Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1984, Page 19
I R—d 1
DV. MIÐVIKUDAGUR14. NOVEMBER1984.
19
-ÞÚ ATT AÐ SKAMMAST
ÞÍN. PflUL MABINEB”
Ian Rush.
— Englendingar laf hræddir við landsleik Englands og Tyrklands í kvöld og
sárreiðir Paul Mariner sem ekki gaf kost á sér
Frá Sigmundi O. Steinarssyni, blaða-
manni DV, í Englandi:
Englendingar eru mjög kvíöafullir
fyrir landsleikinn gegn Tyrkjum sem
fram fer í kvöld í Tyrklandi. Mark
Hateley er meiddur og getur ekki leikið
með og sömuleiðis eru þeir f jarri góðu
gamni Alan Kennedy, Liverpool, - og
Paul Mariner, Arsenal. Bobby Rob-
son, framkvæmdastjóri enska lands-
liðsins, tUkynnti í gær hvaða eUefu
leikmcnn hæfu leikinn og þeir eru:
fá Sigga Grétars”
— forráðamenn Lokeren sjá nú eftir því að hafa
ekki keypt Sigurd Grétarsson
Frá Kristjáni Bernburg, fréttaritara
DVíBelgíu:
Forráðamenn belgíska knatt-
spyrnufélagsins Lokeren naga sig nú
í handarbökin yfir því að hafa ekki
keypt Sigurð Grétarsson á sínum
tima þegar hann var hjá félaginu
ekki aUs fyrir löngu.
Lokeren hefur selt þá Preben
Elkjær Larsen og Van der Gijp og
vantar nú sterkan framlinumann.
„Sigurður Grétarsson er einmitt
sú týpa sem okkur vantar i dag. I
Hann sýndi hvað i honum bjó þegar I
hann var hér tU reynslu og það er ■
sorglegt að hann skuU hafa runnið I
okkur úr greipum,” sagöi fram- *
kvæmdastjóri Lokeren í samtaU við I
DVÍgær. .
Sigurður, sem fór tU griska liðsins |
Saloniki, lék með félögum sinum um ■
helgina þegar Saioniki vann Doxa I
Drama 3—1. I
-SK. 1
, ^^ J
Paul Mariner i enska landsliðsbún-
ingnum. Svo gæti farið að hann yrði
ekki beðinn að klæðast þessum eftir-
sótta búningi oftar.
„Bryan Robson er
ólýsanlegur maður”
— segir Daninn Jesper Olsen um fyrirliða sinn hjá Manchester United
„Þaö er erfitt fyrir mig að segja tU
um það hveuær Bryan Robson hefur
haft mest áhrif á mig. Robson er svo
stórkostlegur persónuleUd að það trúir
þvi ekki nokkur maður nema sá sem
kynnist honum af eigin raun,” segir
Daninn Jesper Olsen sem leikur meö
Manchester United í ensku knattspyrn-
unni.
„Hjá United er það Robson sem
stjórnar öUu sem gert er á knatt-
spyrnuveUinum. Ef maður lendir í
einhverjum vandræðum þá veit maður
að Robson er einhvers staðar nálægur
og leysir úr vandanum. Eg tók sérstak-
lega eftir þessu í leik gegn Aston ViUa
fyrir skömmu. Þá var Robson ekki
með, var meiddur, og fylgdist með
leiknum frá hliöarlínunni. Amold
Miihren tók stöðu hans og þrátt fyrir að
Muhren sé snjall knattspymumaður
þá er hann ekki eins iðinn við að vinna
boltann og Robson. Eg tók allavega
eftir því í leiknum að aUir söknuðu
hans.
„ROBBO ER ÁNÆGÐUR
HJÁ UNITED"
„Robbo, eins og hann er oftast
kallaður, var mikiö aö hugsa um aö
fara tU Italíu en núna hefur hann
nýverið skrifað undir nýjan samning
hjá United og aUir em í sjöunda himni
með það. Hann verður hjá United þar
tU ferU hans lýkur. Hann er ánægöur
með sinn nýja samning og ég held að
hann langi ekki tU Italíu í dag. Hann er
ótrúlega vinsæU og alUr dýrka hann.
Þegar nýir leikmenn koma til félagsins
er það aUtaf hann sem gerir aUt til að
kynnast þeim. Hann fer með þá á golf-
vöUinn og leikur golf. Konur nýju leik-
mannanna kynnast aUtaf heima hjá
honum, hann býður þeim heim tU sín
og kemur kunningsskapnum af stað.
„BAUÐ OKKUR Á
TÓNLEIKA MEÐ QUEEN"
„Fyrir mánuði síðan sýndi Robson
okkur Strachan og Brazil hvernig per-
sónuleiki hann í raun og vem er í hnot-
skurn. Hann frétti af tónleikum með
hljómsveitinni Qeen. Hann bauð okkur
öUum á hljómleikana og alUr höfðu
mikið gaman af. Eftir þrjár vikur flyt
ég endanlega inn í nýja húsið mitt og
ég veit að Robson verður fyrstur
manna tU að rétta mér hjálparhönd.
Hann er ólýsanlegur maður. Ef aUir
menn hefðu sömu persónu að geyma og
hann væri lífið leikur,” segir Jesper
Olsen, Manchester United, um fyrir-
liða sinn, Bryan Robson.
-SK.
Shilton, Forest, Anderson og
Sansom, Arsenal, Butcher, Ipswich, og
Wright, Southampton, WUUams,
Southampton, WUkins, AC MUano,
Robson, Man. United, White, Aston
VUla, Woodcock, Arsenal, og Barnes,
Watford.
Mikíll hiti
vegna Mariner
Peter White tekur stöðu Mark
Hateley, AC MUan. Mariner var hins
vegar tUbúinn að leUca eftir að Hateley
meiddist en þá var búið að velja White
í liðið og ekki hægt að bakka með það.
Er mikUl hiti í mönnum í Englandi
vegna þessarar hegðunar Paul Marin-
ers. Emlyn Hughes, fyrrum enskur
landsUðsmaður og leikmaður með
Liverpool, segir í einu blaði hér í fyrir-
sögn: „Þú átt að skammast þín,
Paul.” Þess má geta að þetta er í
annað skipti á stuttum tíma sem
Mariner hunsar landsUðið.
-SK.
r Búist við !
j sexþúsund j
i áhorfendum j
I Frá Sigmundi O. Stemarssyni, J
I blaðamanni DV i Englandi: |
* Það cr ekki rciknað með mörgum *
| áhurfcndum á landsleik Wales og|
- íslands í kvöld og ástæðan er fyrst |
I og fremst slakt gengi welska liðs- *
IinsiundankeppniHMtilþcssa. I
Mike England hefur beðið Wales- ■
I búa að sýna leikmönnum welska I
■ liðsins traust með því að mæta á [
I leikinn. |
Þrátt fyrir það er ekki reiknað ■
I með nema sex þúsund áhorfendum I
■ á landsleik Wales og Islands í |
I kvöld. Til gamans má geta þess að ■
■ á laugardagmn var mættu fjögur I
I þúsund til að fylgjast með leik hjá ■
| Cardiff City á Ninian Park.
-SK. |
mm mmm mm
„Ef maður lendir í einhverjum vandræðum á knattspyrnuveUinum veit maður að Robson er nálægt og leysir úr
vandamálunum,” segir Jesper Olsen m.a. um Bryan Robson í Manchester United. Hér eru þeir félagar á fullri ferð
meðliðisinu.
„Engin
spurningað
ég skora”
— segir lan Rush
Frá Sigmundi 0. Steinarssyni, blaða-
manniDV iEnglandi.
Það er gifurleg pressa hér á Ian
Rush markaskorara fyrir leikinn gegn
íslandi í kvöld. Rush hefur verið með
endalausar yfirlýsingar í blöðum og er
alls ekki banginn í ummælum sínum.
„Það er engin spurning aö i kvöld
mtm ég skora mörk. Spurningin er
aðeins hve mörg mörk ég skora. Minn
æðsti draumur er að leika meö welska
landsliðinu í Mexíkó. Við höfum byrjað
mjög illa en möguleikarnir eru enn
fyrir hendi,” sagði Ian Rush og bætti
við: „Það eru fjórir erfiðir leikir eftir
og við verðum að vinna þá. Sérstak-
lega er mikilvægur leikurinn gegn
Skotum í Skotlandi,” sagði Ian Rush og
greinilegt að það er aukaatriði að sigra
íslenska liðið í kvöld. Og nú er bara að
vona að grobbaranum Rush verði ekki
að ósk sinni og helst að hann gangi af
leikvelli í kvöld með skottið á milli
lappanna. -SK.
Heimir fékk
6 í einkunn
Frá Kristjáni Bernburg, fréttaritara
DVíBelgíu:
Heimir Karlsson hefur staöið sig
ágætlega meö Excelsior í hollensku
knattspymunni.
Hann fékk 6 í einkunn fyrir leik sinn
um síöustu helgi og einnig 6 í leiknum
þar á undan. Hasst er gefið 10. Pétur
Pétursson fékk 5 í einkunn fyrir leik
sinn með Feyenoord gegn Gronuigen
á laugardaginn. -SK.
18 með 12
Það voru margir sem nældu sér í aukapcn-
inga um helgina síðustu þcgar úrslitin í ensku
knattspyrnunni litu dagsins ljós. Alls voru 18
seðlar með 12 réttum og komu 27.475 krónur í
hlut hvers. Hvorki fleiri né færri en 399 raðir
voru með 11 rétta og var vinningur fyrir
hverja röð 531 króna.
-SK.
Karatemót
í Ásgarði
Um næstu helgi vcrður haldii mót í karate á
vegum UMSK. Þátttakendur eru frá Stjörn-
unni, Gerplu og UMSK. Keppt verður í Ás-
garði i Garðabæ og hefst mótið kl. 13.30 á
iaugardag og því lýkur kl. 13.30.
Hver fær
10 þúsund?
Heljarmikið mót í billiard fer fram um
næstu helgi á billiardstofunni Ballskák að
Ármúla 19.
Mótið, sem nefnist Pöbb-inn mótið, hefst á
laugardag og því lýkur á sunnudag. Allir
sterkustu biliiardmenn landsins mæta til leiks
og þar á meðal er Jón Örn Sigurðsson sem
gerði garðinn frægan í Dublin á dögunum.
Vegleg verðlaun verða veitt þeim sem best
standa sig. Fyrstu verðlaun verða 10 þúsund
krónur, önnur verðlaun 5 þúsund og þriðju
verðlaun 2 þúsund.
Þess má geta í leiðinni að biiliardsnillingur-
inn Bob Wiliiams er staddur hér á landi og
kennir biliiard á Ballskák á föstudögum.
Einnig er hægt að panta tima á öðrum dögum.
-SK.
íþróttir
íþróttir
íþróttir
íþróttir
íþróttir