Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1984, Qupperneq 4
4
DV. MIÐVIKUDAGUR14. NOVEMBER1984.
Skattar felldir niður
síðasta starfsár manna
„I stuttu máli sagt er ég með
þessu aö létta skattbyrði þeirra sem
eru að ljúka störfum og fella niður
skatta síðasta starfsárið,” sagöi
Albert Guðmundsson fjármála-
ráðherra viö DV í gær. Hann lagði
fram á Alþingi í gær frumvarp til
laga um breytingu á lögum um tekju-
skatt og eignarskatt.
I frumvarpinu er lagt til aö þeir er
hætta störfum fyrir aldurs sakir, geti
dregiö aö fullu frá skattskyldum
tekjum sínum, hreinar launatekjur
síöustu tólf starfsmánuðina.
Á meðan ekki hefur verið tekið
upp staögreiðslukerfi opinberra
gjalda hér á landi veldur skattbyröi
síðasta starfsárið mörgum
væntanlegum ellilífeyrisþegum
töluverðu óhagræði.
Á síðasta ári var samþykktur
réttur til frádráttar á helmingi árs-
tekna síöasta starfsárið. Þá frádrátt-
arheimild nýttu sér 943
framteljendur í ár. Tekjutap ríkis-
sjóös við samþykkt þessa stjórnar-
frumvarps yrði líklega um 30
milljónir króna.
-ÞG.
Kristín Ástgeirsdóttir.
Sverrir Sveinsson.
Magnús H. Magnússon.
ÁTTA VARAMNGMENN
Þrír varaþingmenn tóku sæti á
Aiþingi í gær. Sverrir Sveinsson, veitu-
stjóri á Siglufirði, tók sæti Páls Péturs-
sonar, þingflokksformanns Fram-
sóknarflokksins. Magnús H. Magnús-
son, varaformaður Alþýöuflokksins,
tók sæti Karls Steinars Guðnasonar og
Kristín Ástgeirsdóttir sæti Sigríðar
Dúnu Kristmundsdóttur, þingmanns
Samtaka um kvennalista. Karlmenn-
imir tveir, Sverrir og Magnús, hafa
báðir setið áöur á þingi en um frum-
setu er að ræða hjá Kristínu Ástgeirs-
dóttur.
Alls eru átta varaþingmenn inni á
þingi nú.
-ÞG.
KONUNGLEG BIÐ
EFTIR HELGA T.
Stöðugar samningaviðræður eiga
sér nú staö bréfleiðis og símleiöis
yfir Atlantshafið á milli Helga
Tómassonar balietdansara í New
York og Henriks B. Lysberg, for-
stjóra Konunglega leikhússins í
Kaupmannahöfn, um ráðningu þess
fyrrnefnda í stöðu balletmeistara við
Konunglega balletinn.
„Urslit liggja ekki fyrir fyrr en í
fýrsta lagi í næstu viku og óvíst
hvernig fer þar sem Helgi vill fá
meira en þær 500 þúsund danskar
krónur (1.500.000 ísl. kr.) sem við
getum boðið í árslaun,” sagði tals-
maður Konunglega leikhússins í
samtali við DV í gær.
-EIR
Forsætisráðherra:
Frestar stefnunni
Steingrímur Hermannsson for- yfirlýsinguna úr þingsölum og átti aö
sætisráöherra hefur frestað flutningi útvarpa boðskapnum. En stefnan
stefnuyfirlýsingar ríkisstjóm- liggurekkifyrirogþvífrestastmálið
arinnar. Svo sem kunnugt er ætlaði umóákveðinntíma.
forsætisráðherra að flytja stefnu- -ÞG.
Konur eiga að fá sinn hlut
— segir Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir um miðstjórnarkjör á ASÍ-þingi
„Eg er þeirrar skoðunar að annað-
hvort eigi konur að fá sinn sanngjarna
hlut í miðstjórn ASI eða að láta karl-
peninginn eingöngu um þetta. Eg legg
eindregið til að konur standi saman og
láti flokkssjónarmið lönd og leið og
fjölgi konum í miðstjóminni á þessu
þingi,” sagði Aðalheiður Bjamfreðs-
dóttir, formaður Sóknar, um þá tillögu
sem fram er komin að fjölga í mið-
stjórn ASI úr 13 í 16 fulltrúa og kjósa
auk þess tvo varaforseta í staöeins.
Aðalheiður á nú sæti í miðstjóminni
ásamt meö Þórunni Valdimarsdóttur,
fyrrverandi formanni Framsóknar.
„Það eru einhverjir formenn lands-
sambanda innan ASI sem eru utan við
miöstjórnina og ég hef grun um að
tillagan um fjölgun sé fram komin til
að koma þessum mönnum inn,” segir
Aðalheiður. „En ég vil að konur fái
sinn sanngjama hlut því þær eru þriðj-
ungur þingfulltrúa á ASl-þingi en eiga
ekki nema tvo fulltrúa. Ég hef alltaf
viljað að konur tækju sig saman en
væru ekki að draga sig í pólitíska
dilka.”
Aðalheiður kvaöst ekki vilja gefa
sig fram í framboö til varaforseta ASI
ef tillagan um að f jölga þeim í tvo næöi
fram að ganga. Hins vegar kvaðst hún
styðja til þess hvaða konu sem væri.
Á síðasta ASI þingi árið 1980 voru
450 þingfulltrúar, þar af voru 124
konur, eða um 28%. Sem fyrr segir
voru þá aðeins kosnar tvær konur í
miðstjómina.
-OEF.
Aðalheiður Bjarafreðsdóttir, formaður
Sóknar.
I dag mœlir Dagfari
í dag mælir Dagfari
I dag mælir Dagfari
ÚTSÖLUPRÍSAR A GABBRÓI?
Þjóðviljinn smalaði saman 22
kennurum og lét mynda þá fyrir
framan nýbyggingu Seðlabankans.
Myndina birti Þjóðviljinn svo á for-
síðu í gær. í texta sem fylgdi var þess
getið, að grabbróklæðning Seðla-
bankahússins kostaði 1,2 milljónir
króna og jafngildi sú upphæð þriggja
mánaða launum kennarahópsins.
Hins vegar láðist að geta þess hvort
þessi samanburður væri gerður til að
sýna léleg laun kennara eða hvort
gabbróklæðningin væri svo dýr að til
tíðinda heyrði.
Nú vill svo til aö kennarar hafa al-
mennt þriggja mánaða sumarfrí á
ári hverju, það er að segja mánuðina
júní, júlí og ágúst. Þeir em hins veg-
ar á f ullum launum allan timann og í
sjálfu sér ekkert við það að athuga
enda era það ekki kennarar sem
ráða lengd skólagöngu á ári hverju.
En þegar maður sér að fyrir sömu
upphæð og ríkið greiðir 22 kennurum
fyrir að gera ekki neitt, má klæða
stórhýsi með gabbrói fer maður
ósjálfrátt að reikna áfram. Hvað má
gera mikið fyrir laun 500 kennara
sem era í fríi þrjá mánuði á ári á full-
um launum, eða 1500 kennara? Það
mætti án efa gabbróklæða alla borg-
ina á nokkrum árum fyrir þær upp-
hæðir.
Kennarar halda því gjarnan fram
og sjálfsagt með réttu, að hluta sum-
arsins verji þeir til að sækja endur-
menntunarnámskeið. Þvi sé rangt að
þeir hafi frí allt sumarið. Gott og vel.
Látum svo vera. En það er heldur
ekkert smáræði sem kennsla baraa
er skert á hverjum vetri vegna
fundahalda hjá kennurum og svo-
kallaðra námskeiða. Ekki síst virðist
þessi fundagleði og fróðleiksfýsn
kennara bitna á yngstu bömunum,
enda er vist ekki ætlast til að þau læri
mikið i skólunum fyrstu veturna.
Kveður svo rammt að þessum funda-
fríum að suma mánuði fellur kennsla
niður dögum saman af þessum sök-
um. Enda er árangurinn cftir þvi.
Sjö ára gamalt bara i Reykjavik sem
heíur veriö tvo vetur í skóla er enn
ekki búið að læra að lesa, einfaldlega
vegna þess að svo langt er kennslan
ekki komin. Þessir tveir fyrstu vetur
era lítið annað en leikskóli með
fundafrium inni á milli leikjanna.
Duglegir og fróðleiksfúsir krakkar fá
leið á þessu hangsi, ekki síst ef for-
eldrarair hafa gerst sekir um þann
glæp að kenna þeim að lesa heima alvarlegum augum af kennaraliðinu
fyrir. Slik afglöp era litin mjög sem brátt mun fá viðurkenndan
Þau em 3 mánuði að
vinna fyrir gabbróinu
einkarétt sinn á að kenna börnum
lestur og skrift. Þegar sá elnkaréttur
er fenginn verður foreldram eflaust
hótað málsókn ef þeir dirfast að
segja börnunum til heima
fyrir. Kennarahópur Þjóðviljans er
á móti því að Seðlabanklnn skuli
klæddur gabbrói. Hópurlnn telur efa-
laust að þeim peningum sem gabbró-
ið kostar væri betur varið til að
hækka laun kennara. Kennarar Þjóð-
viljans hafa líklega fengið leyfi til að
skreppa frá í frímínútunum til að
láta smella af sér mynd með gabbró-
ið í baksýn. Alla vega er auðséð að
myndln er tekin í björtu, en dagsbirt-
an er ekki lengri en svo á þessum
árstíma, að börnin fara í skóla í
myrkri á morgnana og koma heim í
rökkri síðdegis. Það hefði verið gam-
an að vita hve ríkissjóður borgaði
gabbróhópnum háa upphæð í laun á
meðan á myndatökunni stóð. Kröfu-
harka kennara hefur verið með ólík-
indum í haust og vetur. Hvernig væri
að einhver færi að koma með kröfur
á móti í garð kennara. Til dæmis að
halda uppi fullri kennslu og hlífa
nemendum við sífelldu sifri um lág
laun og slæman aðbúnað.
Dagfari.