stór- veldi, á fyrri hluta sjöunda áratugar- ins, hafa nágrannar þeirra í hafnar- borginni á Merseysíöunni, Everton, þurft aö sætta sig viö aö lifa í skugga þessa mikla knattspyrnustórveldis (sem magalenti í Laugardalnum á sunnudaginn). Frá eru þá skilin árin 1966—1970 er Everton-liðiö haföi í fullu tré viö meistarana, og stundum jafnvel betur, en Everton vann bæöi deild (1970) og bikar (1966) á þessum árum. En síöan var þaö bara á ný í aftursæt- inu á meðan stórlið Liverpool stýröi Merseyvagninum til helstu sigra í Evrópu. Betri tímar En í ljósi árangurs Everton-liðsins í lok síöasta keppnistímabils má nú gera ráð fyrir aö mennirnir á Goodison Park geti fariö að líta málin bjartari augum. Brjálæði væri þó aö halda því fram að Everton-liöiö sigi fram úr' Liverpool, slíkt tekur mörg ár, það hef- ur tekið Liverpool-liðið 20 ár aö komast þangaö sem þaö er nú og ekki er óeðli- legt aö áætla aö þaö tæki liðiö 1/4 af þeim tíma að hníga niður á ný en teikn um slíkt eru ekki á lofti enn. Þaö tók Howard Kendall fram- kvæmdastjóra þrjú ár að gera Everton aö því sem liðiö er í dag, eitt af bestu liðum ensku knattspyrnunnar. En þó skyldi enginn halda að þaö hafi verið auövelt. Blóö, sviti og tár er kannski of djúpt í árinni tekið er rætt er um fórnir þær sem liðiö hef ur þurft að færa fyrir velgengnina. En sviti og tár eru það altént, sviti, tár og peningar. Þegar Kendall tók viö Everton-liðinu sumarið 1981 setti þaö strax ákveöna pressu á hann, meiri pressu en Billy Bingham og Gordon Lee, tveir fyrir- rennarar hans, höföu oröið fyrir. Slæmt gengi Fólkið á pöllunum krafðist þess aö skriöiö yrði undan skugga Liverpool og haföi verið að krefjast þess í rúman áratug, frá því Everton vann deildina síöast. Og þessi auka pressa kom á Kendall vegna þess aö hann var einn af þeim sem geröu Eyerton aö meistur- um áriö 1970 og haföi reyndar einnig oröiö bikarmeistari meö þeim 1966. Kendall var á þessum uppgangstíma Everton-liösins meölimur eins besta tengiliöatríós á þessum árum. Auk hans voru það þeir Alan Ball og Colin Harvey, nú þjálfari liðsins, sem léku á miðjunni og stjórnuöu spili liösins þannig aö stuöningsmenn þess gátu gleymt því um stund hverjir voru best- ir í borginni. En svo fór Alan Ball og menn eins og Brian Labone og Gordon West fóru aö huga aö því aö leggja skóna á hilluna og upp úr því fór liðinu aö hraka. Billy Bingham var geröur aö fram- kvæmdastjóra en ekkert gekk og hann var rekinn þrátt fyrir að hafa komiö liðinu í úrslit deildarbikarsins þar sem það tapaði naumlega fyrir Aston Villa í þriöja leik. Gordon Lee sem náö haföi góöum árangri meö Newcastle var fenginn til liösins en rekinn í maí 1981 ogKendalltók viö. Níu nýir Hann leit sem snöggvast yfir þann hóp leikmanna er saman var kominn á Goodison Park og opnaöi budduna. Meöal þeirra sem keyptir voru til liðs- ins voru tveir markmenn Neville Southall og Jim Arnold. Sá síðamefndi var markvöröur Blackburn sem Kendall haföi stýrt áöur af mikilli röggsemi og komiö upp í aöra deild. Þangaö kom Arnold frá utandeildar- liöi, en Kendall haföi séö hann leika er hann var í kurteisisheimsókn til vina í heimabæ þess. Fyrir hjá Everton var hinn nothæfasti markvörður, Martin Hodge, en honum var varpaö út í ystu myrkur og seinna seldur til Sheffield Wednesday þar sem hann leikur nú. Fleiri voru keyptir. Mick Ferguson frá Coventry, Mike Wals frá Bolton, Alan Ainscow frá Birmingham, Peter Eastoe frá QPR, Mike Thomas kom frá Brighton, Asa Hartford frá Man. City og Alan Biley fr. Derby. Þetta voru að- eins þeir sem keyptir voru fyrir keppn- istímabilið, fjöldi nýrra leikmanna átti eftiraöaukast. Útíloftið En þessi fyrstu kaup Kendalls í „heita sætinu” á Goodison virtust flest hafa veriö mislukkuö. Aðeins einn af þessum níu mönnum lék með í úrslit- unum gegn Watford í haust og sjö þeirra eru famir frá Everton. Aöeins Jim Arnold og Neville Southall eru ennþá hjá liöinu. Hvaö varðar þá sem eru famir náöu fæstir þeirra nokkurn tímann aö leika meö liðinu svo nokkru næmi. Margir þeir sem voru buröarásarnir í liöinu áöur en Kendall tók viö, þurftu aö gjöra svo vel.og setjast á vara- mannabekkinn. Má þar nefna m.a. tvo markahæstu leikmennina, Trevor Ross og Eamon O’Keefe. Eins og skiljanlegt er gekk fremur brösuglega fyrsta keppnistímabilið á meöan Kendall var aö hræra í hinum stóra potti. Lítiö kom hins vegar úr þeirri súpu og sá Kendall sig t.d. neyddan tii aö leika nokkra leiki sjálfur. Liöiö hafnaði í 15. sæti. Þessi slaki árangur varö til þess aö fólk fór aö efast um aö Kendall tækist aö ná því sem leynt og ljóst var krafist af honum. Um sumar- ið tók steininn úr er Kendali sagði fyrirliða lisins og langleikreyndasta leikmanni þess, Mick Lyons, aö hann mætti fara frá liöinu, nokkuö sem Lyons haföi alls ekki beðið um. Óhæfur Eftir þetta voru uppi háværar raddir um aö Kendall væri ekki til verksins hæfur og ætti aö fara. En stjómin stóö á bakviö sinn mann og Lyons var seld- ur til Sheffield Wednesday. Kendall geröi um sumarið nokkur kaup sem flest heppnuðust betur en hin fyrri. David Johnson og Kevin Sheedy komu frá Liverpool á 100.000 pund hvor, og reyndust kaupin á Sheedy ein þau bestu sem Kendall hefur gert. Önnur góð kaup höföu reyndar komiö fyrr um veturinn er 700.000 pund voru reidd út til aö fá Adrian Heath frá Stoke. Gamli Everton leikmaöurinn Andy King var fenginn tii liösins í skiptum fyrir Peter East.oe sem fór til WBA. En þrátt fyrir nokkur góö kaup áttu leikmenn liösins í einhverju basli meö aö hala inn stigin og Kendall einnig í erfiðleikum meö aö ákveöa hverjir ættu aö hala þau inn. Alveg framundir miöjan janúar var liðið í neöri helm- ingi og um miðju deildarinnar. Geysileg barátta var um sætin í lið- inu innan hins breiöa, en ekki aö sama skapi góöa hóps liðsins. Þetta keppnis- tímabil lék enginn leikmaöur alla leiki liösins. Kevin Sheedy lék flesta, alla nema tvo og Mark Higgins alia nema þrjá. fíétt úr kútnum Um miðjan janúar fór aöeins aö ræt- ast úr hlutunum, hinn eitilharöi tengi- liöur Peter Reid var keyptur frá Bolton fyrir 60.000 pund og Terry Curran feng- inn aö láni frá Sheffield United. Töfra- þulan var sögö, liðið fór aö vinna og þann fimmta febrúar náöist hápunktur leiktímabilsins, fimmta sætiö. Og þó skila þyrfti Curran og Reid heföi meiöst var tónninn gefinn og Everton endaöi númer sjö. En ansi var nú skugginn stórennþá. Liðiö þegar best gekk: Jim Arnold í marki. Bakveröir: Gary Stevens, John BaUey. Miöverðir: Mark Higgins, Kevin Ratcliffe. Tengiliöir: Steve McMahon, Andy King, Kevin Sheedy og Kevin Richardson. Frammi: Adrian Heath og Graeme Sharp. NevUle Southall, David Johnson, Alan Ainscow og Alan Irvine voru heldur aldrei langt undan. Meö þessum árangri fékk KendaU starfsfriö og smátíma tU aö blása en hann átti engu aö síður sinn dygga hóp haröra gagnrýnenda og þá sérstaklega vegna hins hræðilega taps gegn Liverpool, 5—0, á heimaveUi. 0—0 jafn- tefh á útiveUi náöi þó aðeins aö róa taugarnar í hinum æstustu. Nú eða aldrei Ennþá sópaöi Kendall leikmönnum burt og keypti nýja. Hinn efnilegi Steve Mahon, Alan Ainscow, Billy Wright, Trevor Ross, Mick Ferguson, Martin Hodge og Mike Walsh voru alUr látnir fara. Alan Harper var fenginn frá Liverpool, Derek Mountfield frá Tranmere og Terry Curran keyptur frá Sheffield United, þaö var nú eöa aldrei fyrir Kendall. Aldrei virtist vera oröiö, ekkert gekk. Liðiö var í kringum 16. sætiö, eitt- hvaö vantaöi. Sóknarleikmann, sagöi KendaU, og vildi fá stórpening tU aö kaupa einn slíkan. Traust stjórnar- innar fór þverrandi en leyfiö engu aö síöur veitt. KendaU hugöLst fyrst í staö leita út fyrir landsteinana og Argentína lokkaöi. En þá mundi hann eftir Andy Gray, mUljón punda senternum hjá Wolves sem hreint og beint hatar að tapa. KendaU ákvaö aö fara til Preston aö sjá Ulfana kljást viö heimamenn í Mjólkurbikamum. Wolves tapaöi og Andy Gray lék einn af verstu leikjum ferils síns. En þaö var sama. Kendall bauð 250.000 pund og Gray var kominn á Goodison. Andy Gray lék vel en þaö sama varö ekki sagt um liðið í heild og Gray tókst ekki aö skora. Everton-liðið hélt áfram aö vera í neöri hluta deUdarinnar. Gengi í bikarkeppnunum var hins veg- Þessimynd var tekin af Everton-lið- inu stuttu eftir að Kendall tók viö stjórnartaumunum á Goodison og er góö lýsing á ástandinu sem þar ríkti fyrst eftir aö Kendall kom. Óvissa og óreiöa. ar betra, þar unnu þeir hvert liðið á fætur ööru. En óánægjuraddirnar uröu sífeUt sterkari, undirskriftalistar um brottrekstur fóru af stað og alls kyns ókvæöisorð heyröust úr stúkunni á hverjum heimaleik Uösins. Velkomin til 1984 Áriö 1984 boöaði breytta tima hjá mönnunum á Goodison. Fyrsti leikur ársins gegn Birmingham á útivelU vannst 2—0. Næsti leikur var sá fyrsti í FA-bikarnum, Stoke á útiveUi. Sá leik- ur vannst einnig meö 2—0, mörkin geröu Alan Irvine og Andy Gray, annaö mark þess síðarnefnda. Þeir sem léku þennan leik voru: SouthaU, BaUey, Stevens, Ratcliffe, Mountfield, Reid, Irvine, Heath, Sheedy, Gray Sharp. Mixtúran var fundin. Upp frá þessu þaut liöiö upp töfluna og jafntefli varö gegn Liverpool í seinni viöureigninni, eftir 3—0 tap í þeirri fyrri. Nottingham Forest vann í Mjólkurbikamum og í úrsUtin komst liðiö. Framhaldiö er frægt, Liverpool sigraöi naumlega í öörum leik, en Everton-liöiö vann þess I stað FA- bikarinn. Sigurvegari Howard Kendall stóö uppi sem sigur- vegari aö lokum og fólkið hyUti hann. KendaU hafði staöiö við sína meiningu, aö leika ætti skemmtilegan sóknar- bolta sama hvaö á gengi og sú varö líka raunin aö þessi aðferö fór aö skila sér í góöum árangri. Everton hefur mmnkaö biUö miUi Liverpool um margar mælistikur. Og þó Uöiö eigi langt eftir í aö afla sér svipaö nafn í Evrópu og nágrannarnir hafa gert þá hlýtur þaö aö eiga góöa möguleika á að veröa Englandsmeistari í vetur, mögu- leikar nr. 3—5. Liverpool og United koma auövitaö fyrst, Southampton, Everton og Tottenham næst. Liöiö hefur auk fyrrnefndra 11 manna á aö skipa góöum leikmönnum, t.d. Terry Curran sem ló í meiðslum á síöasta vetri, Alan Harper, Kevrn Richardson, Trevor Steven og Paul Bracewell sem keyptur var frá Sunderland í sumar. Prófsteinninn veröur í dag er Everton sem bikarmeistari mætir Liverpool sem Englandsmeisturum í leiknum um góðgeröarskjöldinn á Wembley. SigA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.