Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1984, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1984, Qupperneq 10
10 Útlönd DV. MIÐVKUDAGUR14. NOVEMBER1984. Útlönd Útlönd Útlönd Hægrislnna gagnbyMngarmenn i Nicaragua haida úti 15 þúsund manna skæruhar gegn sandinistum maO stuOningi Bandaríkjanna. Hernaðarleg lausn Reagan-stjómin telur að aðgerðir hennar í Mið-Ameríku séu nauösynlegar til aö stemma stigu við útbreiðslu kommúnismans í heim- inum, og sérdeilis svona nærri bæjardyrunum. Dag hvem dælir Washington tveim milljónum dollara í hernaðar- og efnahagsaðstoð við E1 Salvador til þess aö hjálpa stjórninni þar að berjast gegn vinstrisinna skæruliöum. 1 nágrannalandinu Hondúras hafa Bandarikin komið upp fjölda herstöðva og herlið Hondúras og bandarískir herflokkar hafa stundaö heræfingar í sam- einingu, oft á landamærum Nicara- gua, síðan í febrúar í fyrra og er ætl- un aö halda þvi áfram fram á árið 1986. Til þess að auka þrýsting á vinstri- sinna í Managua aöstoðaöi Wash- ingtonstjórnin viö aö koma á lagg- irnar 15 þúsund manna her hægri- sinna gagnbyltingarmanna í Nicara- gua sem halda þar úti skæruhernaði til þess aö bylta stjóm sandinista. Meö þessu sýnist Bandaríkjastjóm hafa reitt sig meir á hemaðarlega lausn mála i Mið-Ameríku og það í sjálfu sér gerír allar samkomulags- umleitanir enn erfiðari en ella. Svo sem eins og viðleitni Contadora-rikj- anna (Mexíkó, Kólombíu, Venezúela og Panama) til meðalgöngu sem hefur strandað vegna synjunar Bandarík janna á aö fækka hernaðar- ráögjöfum og herliöi i Miö-Ameríku. 1 byrjun réttlætti Reaganstjómin stuöning sinn viö gagnbyltingar- menn i Nicaragua sem mikilvægan til þess aö draga úr hergagnamiölun sandinista til vinstri sinna skæruliða í E1 Salvador. Nú segir hún mark- miðið aö knýja sandinistastjórnina til aukins lýðræðis, þvi aö hún litur á stjóm sandinista sem einræðisstjóm og kosningarnar á dögunum sem „sovéskar” í framkvæmd. Ofriöarský hafa hrannast á loft i sambúð Nicaragua og Bandaríkj- anna á siðustu dögum eftir nýaf- staðnar kosningar í báðum lönd- unum. Sambúð þessara rikja var þó ekki tiltakanlega ástrík fyrir, svo að vægtsétilorðatekiö. Eldfíaugar og herþotur Kosningarnar tryggðu áframhald- andi stjórnarsetu i báðum ríkjum stjórnmálamanna sem lítinn áhuga viröast hafa á því að ná sáttum. Aöur en sólarhríngur var liðinn frá for- setakosningunum i Bandarikjunum magnaöist spenna af komu sovésks flutningaskips til hafnar i Nicara- gua, en það var talið flytja eld- flaugar og MIG-herþotur. Bandarikjamenn létu fyllilega á sér skilja að þeir mundu ekki þola að svo langdrægum vopnum væri komið fyrir i Nicaragua og i loftinu iá aö þeir gætu hugsað sér aö grípa til hernaöaraðgerða ef Nicaragua beygði sig ekki undir það sjónarmiö. I Managua var borið á móti þvi að sovéskar herþotur væru með skipinu. Sandinistar túlkuðu um leið kosningaúrslitin i Bandaríkjunum sem itrekun hættunnar á innrás frá Bandaríkjunum. Gagnkvœmar ásakanir I kosningunum i Nicaragua höfðu sandinistar hlotið tvo þriöju at- kvæða. Þessi fyrrum byltingarsam- tök þjóðemissinna, sem veltu hægri haröstjóm Anastasio Somoza úr stóli 1979, hafa verið Reagan forseta mikill höfuðverkur. Hann sakar þá um aö styðja skæruliöahreyfingar vinstrísinna í Mið- og Suður-Ameriku og stuöla að útbreiðslu kommúnisma við bæjardyr Bandaríkjanna. Svo oft hafa sandinistar hrópaö „Ulfur! Ulfur!” um yfirvofandi innrás Bandaríkjanna að menn hafa smám saman dofnað yfir. En yfir- lýsingamar í Washington út af þessum MIG-þotum, sem taldar vora meðal farms sovéska flutninga- skipsins, komu mörgum til að leggja viðhlustiraðnýju. Áður en það kom til höfðu menn þó búist viö þvi að áframhaldandi seta Reagans á forsetastóli mundi leiða til sömu stefnu hans um aukna hern- aðaríhlutun í þessum hluta álfunnar. Frá upphafi hafa samskipti þessara tveggja rikisstjórna einkennst af hugmyndafræðilegum ásteytingi. Reagan og hægri öflin annarsvegar og sandinistar og kommúnistar hins vegar. Það hefur gefið lítiö svigrúm til málamiðlunar eða sátta. Um það era stjómmálamenn i Mið- Ameríku sammála, hvort sem drag- ast í hægri eða vinstrí dilka, aö einskis friðar megi vænta í þessum hluta álfunnar á meðan ófriður er í Nicaragua. Ólgan í Mið-Anteríku ÞURRKAVANDAMAUD VEX HRÖDUM SKREFUM Þurrkavandamálið í Eþíópíu vex nú hröðum skrefum og segja ráða- menn þar og fulltrúar Sameinuðu þjóöanna aö auk hörmunganna i norðurhluta landsins sé ástandið aö veröa álíka slæmt í Austur-Eþiópíu. Aralangir þurrkar á Harrarghe- svæðinu samfara miklum fólks- Ðutningum Eþíópíumanna þangaö frá Sómaliu í leit að mat gætu auðveldlega leitt til þess aö ástandið þar verði svipað og það er nú i Wollo- héraði í norðurhluta landsins þar sem hundruð manna deyja á hverjum degi. ,í)f ekki verður grípiö til einhverra aögerða strax er liklegt aö ástandið verði jafnslæmt og þaö er í Wollo ef ekki verra,” segir Getachew Tapesse, rítari verkamanna- flokksins i Eþíópíu 1 Erre, þar sem hirðingjar streyma nú að úr eyði- mörkinni í leit að mat. Nicholas Bwakira, yfirmaður flóttamannaskrifstofu Sameinuöu þjóöanna i Eþíópíu, sagöi blaöa- mönnum: „Ef aðstoð berst ekki til þessa svæöis á næstu þrem mánuðum verður Harrarghe annað Wollo. Fólkið mun deyja, það er ekkert annaö sem liggur fyrir þvL ” Aöalstöðvar Bwakirá UNHCR i Genf, hafa faríö fram á neyðarhjélp til handa Harrarghe-svæðinu sem nemur yfir 2 milljónum dollara. Sem stendur rekur UNCHR litla hjálparstöð fyrir 5000 brottflutta Eþíópíumenn frá Sómalíu á þessu svæöi en fyrir utan hana er enga erlenda aðstoð aö finna þar nú og ólíkt því sem gerist í Wollo, þar sem afleiðingar þurrkanna hafa verið augljósar undanfaríö ár, era engar aðrar erlendar hjálparstofnanir á þessusvæði. 31 hjálparstofnun Alls eru starfandi 31 erlend hjálparstofnun i Eþíópíu en eþiópiskir ráðamenn segja að Harr- arghe hafi ekki veríð talið hættusvæði þvi aö áður en flótta- mennirnir byrjuðu að streyma þangaö komst svæðið af. Nú getur þaö ekki brauöfætt alla sem þar era. Viðkvæmir lifshættir i Harrarghe, þar sem 3,5 milljónir manna búa, þola ekki þurrkana sem eyöilagt hafa uppskeruna og drepiö búpening. I allt gætu 90.000 manns farist ef ekkert er að gert, segja ráöa- menn... „Eg óttast aö umheimurinn muni gleyma Eþíópíu áöur en eitthvað verður gert fyrir Harr- arghe. Það yrði harmleikur. Þetta er stærsta hérað í öllu landinu,” segir Bwakira. Erre Erre er smábær á jámbrautar- línunni 65 km vestur af Dire Dawa. Erre-áin hefur ekki þornað upp ennþá og sér fyrir áveituvatni til þeirra bænda sem búa í nágrenninu. Hún er græn vin i brennandi auðn- inni. Hún getur hlns vegar ekki séö fyrir nægum raka til að kornrækt „Moslem-Issa” hirðingjanna í auðn- inni í kring beri sig. Þurrkarnir hafa drepið úlfalda þeirra og geitur sem þeir lifa á og nú hópast þeir til Erre til aö betla mat. Um 2500 hirðingjar halda til í tjöldum rétt utan viö Erre og æ fleiri þeirra streyma þangað hvem dag. Að sögn vestur-þýska læknisins Klaus Hometz eru um 30% þelrra með augljós merki vannæringar. Um mánuður er liðinn siðan hiröingjarnir byrjuðu að streyma aö og á þeim tima hefur neyöarhjálpar- nefnd rikisins aöelns getaö úthlutað mat einu sinni. „Þetta fólk er statt í blindgötu. Astand þess verður aö versna að mun áöur en nokkur fer aö hugsa um aö bæta þaö,” segir Tahir Ali, héraðs- stjóri UNHCR. 30 börn hafa dáið Á þessum mánuði sem liöinn er hafa 30 dáið, mest böm, úr hungri eða sjúkdómum, sem eru fylgifiskar þess ... „Við höfum bókstaflega engan mat”, segir Kabede Tehana einn af yfirmönnum Rauöa krossins. Olíkt því sem gerðist í Wollo komu fómarlömb þurrkanna til bæjar- kjamanna í leit að mat er þau voru enn vel á sig komin likamlega en þau munu ekki vera það mikið lengur. „Við gefum þeim sem snúiö hafa frá Sómaliu mat en það er erfitt svo ekki sé meira sagt aö láta þá fá mat en ekki fólkiö sem búið hefur á svæðinu og aldrei yfirgefið þaö en þjáist einnig vegna þurrkanna,” segir Bwakira.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.