Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1984, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1984, Qupperneq 16
52 DV. LAUGARDAGUR 27. OKTÖBER1984. Þeir sem vilja ná í Bubba Morthens í dag geta reynt að hringja í hann á Hótel Grand í Stokkhólmi eða í bílasíma limósínunnar sem sænska óperan hefur látið honum í té yfir helgina (höfum ekki númerið) en kappinn kemur fram í sænsku óperunni í kvöld ásamt rjómanum af nor- ræna hámenningarslektinu á hátíðinni: „En fest för livet”. Hátíö þessi er skipulögð af samtök- um listamanna sem berjast gegn kjarnorkuvopnum og er hún hliðstæö við hátíöina „Lífið er þess virði” sem haldin var í Þjóðleikhúsinu í septem- ber á síðasta ári. Svíar sendu Bandalagi íslenskra leikara boð um aö senda einn íslenskan listamann á hátíðina og fannst forráða- mönnum bandalagsins Bubbi vera tilvalinn fulltrúi á þessa hátíð en hann mun vera eini fulltrúi rokktónlistar á henni, kemur einn fram í trúbador- stílnum með gítarinn sinn, bæði raf- og órafmagnaðan. Meðal þeirra sem koma fram í kvöld í sænsku óperunni ásamt Bubba má nefna kór sænsku óperunnar, konung- lega sænska ballettinn, Nicolai Gedda, BUBBIMORTHENSI SÆNSKU ÓPERUNNI Gisellu May, en hún er þekktasti heiminum í dag, Birgittu Grimstad og Arja Saijonma, sem fram kom í Þjóð- Bertholt Brecht/Hans Eisler túlkandi í svo góökunningja okkar Islendinga, leikhúsinufyrirári. -FRI ROKKSPILDAN Megas mun halda tóiileika í Megas mun verða meö ca 45 Austurbæjarbíói föstudaginn 9. mínútna prógramm af blönduðu nóvember nk. en það eru fyrstu efni en hljómsveitina, sem sjálfstæðu tónleikar hans í ein (i leikur undir hjá honum, skipa ár eða frá því að hann hélt þeir Haraldur Þorsteinsson ..Drög aðsjálfsmoröi” í Mennta- (Eik) á bassa, Asgeir Oskarsson skólanum við Hamrahlíð árið (Stuömenn) á trommur, 1977. Megas hefur komið opin- Björgvin Gíslason á gítar, Pétur berlega fram síðan, einkum með Stefánsson (Big Nose) á gítar og hljómsveitinni Ikarus eins og á Jens Hansson (Das Kapital) á tónleikunum ,,Við krefjumst saxófón. framtíðar” í fyrra. -FRI Evrópuferð Kukis: Komst í 6. sæti óháða listans Nokkuð er um liðið síðan hljómsveltin Kukl kom úr tónleikaf ör sinnl um Bretlandseyjar og meginland Evrópu en hvarvetna sem þau komu fram vöktu þau mikla athygli og sem dæmi um vinsældir þeirra má nefna að nýjasta plata hljómsveitarinnar, The Eye, komst í 6. sæti óháða vinsælda- listans hjá tímaritunum Sounds og Music Week, í 13. sæti hjá NME og í 9. sæti hjá Melody Maker. Hápunkt feröarinnar telur hljóm- sveitin hafa verið tónleikana í Rotterdam í Hollandi en þar lék hún fyrir 8000 áheyrendur á Pandoras Box tónlistarhátíðinni. Eftir þá tón- leika voru tekin fjögur útvarpsviðtöl viö Kukl, aUir vildu skipuleggja fyrir hljómsveitina fleiri ferðalög um Evrópu og í úttekt bæði Sounds og NME af hátíðinni var hljómsveitin talin eitt athyglisverðasta atriðið sem kom fram á henni. Upphaf ferðar Kukls í haust var tónleikaför um Bretlandseyjar þar sem hljómsveitin lék m.a. í borgun- um London, Cardiff, Birmingham, Liverpool og Manchester. „Það var allrahanda Uð sem kom á þessa tónleika hjá okkur en við komum fram á þeim öllum með hljómsveit- unum Flux of Pink Indians, Chumba Wumba og D£V,” sagöi Sigtryggur, trommuleikari Kukls, í samtali við Rokkspilduna nú fyrir helgina. „Pönk-Uð var mest áberandi en það fór svoldið eftir borgunum, þannig voru engir pönkarar á tón- leikunum í Liverpool og í Birming- ham mætti hópur af „skinheads” og reyndi aö hleypa tónleikunum þar upp. Það tókst ekki, þeim tókst að vísu að berja Martin, trommara Flux, þannig í höfuöið að flytja þurfti hann á spítala en þeir létu okkur aö mestu leyti i friöi,” sagði hann. I London keypti Kukl sér lítinn sendiferðabíl og fór í honum yfir til Berlínar þar sem hún lék á tveimur stöðum... „við lékum þar á Utlum og skemmtilegum stöðum viö góöar undirtektir og okkur var boðiö að koma þar fram á MetropoUuft, sem er aðaltónlistarstaðurinn þar, en við gátum það ekki þar sem dagsetning- in féU ekki Um í áætlanir okkar. ..” Frá Berlín fór Kukl yfir til Parísar með stuttri viðkomu á landamærum Frakklands og Belgíu þar sem landa- mæraverðir leituðu gaumgæfilega í bílnum og á meðlimum hljóm- sveitarinnar án árangurs. I París komu þau fram með hljómsveitunum X Mal Deutschland og Spear of Destiny.....Kirk Brandon í Spear of Destiny var dáldiö þreytandi vegna stórstjömustæla, með Utað hvítt hár, snöggklippt, og stöðugt að spýta út úr sér einhverjum aría-pælingum. ! s*ss5»f 5£S S0 NSENSTfVE *4stmt síenoiíinöer feels Eg held aö Bubbi Morthens hafi ein- hvern tímann hent í hann grapefruit ávexti...” BUlinn sem Kukl keypti í London bilaði nokkuð oft í förinni, m.a. i París og þurfti sveitin því að aflýsa fyrri tónleikunum í HoUandi en náði svo á Pandoras Box eins og að framan er getið. Á Pandoras Box sváfu meðUmir Kukls á hóteU í eina skiptið i förinni... „við erum að hugsa um að gefa út bók fyrir jólin undir heitrnu: „200 leiðir tU að sofa í bU” ”... Frá París var haldið tU Osló, með viðkomu i Hamborg, og leikið á Club 7 en tónleikaförinni lauk svo i Kaup- mannahöfn þar sem Kukl lék í Kristjaníu... „fyrir svona 60 hálf- sofandi, sauðdrukkna eða þræl- skakka hippa...” og í Ung- domshuset en þeir tónleikar voru teknir upp af danska útvarpinu og verður þeim útvarpað um Danmörku núfyrir jólin. Frá Danmörku var aftur haldið tU London og þar tekrn upp 5 ný lög sem væntanlega verða gefUi út á Corpus Christie-merkinu. A myndunum þremur sést hljóm- sveitin við BerUnarmúrinn og svo á tónleikum í Conway-HaU í London og á tónleikum í BU-mUigham. -FRI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.