Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1984, Side 31

Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1984, Side 31
DV. MIÐVIKUDAGUR14. NOVEMBER1984. 31 Sandkorn Sandkorn Sandkorn Erþetta /ausnin? Vörn gegn ofveiði Okkur hefur borist f jöldinu allur af veiðisögum i fram- haldi af fréttaskrifum DV um fengsœld skotmanua i haust. í stuttu máii er samantektin þessi: Gæsaskytta skaut belju vestur á Mýrum. Rjúpna- skytta skaut lamb í Kjósinni. Svo fréttum við af einum sem brá sér austur fyrir fjall. Hann hafði fjórar rjupur, tvær gæsir og einn hund! Fleiri veiðisögur eru á vörum manna en verða ekld taldar upp hér. Hta8 vegar íhuga bændur nú sterklega hvernig þeir geti komið í veg fyrir þessa stór- felldu húsdýraslátrun á haustin. Hefur þeim þótt einna fýsilegust hugmyndln um að merkja gripina með þar til gerðum úðabrúsum. Á hlið hverrar beiju stæði þá skýrum stöfum stikkorðið „kýr”. A rollur yrði ietrað „kind” eða „lamb” eftir aldri viðkomandi. Teija bændur að þetta geti a.m.k. varnað ofveiðum á stofnunum. Ofsjónir? Það hefur stundum verið talað ljótt um þlngmennina okkar. Þeir hafa verið kallað- ir prúðuleikarar og fleira ijótt sem ekki á að sjást á prenti. En á þetta er minnst vegna spaugilegs leikþáttar, sem settur var á svið, þegar van- traustsumræðum var útvarp- að frá Alþingi nýverlð. Þá steig í pontu Jón Baid- vin Hannlbalsson, formanns- kandídat krata. Flutti hann glimrandi framboðsræðu með landsföðurlegu ívafi. Hann lýsti að sjálfsögðu emjandi vantrausti á rikis- Sí Jón BaJdvin ofsjónlr? stjórnina og sagðl með vand- lætingu: „Þar sem ég stend hér í þessum ræðustól og horfi á þá Steingrím Her- mannsson og Þorstein Páls- son... ” GaUinn á þessu öUu var bara sá að Jón Baldvin gat aUs ekki séð þá Steingrím og Þorstein þaðan sem hann þusaði úr ræðustóinum. — Þeir voru nefnUega ekki í sæt- um sinum þá. En það vissu auðtrúa útvarpshlustendur vitanlega ekkert um. Húsvikingar eru nú teknir upp á þvi að atast í Akureyr- ingum með aUs konar molbúabröndurum. TU að sýna hvemig þetta gengur fyrir sig er hér smáskot úr Víkurblaðinu: Akureyringur kom inn í herbergi, hvar inni var kol- niðamyrkur. Hann rýndi í kringum sig og sagði með undrunarhreim i röddinni: „Nei, hér hefur sko aldeiUs verið siökkt iengi.” Flakað á hestbaki Rikharður Jónsson, fisk- matsmaður i Ólafsvik, ritaði á dögunum f jöriega grein i Fiskifréttir. Hún bar þá bein- skeyttu yfirskrift: „Útskýr- ingar tU forstjóra og verk- stjóra í fiskvinnslu sem ekki hafa vit á fiski.” 1 greininni segir matsmað- urinn m.a.: „Eg ætla mér að útskýra helstu gaUa í fiski fyrir þeim forstjórum og verkstjórum sem ekki hafa vit á fiski.” Svo telur hann upp af mikUli einurð: vélar- gaUa, saltgaUa, upprif og Ufr- argaUa. Síðan segir: „Ef um er að ræða tvo verkstjóra hjá sama fyrirtækinu þá ætti ekki að vera mikUl vandi að stjóma vinnunni og framleiðslunni. Eg tala nú ekki um ungUnga á vinnumarkaðinum sem þarf að segja tU verka. Væri ekki betra að verkstjórar og þeirra menn fræddu menn meira um fisk en gert er í dag heldur en að vera út um hvippinn og hvappinn, jafn- vel í útreiðartúrum og þess háttar.” Umsjón: Jón Baidvin HaUdórsson. Bylting i vélritun — ný ritvél á markaðinn Á markaðinn er komin nýstárleg ritvél sem gefur margfalt fleiri möguleika tU notkunar en áður hefur þekkst. Fyrst er tU að taka að ritvélin, sem nefnist BP—30, er mjög litil og létt. Hún kemst í venjulega skjala- tösku og vegur aðeins tæp 3 kUó. i Á BP—30 má skrifa með þrem leturstærðum og f jórum litum. Skipt er um lit og leturstærð með því einu að ýta á takka. Á ritvéUna er hægt að gera línurit og töflur, einnig í f jórum Utum með prósentutölum. Þegar skrifaðar eru greinar eða ritgerðir, má hafa fyrirsögnina með stóru letri, breyta um Ut til áherslu, skrifa meginmál með venjulegu letri og gera athugasemdir á spássíu með smáu letri. BP—30 gengur fyrir rafhlöðum og einnig rafstraum með spennubreyti. Leiðréttingar eru auðveldar með því að nota skjáinn, sem tekur 15 stafi og sýnir aUar stiUingar vélarinnar. BP—30 skrifar bæði lárétt og lóðrétt, deUir, margfaldar, dregur frá og leggursaman. KULDASKÓR Stæröir28—46 Póstsendum Laugavegi 1 — Sími 1-65-84

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.