Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1984, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1984, Blaðsíða 5
DV. LAUGARDAGUR 27. OKTOBER1984. 41 og auk þess vann ég þar á sumrin meöan ég var viö nám. Þama fékk ég bakteríuna og ætli Jón Helgason, sem þá ritstýröi blaðinu, hafi ekki átt sinn þátt í því. Honum var einkar lagið að vekja áhuga hjá sinu fólki á þvi sem það var að fást við og á starBnu aimennt. Eftir að ég lauk námi réðst ég svo sem sumarafleysingamaður á út- varpið og ílentist þar í tvö og hálft ár. Þegar mér var boðin ristjórastaða á Degi sló ég til og ég held að megin- ástæðan fyrir því hafi verið sú að ég var orðinn afskaplega leiður á útvarp- inu og meira en tilbúinn að breyta til. Á hinn bóginn er alltaf dálitil eftirsjá í huga minum. Félagsskapurinn var afskaplega góður og að sjálfsögðu fékk ég þama dýrmæta reynslu.” — Hvað leiddist þér mest á út- varpinu? \ „Það er svo erfitt að komast yfir hindranir sem maöur finnur að eru til staðar en sér ekki. Þetta má ef til vill orða þannig að það er erfitt að reka sig á veggi sem maður sér ekki og það er nær útilokað að komast yfir þá. Eg er með þessum orðum að reyna að lýsa því tregðulögmáli sem mér fannst ríkja hjá stofnuninni.” — Og leiðin lá tU Akureyrar í ársbyrjun 1980. Hvemig hefur þér líkað þar? „Mig langar til þess að vitna í orð Björgvins Júníussonar sem sagði að fyrstu 25 árin væru erfiðust hér fyrir aðkomumenn og vitnaði þá til þeirra sögusagna að Akureyringar séu ákaf- lega seinteknir. Þetta „comment” hans hefur vakið mig til umhugsunar um hversu mikla sælu ég á í vændum eftir að hafa búið hér í 25 ár því aö hingað til hef ég kunnað ákaflega vel viðmig héma. Eg er meira að segja orðinn grobb- inn af bænum „mínum” og stend sjálf- an mig að því að montast yfir veður- fari þegar þess gefst kostur og þá helst við Reykvíkinga. Þetta fer víst afskap- lega í taugarnar á konunni minni.” — Hvað með tómstundastörf, hvemig kýstu að verja þínum frí- tíma? „Eina íþróttin sem ég hef nokkru sinni stundað að einhverju marki er skíðaíþróttin. Það er óvíða betri aðstaða til þess að stunda skiöin en hér á Akureyri og ekki síst vegna þess hversu stutt er að fara í skíöalandiö í Hlíðarfjalli. Eg get sagt þér hlut sem starfsfólkið á Degi má alls ekki frétta, en það er aö ég hef nokkrum sinnum þóst vera að fara á mikilvægan fund í hádeginu en þess i staö fariö í Fjallið og gjarnan hefur tognað úr þeim matartímanum. Aðrar íþróttir hef ég látið afskiptalausar og t.d. hef ég ekki komið á golfvöllinn héma þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir Gylfa Kristjáns- sonar til þess að draga mig þangað. Ég á mér annað og mjög skemmti- legt áhugamál og það er garðrækt. Sá áhugi kviknaði eftir að ég fluttist til Akureyrar, enda var það hér sem ég upplifði fyrst vorið. Það er stórkostlegt að sjá gróðurinn lifna af dvala og lífið fæðast. Eg held að það sem fyrst og fremst gefur mér þá tilfinningu að hér verði ég rótgróinn séu litlu plönturnar sem ég er búinn að gróðursetja i garð- inum hjá mér. Eg hafði mjög mikinn áhuga á tónlist og stundaöi hana nokkuð en sá áhugi er í dvala sem stendur. Vinnan er mér líka mjög mikið áhugamál, bæði við blaðið og eins við Sjónvarpið, en ég hef unnið nokkuð fyrirþað héma.” — Er mikill munur á því að vera ritstjóri eða aðeins „óbreytt- ur” blaðamaður? „I minum huga er ekki svo. Eg reyni að taka þátt i öllum störfum á blaðinu eins og ég get við komið og viðurkenni fúslega að mér leiðist sumt af því sem tilheyrir ritstjórastarfinu.” -SK-. Svavar Gastsson. Gytfí Kristjánsson. FULLT NAFN: Hermann (Þorvald- ur) Sveinbjörnsson. FÆÐJNGARDAGUR OG ÁR: 5. mars 1949. HÆÐ OG ÞYNGD: 178 cm, feimnis- mál sem ekki er upp gefið. GÆLUNAFN: Hemmi. STARF: Ritstjóri og free lance sjón- varpsstarfsmaður. BIFREIÐ: Mazda 626 2000. UPPAHALDSlÞROTTAFÉLAG: Þróttur, Neskaupstað. UPPÁHALDStÞRÖTTAMAÐUR: Gylfi Kristjánsson, golfari. UPPÁHALDSRITST JÖRI: Jónas Kristjánsson, DV. MESTU VONBRIGÐIISTARFI: Að geta ekki skrifað um rauðvín eins og Jónas Kristjánsson. HELSTA METNAÐARMÁL í STARFI: Að skrifa um rauðvín eins og Jónas Kristjánsson. UPPÁHALDSMATUR: Ofnbakaður fiskur a la Auður. UPPÁHALDSDRYKKUR: Larsen. UPPÁHALDSSJÖNVARPS- ÞÁTTUR: Kastljós. UPPÁHALDSLEIKARI ÍSLENSK- UR: Svavar Gestsson. UPPÁHALDSLEIKARI ERLEND- UR: Ronald Reagan. HELSTIKOSTUR: Hreinskilni. HELSTI LÖSTUR: Hreinskilni, svo jaðrar við dónaskap. UPPÁHALDSBLAÐ: Dagur. HVAÐ LÍKAR ÞÉR VERST í SAM- BANDIVIÐ STARFIÐ: Kvabbið. HVAÐ LÍKAR ÞÉR BEST í SAM- BANDIVIÐ STARFDÐ: Hitti marga sem ekki kvabba. HVERT YRÐI ÞITT FYRSTA VERK YRÐIR ÞÚ HELSTI RÁÐA- MAÐUR ÞJÓÐARINNAR Á MORG- UN: Gera Ákureyri að höfuðborg landslns. ANNAÐ VERK: Láta landsbyggðar- fólkið njóta sanngjaras afraksturs starfa sinna og uppræta það tvöfalda hagkerfi sem rikir í landinu. Springsteem er fæddur í Baiidarakjtimim Clarence Clemons saxófónleikari, Bruce, Garry Tallent bassaleikari og Nils Lofgren gftarleikari dansa trylltan dans. Nýja platan hans Bmce Springsteen, Bom in the USA, er ofarlega á vinsældalistum um allan heim, en samt em það lögin af Nebraska plöt- unni sem hann tók upp heima hjá sér með kassagítar og rödd sem eru sál sjóvsins á tónleikaferð hans um Bandaríkin, sem nú stendur yfir. Hljómurinn er dimmur, takturinn þungur og gítarar Springsteen og Nils Lofgren hvískrandi i Atlantic City sem er eitt af kraftmestu lögum tónleik- anna. Sama má segja um Mansion on the Hill sem er flutt eins og rólegur rokkaður kántrí dúett með söngkon- unni Patti Scialfa en hún leikur nú með Springsteen í fyrsta skipti. Bruce kynnir það með þessum orðum: „Pabbi var vanur að keyra út úr bæn- um að stóru, hvitu húsi. Þaö var dulúð- ugt þama útfrá. Og nú þegar mig dreymir er ég stundum fyrir utan hlið- ið og horfi inn og stundum er ég maöur- innsemerinni.” 30 lög á þremur og hálfum tíma Springsteen leikur yfir þrjátiu lög á þremur og hálfum tíma. Yfirleitt leikur hann um sjö lög af Nebraska, 8 af Bom in the USA, nokkur af The River og fáein af Bom to Run og Darkness on the edge of town. Aðeins Rosalita af annarri plötunni er á dagskránni og ekkert lag af þeirri fyrstu, Greetings from Ashbury Park. Uppklappslagið er gamla Stones-lagið Street Fighting man. Springsteen seg- ist spila það vegna þess að hann fQi i botn setninguna: „What can a poor boy do but sing in a rock & roll band.” Að ýta bíl Hann leikur enn syrpu af lögum Mitch Ryder. Bruce Springsteen var áður þekktur fyrir að segja dæmisögur á undan lögum sínum. Hann gerir minna af því nú en talar enn um upp- vöxt sinn, samband sitt við föður sinn, og heimabæinn á milli laga. „Þetta lag er um hvemig það er að vera svo einmana að maður gæti grátið,” segir hann er hann kynnir lagið Nebraska. Og á undan Used kars segir hann. „Ef þú hefur einhvem tímann ýtt bíl niður eftir götu og fundist þú vera asnaleg- asti gæi í heimi þá er lagið tileinkað þér.” Springsteen er líflegur á sviði. Ymist hamrar hann á gitarinn eöa dansar trylltan dans. Sjálfstraust hans hefur aukist enda segist hann ekki lengur vera feiminn. Samt var hann neyðar- legur þegar stúlka óð upp á sviðið, er hann var að byrja á Jungleland, og kyssti hann á munninn. „Ekki á meðan ég er að syngja, elskan. ” Kjúklingur og Pepsi Drengurinn Bruce er hættur að lifa á steiktum kjúklingi og Pepsi eins og hann var vanur að gera á hljómleika- ferðum. Hann snæðir aðallega græn- meti, hleypur 6 mílur á dag og lyftir lóðum. „Eg er ekki fanatískur, mér finnst gott að fá mér góöar steikur annaðslagið.” Bruce hefur ekki leikið á hljómleik- um frá árinu 1981 er hann fy'gdi plöt- unni The River úr hlaði. Frá því það Bruce Springsteen er enn geysivinsæll tónleikamaður. var hefur Bmce meðal annars varið tima sínum i feröalög um Bandaríkin meö einum vini, i bíl. „Mér likar að ferðast svona, maður frelsast. Það kom bara tvisvar fyrir að einhver þekktimig...” '64 módelið af Chevrolet Springsteen býr nú í Rumson í New Jersey, í stóm húsi með sundlaug. I innkeyrslunni má sjá bláan Camaro pikköpp bil og ’64 módelið af Chevrolet sem Gary Bonds gaf honum. Fyrir um það bil ári ákvað Springsteen að hann eyddi um of tima sinum i tónlist og tók því upp á því að bjóða vinum yfir í mat, spila knattleik, lesa og fleira. Hljómsveit Bmce Springsteen, The E-Street Band, hefur um árabil verið skipuð sömu mönnum. Roy Bittan leikur á píanó, Danny Federici á orgel, Clarence Clemons, á saxófón, Garry Tallent á bassa, Max Weinberg á trommur. Steve Van Zandt hefur lengst af leikið á gítar en hann varð að hætta í upphafi hljómleikaferðar til þess að leika með eigin hljómsveit. I hans stað kom Nils Lofgren. Nils flutti inn til Bruce i mánuð til þess að læra lögin. ^ síðustu stundu bætti Brace söngkonunni Patty Sciafa i hópinn en hana haföi hann heyrt syngja á búllu rétt fyrir brottför. „Það ríkir meiri samhygö í hópnum eftir aö kona bætt- istvið,”segirBruce.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.